Fréttablaðið - 25.04.2016, Side 4
SEGLAGERÐIN ÆGIR
Þar sem ferðalagið byrjar
Korputorg
112 Reykjavík
Sími 551 5600
utilegumadurinn.is
FERÐAVAGNAR
KAUPLEIGA
GRÆNIR BÍLAR
Opið mán-fös kl. 10-18 - lau-sun kl. 12-16
Hafnarfjörður Nýr einkarekinn
grunnskóli fyrir 13 til 15 ára börn
mun taka til starfa í Hafnarfirði í
haust. Hver nemandi mun þurfa að
greiða um 160 þúsund krónur fyrir
árið. Forsvarsmenn skólans áætla
að Hafnarfjarðarbær greiði einnig
fyrir hvern nemanda bæjarins en
enginn þjónustusamningur hefur
verið gerður við bæinn.
„Við munum byrja með 60 nem-
endur í haust, erum komin með
starfsleyfi frá Hafnarfjarðarbæ
og menntamálaráðuneytinu og
þjónustusamningur við bæinn er í
bígerð,“ segir Kristján Ómar Björns-
son, einn eigenda fyrirtækisins.
Kristján gerir ráð fyrir að bærinn
greiði 75 prósent af reiknuðum
kostnaði við hvern nemanda.
„Bænum er svo í fullvald sett að
koma í veg fyrir það að við inn-
heimtum skólagjöld með því að
greiða fyrir hvern nemanda eins og
gert er í almennu skólunum,“ segir
Kristján.
Ekki er gert ráð fyrir neinum
greiðslum til nýja einkaskólans á
fjárhagsáætlun ársins í ár. Ef Hafnar-
fjarðarkaupstaður ætlar sér að veita
fé til skólans þarf samkvæmt sveit-
arstjórnarlögum að gera viðauka
við fjárhagsáætlun ársins og þarf sá
viðauki að fara fyrir bæjarstjórn til
umræðu og samþykktar.
Hörður Svavarsson, fulltrúi
Bjartrar framtíðar í meirihluta
fræðsluráðs, segir engan samning
liggja á borðinu milli nýja skólans
og bæjaryfirvalda. Fræðsluráð hafi
því ekki enn samþykkt skólann sem
slíkan. Það komi einnig til greina
að gera ekki þjónustusamning við
skólann í ljósi bágs ásigkomulags
bæjarsjóðs.
„Við göngum ekki til samninga
með það að markmiði að semja
hvað sem það kostar,“ segir Hörð-
ur. „Við þurfum fyrst að huga að
öðrum málum áður en við semjum
við Framsýn skólafélag um nýjan
grunnskóla.“
Hörður sagði í lok árs 2015 það
vera grundvallaratriði að hugað
yrði að jöfnum tækifærum barna
til að sækja grunnskólamenntun
og sagðist ekki geta stutt skóla
ríkra manna elítu, eins og hann
orðaði það, og að jafnræði yrði að
vera tryggt.
„Efnalítið fólk mun ekki geta veitt
upp 160 þúsund krónur úr vösum
sínum eins og ekkert sé, það er alveg
ljóst,“ segir Hörður Svavarsson.
sveinn@frettabladid.is
Einkagrunnskóli innritar án
þess að hafa samið við bæinn
Grunnskóli Framsýnar skólafélags hefur starfsemi í Hafnarfirði næsta haust. Skólinn er fyrir 13 til 15 ára og
skólagjöldin verða 160 þúsund krónur. Samningur við bæinn liggur ekki fyrir en innritun er hafin. Fulltrúi
meirihlutans í fræðsluráði segir ljóst að skólinn verði ekki fyrir börn úr efnalitlum fjölskyldum í bænum.
Nýi grunnskólinn verður starfræktur við Flatahraun. Fréttablaðið/Pjetur
Við þurfum fyrst að
huga að öðrum
málum áður en við semjum
við Framsýn
skólafélag.
Hörður
Svavarsson,
fulltrúi í fræðslu-
ráði Hafnarfjarðar
Leiðrétting
Vegna mistaka vantaði niðurlag
pistils Sifjar Sigmarsdóttur í
helgarútgáfu Fréttablaðsins þann
23. apríl:
En stundum þarf meira til en
almenna tiltekt. Það var, alveg eins
og Erdogan, þaulsætinn stjórn-
málamaður, forseti haldinn mikil-
mennsku og með einvaldstilburði,
sem minnti okkur á í vikunni að
stundum þarf að fara í Ikea og end-
urnýja skápinn sjálfan.
Ólafi Ragnari Grímssyni er frjálst
að gefa kost á sér í stól forseta
Íslands þangað til veröldin ferst í
ragnarökum. Óbeisluð löngun hans
eftir forsetastólnum sjötta kjörtíma-
bilið í röð er hins vegar áminning
um að tími er til kominn að endur-
skoða stjórnarskrá lýðveldisins,
meðal annars með það að mark-
miði að takmarka hve lengi forseti
má sitja.
Undir hvaða stól var frumvarpi
stjórnlagaráðs um nýja stjórnarskrá
aftur stungið? Getur ekki einhver
grafið það upp?
austurríki Norbert Hofer, fram-
bjóðandi Frelsisflokksins í forseta-
kosningum í Austurríki, sigraði í
fyrstu umferð kosninganna í gær.
Hann hlaut 37 prósent atkvæða.
Næstur á eftir Hofer var Alexander
van der Bellen, úr röðum Græningja,
með tæp tuttugu prósent.
Í þriðja sæti varð sjálfstæði fram-
bjóðandinn Irmgard Griss með tæp
nítján prósent. Þar sem enginn náði
hreinum meirihluta þarf líklega að
kjósa aftur á milli þeirra tveggja, sem
flest atkvæði fengu, í maí.
Þjóðernishyggjuflokkur Hofers,
Frelsisflokkurinn, er einkar andvígur
móttöku flóttamanna.
Úrslit kosninganna eru til marks
um óvinsældir ríkisstjórnar Jafnaðar-
mannaflokksins og Alþýðuflokksins.
Frambjóðendur flokkanna fengu
um 11 prósent í kosningunum hvor
um sig. Í fyrsta sinn frá lokum seinni
heimsstyrjaldar mun forseti ekki
koma úr röðum þessara flokka.
Þingkosningar fara fram í Austur-
ríki 2018. Mælist Frelsisflokkurinn
með mest fylgi, rúm þrjátíu prósent.
Formaður flokksins, Heinz-Christian
Strache, sagði í samtali við frétta-
stofuna AFP að nú væri upphaf nýrra
tíma í stjórnmálum. – þea
Þjóðernissinni sigraði í fyrstu umferð
Norbert Hofer, forsetaframbjóðandi Frelsisflokksins. NordicPHotos/aFP
Eitt er ljóst. Fólkið
er gífurlega óánægt
með ríkisstjórnina.
Norbert Hofer, forsetaframbjóðandi
ferðaþjónusta „Í okkar huga er
á kristaltæru að fyrirtæki, hvort
heldur sem er í ferðaþjónustu eða
öðrum atvinnugreinum, eiga aldrei
að byggja samkeppnisforskot sitt á
sjálfboðavinnu,“ segir Skapti Örn
Ólafsson, upplýsingafulltrúi Sam-
taka ferðaþjónustunnar.
Skapti segir það ekki ganga upp
í íslenskri ferðaþjónustu ef slík
undir boð eru stunduð í samkeppni
við fyrirtæki sem stunda heiðarlega
og ábyrga atvinnustarfsemi.
Halldór Grönvold, aðstoðar-
framkvæmdastjóri ASÍ, ræddi hag-
nýtingu ferðaþjónustufyrirtækja á
sjálfboðaliðum á málþingi Vinnu-
málastofnunar í síðustu viku. Hann
gagnrýndi Samtök ferðaþjónust-
unnar og sagði aðgerðaleysi þeirra
áberandi.
Skapti segir samtökin hvetja
fyrir tæki til að hlíta kjarasamn-
ingum og standa skil á sköttum
og skyldum. „Það er afar brýnt að
fyrirtæki í öllum atvinnugreinum
standi klár á skyldum sínum gagn-
vart starfsmönnum og samfélaginu.
„Við líðum ekki að brotið sé á
starfsfólki og að okkar mati er mikil-
vægt að sótt sé að þeim fyrirtækjum
sem ekki virða lágmarksákvæði
kjarasamninga,“ segir hann.
Skapti tekur fram að í fyrra hafi
rúmlega nítján þúsund manns
starfað við ferðaþjónustu á Íslandi.
„Þau tilvik sem hafa komið upp
að undanförnu eru of mörg, en þó
verður að hafa í huga að þau eru
aðeins brotabrot af heildinni,“
segir Skapti. „Á mörgum stöðum er
regluverk í kringum ferðaþjónust-
una mjög veikt og hefur ekki þróast
í takt við þroska greinarinnar.“
– kbg
Samtök ferðaþjónustunnar líða ekki undirboð á vinnumarkaði
Frést hefur af fyrirtækjum sem vilja ráða til sín sjálfboðaliða í störf sem ættu að
vera launuð. Fréttablaðið/aNdri
LögregLumáL Fíkniefnadeild lög-
reglunnar, ásamt sérsveit ríkislög-
reglustjóra, fór í húsleit við Nýbýla-
veg í Kópavogi í gær.
Tveir voru handteknir að sögn
Runólfs Þórhallssonar, yfirmanns
fíkniefnadeildar. Hann gaf ekki upp
hvað fannst í húsleitinni. Grunur
hafi verið um brot á lögum um
ávana- og fíkniefni.
Aðspurður segir Runólfur alvana-
legt sé að sérsveitin komi með þegar
fíkniefnadeildin fari í húsleit. – skh
Sérsveitarmenn
með í húsleit
sérsveitarmaður. Fréttablaðið/VilHelm
2 5 . a p r í L 2 0 1 6 m á n u D a g u r4 f r é t t i r ∙ f r é t t a B L a ð i ð
2
5
-0
4
-2
0
1
6
0
4
:3
0
F
B
0
6
4
s
_
P
0
6
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
4
K
_
N
Y
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
9
3
3
-3
9
8
4
1
9
3
3
-3
8
4
8
1
9
3
3
-3
7
0
C
1
9
3
3
-3
5
D
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
0
6
4
s
_
2
4
_
4
_
2
0
1
6
C
M
Y
K