Fréttablaðið - 25.04.2016, Síða 20
Það er í raun stór-
brotið að geta nýtt
eldvirk svæði á Íslandi til
þess að framleiða heitt
vatn og rafmagn. Að
geta sótt þann kraft sem
býr í jörðinni fyrir neðan
okkur hljómar í eyrum
margra eins og vísinda-
skáldsaga eða fjarlæg
framtíðarsýn þegar stað-
reyndin er að Íslendingar
hafa nýtt sér þessa
orkulind með góðum
árangri í áratugi.
Marta Rós Karlsdóttir
Íslendingar hafa verið í farar-
broddi jarðhitanýtingar um langt
árabil. Engin þjóð sækir jafn stór-
an hluta orkunotkunar sinnar í
varmann í iðrum jarðar. Ávinn-
ingurinn fyrir almenning liggur
hvort tveggja í ódýrri húshitun
og rafmagni og þeim umhverfis-
lega ávinningi sem jarðhitanýting-
unni fylgir umfram nýtingu jarð-
efnaeldsneytis. Lagning hitaveitu
í Reykjavík var bylting, sem skil-
aði sér í auknum lífsgæðum; minni
mengun, bættu heilsufari, sparn-
aði við húshitun og minnkun á
losun gróðurhúsalofttegunda. Í
seinni tíð hófst einnig framleiðsla
rafmagns í virkjunum á háhita-
svæðum sem skila áreiðanlegri og
stöðugri framleiðslu rafmagns, og
svala nú um þriðjungi af raforku-
þörf fyrirtækja og almennings í
landinu.
Jarðhitanýtingunni hafa fylgt
bæði tækifæri og áskoranir. Hvað
eftir annað í um 100 ára tækniþró-
unarsögu jarðhitanýtingar hér á
landi hafa komið upp nýjar áskor-
anir fyrir vísinda- og tæknifólk að
ráða fram úr.
Eins og vísindaskáldsaga fyrir
sumum
Verkfræðingurinn Marta Rós
Karlsdóttir er forstöðumaður Auð-
linda hjá Orku náttúrunnar. Eitt af
viðfangsefnum hennar er að vinna
að aukinni sjálfbærni jarðhitanýt-
ingar fyrirtækisins á Hengils-
svæðinu þar sem ON rekur tvær
stærstu jarðvarmavirkjanir lands-
ins, Nesjavallavirkjun og Hellis-
heiðarvirkjun. Í sjálfbærninni
felst að reksturinn standist um-
hverfiskröfur, hann þarf að bera
sig fjárhagslega og starfsemin
verður að vera í sátt við samfé-
lagið sem hann þjónar. Það er því
í mörg horn að líta í vinnunni hjá
Mörtu Rós.
„Það er í raun stórbrotið að geta
nýtt eldvirk svæði á Íslandi til
þess að framleiða heitt vatn og raf-
magn,“ segir Marta Rós. „Að geta
sótt þann kraft sem býr í jörðinni
fyrir neðan okkur hljómar í eyrum
margra líkt og vísindaskáldsaga
eða fjarlæg framtíðarsýn þegar
staðreyndin er að Íslendingar
hafa nýtt sér þessa orkulind með
góðum árangri í áratugi. Íslend-
ingar eru þar meðal frumkvöðla.
Þessu fylgir að við höfum bæði
uppgötvað kosti og einnig áskor-
anir jarðhitanýtingar á undan
öðrum og þurft að sinna nýsköpun
og tækniframförum á eigin spýtur.
Það hefur skilað okkur miklu og sú
þekking sem býr í sérfræðingum
okkar í jarðhitatækni og auðlinda-
nýtingu er afar verðmæt. Þær
áskoranir sem við stöndum helst
frammi fyrir nú eru brennisteins-
vetni, skjálftavirkni og sú eilífa
jafnvægislist sem sjálfbær nýt-
ing auðlindarinnar er. Orka nátt-
úrunnar hefur tekist á við þessar
áskoranir af festu,“ segir Marta
Rós og rekur nánar hvað hún á við.
Áskoranir leiða til alþjóðlegrar
nýsköpunar og þróunar
Nýtingu jarðhitans fylgir losun
jarðhitalofttegunda, sérstaklega
á háhitasvæðum. Hvimleiðasta
lofttegundin er brennisteinsvetn-
ið, sem fylgir óþægileg hveralykt.
Eftir að rekstur Hellisheiðar-
virkjunar hófst árið 2006 fór að
bera á umkvörtunum vegna auk-
ins styrks brennisteinsvetnis.
„Árið 2011 lýstum við því yfir að
brennisteinsvetnið væri stærsti
umhverfisvandi sem við ættum
við að glíma,“ segir Marta Rós og
rifjar upp að sú skoðun hafi verið
uppi að fyrirtækið ætti að leysa
vandann með hefðbundnum iðn-
aðarlausnum. „Við þrjóskuðumst
við og bentum á að með þeim væri
vandinn eingöngu fluttur til, ekki
leystur. Eftir stæðu haugar brenni-
steins eða tankar af brennisteins-
sýru, sem lítill markaður er fyrir.“
Nýsköpunar- og þróunarverk-
efnið CarbFix, sem felst í bind-
ingu koltvísýrings í hraunlögum
á Hellisheiðinni, hafði komið ON
á spor betri lausnar. Að því höfðu
íslenskir og erlendir vísindamenn
unnið um nokkurra ára skeið. „Vís-
indafólkinu okkar hjá OR og ON
sýndist að hægt væri með sömu
aðferð og þróuð var í Carb Fix –
að leysa lofttegundina upp í vatn
og dæla djúpt niður í berggrunn-
inn – að binda brennisteinsvetn-
ið varan lega ofan í jarðhitageym-
inum, þaðan sem það kom,“ segir
Marta Rós. Skemmst er frá því að
segja að þetta hefur tekist. Árið
2015 var fyrsta heila rekstrar-
ár lofthreinsistöðvar við Hellis-
heiðarvirkjun og nú er verið að
tvöfalda afköst hennar. Þúsund-
ir tonna af brennisteinsvetni og
raunar koltvísýringi líka hafa nú
verið bundin í berglögunum við
Hellisheiðarvirkjun í formi glópa-
gulls og kalsíts, og hefur aðferð-
in vakið athygli vísindasamfélags-
ins um allan heim. Loftmælingar
á styrk brennisteinsvetnis í byggð
í grennd við virkjunina sýna líka
að styrkur þess hefur ávallt stað-
ist þau hertu reglugerðamörk sem
sett voru um mitt ár 2014.
Aðrar áskoranir hafa verið í
niðurdælingu, sem síðla árs 2011
fylgdi skjálftavirkni við Hellis-
heiðarvirkjun sem fannst í byggð,
þá sérstaklega í Hveragerði. Marta
Rós og jarðhitasérfræðingar ON
og OR hafa unnið að því í samráði
við sveitarstjórnir, jarðvísinda-
fólk Veðurstofunnar og Almanna-
varnir að þróa verklag við niður-
dælinguna til að draga úr hættu á
skjálftum. „Skemmst er frá því að
segja að frá því við tókum upp nýja
verklagið hafa ekki orðið skjálft-
ar sem fundist hafa í byggð, þótt
við höfum þó nokkrum sinnum
varað við því að þeir gætu orðið.
Við munum því áfram fylgja verk-
laginu fast eftir og reka svæðið
með þeirri varúð sem það heimt-
ir,“ segir Marta Rós.
Tækifærin fram undan
Orka náttúrunnar skrifaði undir
loftslagsyfirlýsingu Festu og
Reykjavíkurborgar veturinn
2015 í aðdraganda Parísarfund-
arins fræga þar sem biðlað var
til leiðtoga heims að leggja allt
sitt af mörkum til að sporna við
hlýnun jarðar. Þótt losun gróður-
húsalofttegunda sé tiltölulega lítil
frá jarðhitavirkjunum og nýting
endur nýjanlegra orkulinda líkt og
jarðvarmans sé áríðandi, vill ON
leggja sitt af mörkum í þeirri bar-
áttu. Eru þar margvíslegar lausn-
ir í sjónmáli.
Nú stefnir ON einnig að fjölnýt-
ingu á þeim efnisstraumum sem
frá jarðhitaauðlindunum koma og
skapa þannig fjölbreyttari verð-
mæti. Slík fjölnýting þekkist vel
til dæmis á Reykjanesskaga þar
sem blómleg fyrirtæki hafa risið
við hlið orkuframleiðslunnar.
Að takast á við áskoranir og
sjá tækifæri í þeim hefur skilað
jarðhitasamfélaginu miklu virði
í formi þekkingar, nýsköpunar
og þróunar og mun stuðla að því
að jarðhitanýting á Íslandi verði
áfram í fararbroddi í heiminum.
Íslenskir jarðhitasérfræðingar
munu halda áfram að deila þekk-
ingu sinni með starfssystkinum
sínum víða um heim svo aðrir njóti
góðs af þeim mikilvægu verkefn-
um sem unnið er að hér á landi.
Áskoranir og tækifæri í jarðhitanýtingu
Orka náttúrunnar rekur tvær stærstu jarðvarmavirkjanir landsins, Nesjavallavirkjun og Hellisheiðarvirkjun á Hengilssvæðinu. Þekking,
nýsköpun og þróun í nýtingu jarðvarma er lykillinn að sjálfbærri nýtingu auðlindarinnar.
Marta Rós Karlsdóttir, forstöðumaður
Auðlinda hjá Orku náttúrunnar.
MYND/PJETUR
Háhitaholur á Hengilssvæðinu sækja gufu og vatn úr jarðhitageyminum svo hægt
sé að framleiða bæði rafmagn og heitt vatn. Úr holunum koma einnig jarðhitaloft-
tegundir sem ON hyggst þróa aðferðir við að nýta til frekari verðmætasköpunar.
ON rekur net hraðhleðslustöðva til að styðja við bílaeigendur sem kjósa í
síauknum mæli að ferðast um á rafbíl og ýta undir þróun rafbílanotkunar á Íslandi.
Einnig hefur fyrirtækið sett sér markmið í notkun rafbíla í starfsemi sinni.
Hjá ON starfar fjölbreyttur hópur starfsfólks og mikil áhersla er lögð á jafnréttismál. Á sumrin ganga sumarstarfsmenn til
liðs við fyrirtækið og sinna mörgum mikilvægum verkefnum, svo sem landgræðslu, tækniverkefnum og öðrum sérhæfðum
störfum.
AðgErðir ON í
lOfTslAgsmÁlum
l Hraðhleðslustöðvar sem stuðla að umhverfisvænni samgöngum.
l Rafbílavæðing eigin bílaflota.
l Jarðhitaboranir með rafmagni í stað olíu.
l Viðgerðir á hverflum heimafyrir í stað þess að senda til útlanda.
l Endurheimt staðargróðurs á virkjanasvæðum.
6 ÍslENsKi JARðvARMAKlAsiNN Kynningarblað25. apríl 2016
2
5
-0
4
-2
0
1
6
0
4
:3
0
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
9
3
3
-4
3
6
4
1
9
3
3
-4
2
2
8
1
9
3
3
-4
0
E
C
1
9
3
3
-3
F
B
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
B
F
B
0
6
4
s
_
2
4
_
4
_
2
0
1
6
C
M
Y
K