Fréttablaðið - 25.04.2016, Blaðsíða 50
Íslenski orkuháskólinn í Háskól-
anum í Reykjavík býður upp á fjöl-
breytt úrval námskeiða og náms-
leiða á meistarastigi en einn-
ig fyrir sérfræðinga í greininni.
„Auk Háskólans í Reykjavík standa
Orkuveita Reykjavíkur og Íslensk-
ar orkurannsóknir að náminu. Aðrir
samstarfsaðilar eru t.d. Landsvirkj-
un, Green Energy Group, Arctic
Circle, íslenskar verkfræðistofur og
ýmis samtök í geiranum. Einnig er
lögð rík áhersla á erlent samstarf til
dæmis við háskóla á borð við Har-
vard og Tufts í Bandaríkjunum og
Tinajin háskóla í Kína,“ segir Halla
Hrund Logadóttir, framkvæmda-
stjóri námsins.
Yfir 90% nemenda Íslenska
orkuháskólans koma að utan. Þau
Dagur Helgason, Fritz Steingrube
og Viviana Leon Rincon hafa öll
stundað nám í skólanum frá því í
haust. Dagur lauk efnaverkfræði
frá HÍ fyrir tveimur árum. Hann
var ákveðinn í því að fara í eitthvert
nám tengt orkuiðnaði og jarðhita.
„Ég leitaði víða um heim en datt svo
niður á Íslenska orkuháskólann sem
passaði fullkomlega við það sem ég
var að hugsa. Þar er fókuserað á
jarðhitann sem er mitt helsta áhuga-
svið,“ segir Dagur. Honum líkar
námið mjög vel. „Hér hefur maður
góða tengingu við fagaðila og við
höfum til dæmis unnið mikið með
Íslenskum orkurannsóknum. Þá er
námið mjög persónulegt, við höfum
greiðan aðgang að kennurunum og
mörgu góðu fagfólki.“
Fritz kom úr allt annarri átt en
Dagur, hafði stundað nám í stjórn-
málafræði og félagsvísindum í
Þýskalandi. Hann segir því margt
hafa verið nýtt fyrir sér og mikið
sem hann þurfti að læra á stuttum
tíma. „Mig langaði að gera eitthvað
sem tengdist endurnýjanlegri orku.
Ég leitaði víða en námið í HR var
það þar sem mest áhersla var lögð
á orkumálin meðan aðrar námsleið-
ir voru meira almennt á sviði um-
hverfismála,“ segir hann.
Viviana lærði orkufræði í heima-
landinu Brasilíu. „Mér líkaði vel
nálgunin í íslenska náminu. Þar er
ekki aðeins kennd hugmyndafræð-
in eins og víða heldur fáum við góða
innsýn í tæknilegu hliðina,“ segir
Viviana sem vonast til að nýta þekk-
ingu sína til að vinna að orkumál-
um í Suður-Ameríku en hún segir
tækifærin í endurnýjanlegri orku í
heimsálfunni mikil.
Halla segir mikinn vöxt hafa
verið í aðsókn undanfarin ár, og
hefur nemendafjöldi meira en fjór-
faldast. „Nýting endurnýjanlegrar
orku er eitt af mikilvægustu við-
fangsefnum mannkynsins í dag.
Námið tekur á tæknilegum og
efnahagslegum þáttum nýtingar
orku, en umhverfismál skipa líka
stóran sess í starfsemi Íslenska
orkuháskólans,“ lýsir Halla.
Nánari upplýsingar um Íslenska
orkuháskólann má finna á
www.en.ru.is/ise
Hér hefur maður góða tengingu við fagaðila
og við höfum til dæmis unnið mikið með
Íslenskum orkurannsóknum. Þá er námið mjög
persónulegt, við höfum greiðan aðgang að kennur-
unum og mörgu góðu fagfólki.
Dagur Helgason, meistaranemi
Íslenski orkuháskólinn
Markmið Íslenska orkuháskólans í HR er að mennta sérfræðinga framtíðarinnar á sviði endurnýjanlegrar orku. Þau Fritz frá Þýskalandi,
Viviana frá Brasilíu og Dagur frá Íslandi hafa góða reynslu af náminu. Þau eru ánægð með þá tengingu sem það hefur við orkuiðnaðinn.
Hér eru meistaranemarnir Fritz Steingrube, Dagur Helgason og Viviana Leon Rincon með Höllu Hrund Logadóttur, fram-
kvæmdastjóra Íslenska orkuháskólans. MyND/PjetuR
Ingvar Magnússon vélvirki til vinstri ásamt Frímanni Grímssyni.
Fyrir nokkru tók fyrirtækið að
sér verkefni í viðgerðum á rótor-
um í gufuhverfla sem gerði kröf-
ur um fullkomnari mælitæki og
búnað. Í framhaldi af því var fjár-
fest í mæliarmi sem getur mælt
með tvenns konar hætti, próp eða
3D skanna.
Própinn og skanninn henta vel
til að mæla reglulega hluti með
mikilli nákvæmni, óháð stærð
hlutarins sem mæla á. Skanninn
hefur það fram yfir própinn að
hann getur mælt nánast allt, sama
hvernig lögun hlutarins er. Hægt
er að ferðast með arminn og stað-
setja hann nánast hvar sem er.
Nú fyrir skemmstu var tekið
í notkun nýtt úrvinnsluforrit til
hönnunar og gæðaskoðunar. Þá
er hægt er að taka gögnin sem
skanninn gefur og breyta þeim
yfir í gegnheilt líkan (e. solid
model) sem gefur kost á að búa til
fullkomnar teikningar eða skrár
sem hægt er að láta 3D prenta
eða vinna með öðrum hætti. Deil-
ir sinnir miklu af gæðaskoðunum
(e. quality inspection) og þá með
þeim hætti að fylgjast með sliti á
vélarhlutum, nýjum sem gömlum,
og út frá þeim gögnum eru teknar
ákvarðanir um hvort hlutirnir eru
í lagi eða ekki.
Deilir bíður þar með upp á einn
öflugasta búnað sem í boði er í aft-
urvirkri hönnun (e. reverse eng-
ineering) í heiminum, þetta hefur
ekki verið í boði á opnum markaði
hjá íslensku fyrirtæki fyrr enn
nú. Hingað til hefur Deilir ekki
verið að nota þennan búnað fyrir
utan starfstöð fyrirtækisins en
möguleiki er á að nota búnaðinn á
öðrum sviðum atvinnulífsins þar
sem unnið er með form og hönnun.
ef áhugi er fyrir frekari upplýsing-
um er hægt að senda fyrirspurn á
netfangið ingvar@deilir.is.
Nýjung í mæli-
og hönnunarvinnu
Fyrirtækið Deilir technical Services hefur verið starfandi frá árinu 1998 og hefur
síðustu ár starfað í jarðorkuverum í viðgerðum á gufuhverflum og íhlutum
tengdum því. Hjá fyrirtækinu starfa eingöngu sérfræðingar í viðhaldi og
endurbótum á vélbúnaði tengdum jarðorkuverum.
Vöxtur ferðaþjónustu á Íslandi
hefur sennilega ekki farið fram
hjá neinum og horfir nú í enn eitt
metárið hvað varðar fjölda ferða-
manna sem sækja landið heim.
Hefur þessi þróun meðal annars
breytt landslagi margra fyrir-
tækja, skapað ný störf, þekkingu
og þróun í atvinnugrein sem stend-
ur nú undir meira en þriðjungi af
gjaldeyristekjum þjóðarinnar.
En hvers vegna hafa ferðamenn
svona mikinn áhuga á Íslandi og
er líklegt að þessi þróun haldi
áfram á komandi árum? „Þegar
Ferðamálastofa spyr ferðamenn
um ástæðu heimsóknar til Íslands
eru yfir 80 prósent svarenda sem
segja að aðdráttarafl náttúrunn-
ar sé helsta ástæða þess að þau
komi til landsins. Talið er að um
90 prósent þeirra sem koma til Ís-
lands heimsæki ýmist Bláa lónið,
Jarðböðin, heita uppsprettuhveri
eða fjöldann allan af sundlaug-
um víðsvegar um landið. Það er
því auðveldlega hægt að segja
að ferðamaðurinn upplifi orku-
tengda afþreyingu í yfirgnæfandi
meirihluta og hugnist það afskap-
lega vel,“ segir Ásta Kristín Sig-
urjónsdóttir, klasastjóri Íslenska
ferðaklasans. „Það má því segja
að þessar atvinnugreinar, orka og
ferðaþjónusta, séu löngu farnar að
vinna saman og að samspil þeirra
hafi verið óhjákvæmilegt."
Ásta segir það hins vegar oft
vilja gerast að þessum atvinnu-
greinum sé stillt upp hver á móti
annarri eins og það sé ákveðið
náttúrulögmál. „Tækifæri í mark-
vissri samvinnu eru hins vegar
óþrjótandi. Þannig getur samspil
þessara tveggja greina lagt grunn-
inn að enn frekari afþreyingar-
möguleikum, skýrari ímyndar-
sköpun og aukinni verðmætasköp-
un. Með uppbyggingu og kynningu
á sjálfbærum samfélögum á Ís-
landi höldum við sérstöðu okkar
sem land endurnýjanlegra orku-
gjafa sem verður eftirsóknarvert
að sækja heim um ókomin ár.“
Ásta Kristín kallar eftir því að
fólk sé óhrætt við samtalið. „Öll
þróun og uppbygging í ferðaþjón-
ustu sem og öðrum atvinnugrein-
um á Íslandi stendur og fellur með
því hversu vel okkur tekst að vinna
úr tækifærunum sem landið okkar
gefur af sér.“
Samspil orku og
ferðaþjónustu
„Ferðamaðurinn upplifir orkutengda
afþreyingu í yfirgnæfandi meirihluta
og hugnast það afskaplega vel,“ segir
Ásta Kristín Sigurjónsdóttir.
tækifæri í markvissri
samvinnu eru hins vegar
óþrjótandi. Þannig getur
samspil þessara tveggja
greina lagt grunninn að
enn frekari afþreyingar-
möguleikum, skýrari
ímyndarsköpun og
aukinni verðmæta-
sköpun.
Ásta Kristín Sigurjónsdóttir
Nú fyrir skemmstu
var tekið í notkun nýtt
úrvinnsluforrit til hönn-
unar og gæðaskoðunar.
Ingvar Magnússon
jaRðVaRMaKLaSINN Kynningarblað
25. apríl 201620
2
5
-0
4
-2
0
1
6
0
4
:3
0
F
B
0
6
4
s
_
P
0
6
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
9
3
3
-2
5
C
4
1
9
3
3
-2
4
8
8
1
9
3
3
-2
3
4
C
1
9
3
3
-2
2
1
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
0
6
4
s
_
2
4
_
4
_
2
0
1
6
C
M
Y
K