Fréttablaðið


Fréttablaðið - 25.04.2016, Qupperneq 6

Fréttablaðið - 25.04.2016, Qupperneq 6
HEKLA · Laugavegi 170-174 · Reykjavík · sími 590 5000 · hekla.is · umboðsmenn um land allt: Höldur Akureyri · Bílasala Selfoss · Bílás Akranesi · HEKLA Reykjanesbæ · Heklusalurinn Ísafirði www.volkswagen.is Við kynnum til leiks fjórðu kynslóð af vinsælasta atvinnubíl á Íslandi undanfarin ár. Enn meiri staðalbúnaður, aukið öryggi og öflugri vélar eru aðeins nokkur atriði sem gera hinn nýja Caddy svo aðlaðandi. Nú kemur Caddy líka í fimm og sjö manna fjölskylduútfærslu með nálgunarvara og loftpúðum fyrir ökumanns- og farþegarými. Nýr Volkswagen Caddy kostar frá 2.670.000 kr. (2.135.226 kr. án vsk) Góður vinnufélagi www.volkswagen.is AtvinnubílarHEKLA býður gott úrval atvinnubíla og góða þjónustu. Nýr Volkswagen Caddy Umhverfismál „Það væri rosalega gott fyrir jörðina ef við myndum bara hætta að lifa. En það er kannski ekki alveg svarið sem við erum að leita að,“ segir Sigurður Eyberg Jóhannes- son sem frumsýndi í síðustu viku heimildarmynd sína Maðurinn sem minnkaði vistsporið sitt. Myndin fjallar um tilraun Sigurðar til að lifa sjálfbæru lífi í ósjálfbæru samfélagi. Þar reynir Sigurður að ná neyslu sinni inn fyrir mörk sjálfbærni, eins og þau eru skilgreind af aðferða- fræði vistsporsmælinga. „Akútvandinn í dag er koldíoxíð- losun okkar. Hún er ekki bara úr bílunum okkar, hún er í nánast allri framleiðslu sem fer fram í heiminum, allt okkar hagkerfi er keyrt á olíu. Það er stóra vandamálið sem við þurfum að leysa núna,“ segir Sigurður. „Vistspor heimsins fer stækkandi,“ segir Brynhildur Davíðsdóttir, nýr formaður stjórnar Orkuveitunnar. „Ríkari lönd heimsins þurfa að vinna betur að því að minnka vistspor sitt svo lönd með minna vistspor geti aukið lífsgæði.“ Ísland á aðild að samkomulagi sem náðist í París í desember um hertar aðgerðir í loftslagsmálum. Í pallborðsumræðum eftir sýningu myndar Sigurðar var rætt hvað Íslendingar gætu lagt af mörkum. Ragnheiður Elín Árnadóttir, iðn- aðar- og viðskiptaráðherra, sagði að fyrir þinglok yrði lögð fyrir þings- ályktun um orkuskipti í samgöngum og markmið þeirra lögð fyrir. Enn fremur að fjármagn hefði verið sett til hliðar, í tengslum við loftslags- ráðstefnuna í París, sem lagt yrði í uppbyggingu innviða, til dæmis raf- bílavæðingu. Eins sé verið að vinna að stórum hugmyndum víða í geir- anum varðandi fiskiskipaflotann og orkuskipti þar. Sigurður segir neyslu stóran hluta vandans. „Allt þetta dót sem við erum alltaf að fylla húsið okkar með og fara svo með á haugana, þetta er allt framleitt með olíu og hefur stórt kolefnisspor. Fyrst og fremst snýst þetta um að draga úr neyslu,“ segir segir Sigurður Eyberg Jóhannesson. stefania@frettabladid.is Best fyrir jörðina ef við hættum að lifa Loftslagsmál hafa verið ofarlega í umræðunni undanfarið en Ísland skrifaði undir samkomulag um hertar aðgerðir í loftslagsmálum. Einnig er unnið að þingsályktun um orkuskipti í samgöngum, segir Ragnheiður Elín Árnadóttir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra. Samningi um fríverslun mótmælt Þessir mótmælendur í Hannover í gervi Angelu Merkel Þýskalandskanslara og Baracks Obama Bandaríkjaforseta voru meðal þúsunda sem í gær mótmæltu í borgum Þýskalands fyrirhuguðum fríverslunarsamningi milli Bandaríkjanna og Evrópusambandsins, TIPP. Nordicphotos/AFp Allt þetta dót sem við erum alltaf að fylla húsið okkar með og fara svo með á haugana, þetta er allt framleitt með olíu og hefur stórt kolefnisspor. Sigurður Eyberg Jóhannesson Bandaríkin Bernie Sanders, sem sækist eftir útnefningu demókrata til forsetaframboðs í Bandaríkjunum, setur spurningarmerki við lögmæti sígaretta. „Sígarettur valda krabbameini, augljóslega, og tugum annarra sjúk- dóma. Maður spyr sig hvers vegna þetta sé lögleg vara í okkar landi,“ sagði Sanders í viðtali hjá NBC í gær. Umræðurnar spruttu úr tali hans um skatt á sykraða drykki. Sanders lýsti sig andvígan skattinum þar sem hann myndi þýða að lágtekjufólk greiddi hærri skatta. Demókratinn Hillary Clinton hefur nokkurt forskot á Sanders. Clinton hefur stuðning 1.446 fulltrúa en Sand- ers 1.200. Alls þarf 2.383 til að tryggja sér útnefninguna. Næst er kosið í Pennsylvaníu. Sam- kvæmt nýjustu skoðanakönnun NBC mælist Clinton með um 55 prósenta fylgi en Sanders 40 prósenta. – þea Spyr sig um lögmæti sígarettna Sígarettur valda krabbameini, augljóslega, og tugum annarra sjúkdóma. Maður spyr sig hvers vegna þetta sé lögleg vara í okkar landi. Bernie Sanders, öldungadeildar- þingmaður 2 5 . a p r í l 2 0 1 6 m á n U d a G U r6 f r é t t i r ∙ f r é t t a B l a ð i ð 2 5 -0 4 -2 0 1 6 0 4 :3 0 F B 0 6 4 s _ P 0 5 9 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 5 4 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 0 6 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 1 1 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 9 3 3 -4 D 4 4 1 9 3 3 -4 C 0 8 1 9 3 3 -4 A C C 1 9 3 3 -4 9 9 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 B F B 0 6 4 s _ 2 4 _ 4 _ 2 0 1 6 C M Y K
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.