Vestfirska fréttablaðið - 13.09.1978, Blaðsíða 13
/jp-a*
Sjónvarp í
,,Hótel Grænuhlíð”
í bígerð er að setja upp
nýjan sjónvarpssendi á
Arnarnesi, en hann á að
þjóna aðallega þeim skipa-
flota, sem í vondum veðr-
um liggur í vari undir
Grænuhlíð. Koma sjó-
menn því til með að geta
notið þess sem sjónvarpið
hefur upp á að bjóða, á
leið til og frá landi og í
varalegum undir „hótel
Grænuhlíð“.
Að sögn Haraldar Sig-
urðssonar yfirverkfræðings
hjá Pósti og síma, er nú
búið að panta sendinn og
kemur hann frá Frakk-
landi nú í haust. Er hann
fyrir lit eins og allir aðrir
sjónvarpssendar hér á
landi. Sendirinn sem fyrir
er á Arnarnesi stendur þó
fyrir sínu, en hann þjónar
byggðinni við Skutulsfjörð,
Hnífsdal og Bolungarvík.
Þegar nýi sendirinn verður
kominn í gagnið, sem væn-
tanlega verður upp úr ára-
mótum, verður hann, að
viðbættum þeim gamla,
samtals 1000 vött. Sá
gamli er aðeins eitt vatt,
en styrkleikamunurinn er
þó ekki eins mikill og töl-
urnar segja til um. Ættu
viðtökuskilyrði samt að
batna hjá þeim fáu, þar
sem styrkur er í lægri
mörkum. ss.
[ síðustu viku var unnið að
fullum krafti við að setja upp
ný og fullkomin aðflugstæki í
ögurhólma. Að sögn Guð-
björns Charlessonar, er með
uppsetningu tækjanna fyrst
og fremst stefnt að auknu ör-
yggi í flugi. Reynslan verður
síðan að leiða í Ijós hvort
flugdögum til ísafjarðar fjölg-
ar eða ekki, en eins og kunn-
ugt er, er oft ekki hægt að
fljúga til ísafjarðar marga
daga í einu vegna óhag-
stæðra veðurskilyrða, sér-
staklega yfir vetrartímann.
Starfsmenn Flugmálastjórnar
vinna við uppsetningu tækj-
anna, sem er á lokastigi. Má
búast við að þau verði tekin í
notkun innan tveggja vikna.
ss.
Ný og fullkomin
aðflugstæki í
Ögurhólmum
Á myndinni sést gamli flug-
radarinn í Hnífsdal.
13
PÍPULAGNIR
GETUM BÆTT VIÐ OKKUR
NEMUM í PfPULAGNIR
Þá höfum við einnig störf
fyrir pípulagningamenn og
menn vana pípulögnum.
Fjarðarstræti 16, sími 3298
Fegursti garðurinn
fannst ekki
Á aðalfundi Garðyrkjufé-
lags Isafjarðar var kosin
nefnd til þess að velja feg-
ursta skrúðgarð í eigu fé-
lagsmanna. Nefndin hefur
nú lokið störfum. Niður-
staða nefndarmanna varð
sú, að skrúðgarðaræktun
væri yfirleitt of skammt á
veg komin til þess að hægt
væri að velja fegursta garð-
inn. Var því ákveðið að
velja úr þeim görðum, sem
uppfylltu viss skilyrði. Þ.e.
væru vel skipulagðir, hefðu
fallega umgjörð og væru
miðaðir við notkun fólks,
t.d. með leiktæki fyrir
börn.
Valdi nefndin úr nokkra
garða, sem til greina
komu. Var síðan farið í þá
garða aftur, og valdir úr
fjórir garðar, sem allir
hljóta viðurkenningu.
Taldi nefndin að þessi
vinnubrögð myndu verka
meira hvetjandi fyrir garð-
eigendur, en að velja einn
garð til verðlauna.
Viðurkenningarskjöl
verða afhent á kaffifundi
félagsins á morgun í Al-
þýðuhúskjallaranum.
Þessir áttu sæti í nefnd-
inni: Bjarney Ölafsdóttir,
Margrét Jónsdóttir, Krist-
inn Jón Jónsson og for-
maður félagsins, Asthildur
Þórðardóttir.
Þ.Á.
LAUS STAÐA
Staða póstafgreiðslumanns við póst-
húsið á ísafirði er laus nú þegar.
Laun samkvæmt launakjörum opin-
berra starfsmanna.
UPPLÝSINGAR GEFUR
STÖÐVARSTJÓRI.
Póstur og sími, ísafirði
Vestfirðingar-ísfirðingar
Athugið að fyrsta flokks svefnpokapláss,
með góðri eldunar- og hreinlætisaðstöðu,
er leigt út að
BÆ, REYKHÓLASVEIT
SÍMSTÖÐ KRÓKSFJARÐARNES.
Ljónið s.f. auglýsir
Við áformum að opna vörumarkað á Skeiði, með ýmsum vöruflokkum
um miðjan nóvember n.k.
Okkur vantar starfsfólk til allskonar starfa, bæði fastráðið fólk og
eins í störf hluta úr degi og hluta úr viku.
Nýr vinnustaður mörg áhugaverð störf! f
Leitið nánari upplýsinga í Ljóninu hjá
Heiðari í síma 3072 eða á staðnum.
Ljónið s.f.