Málfríður - 15.03.2015, Síða 8

Málfríður - 15.03.2015, Síða 8
Nú þegar hefur FB boðið upp á þó nokkuð marga samþætta áfanga, með góðum árangri. Það hefur meðal annars verið samstarf milli dönsku og sögu, dönsku og líffræði og spænsku og félagsfræði, gjarnan í tengslum við erlent samstarf. Þessu mun verða haldið áfram og það hafa bæst við tillögur um t.d. samþættingu tungu- mála og listgreina eða jafnvel milli tungumálanna sjálfra. Það felast mörg tækifæri í því að samþætta áfanga og bjóða upp á meiri fjölbreytni í námsvali. Áfangar í þýsku og spænsku voru fyrir þriggja ein- inga áfangar, svo það að breyta þeim í fimm framhald- skólaeiningar var ekki stórt stökk. Á bóknámsbrautum er gert ráð fyrir að nemandi taki fimmtán framhalds- skólaeiningar í þriðja tungumálinu sem er skerðing um einn áfanga. Þessir áfangar verða allir kenndir á fyrsta þrepi. Á hugvísindabraut bætist við einn áfangi á öðru þrepi í þriðja tungumáli og fjórða tungumálið bætist við, en þar er gert ráð fyrir þremur áföngum á fyrsta þrepi. Mat Í öllum tungumálum er vissulega skerðing miðað við hvernig fyrirkomulagið var í gamla kerfinu og margir kennarar eru uggandi. En á næsta skólaári mun vera nóg að gera því yfirfærslan frá gömlu námskránni til þeirrar nýju mun taka að minnsta kosti þetta skólaár. Í haust verða einungis kenndir grunnáfangarnir sam- kvæmt nýrri námskrá því eldri nemendur halda áfram að fylgja þeim brautum sem þeir byrjuðu á. Það er hægt að líta á þessa skerðingu sem vandamál en hér líka tækifæri til að fara nýjar leiðir, til dæmis að sam- þætta áfanga, búa til valáfanga og svo er alltaf tækifæri í erlendu samstarfi þegar tungumál eru annars vegar. eininga, en með sex kennslustundir á viku. Í nýju áföngunum er hins vegar farin sú leið að bjóða einung- is upp á fimm framhaldsskólaeininga áfanga, þannig að þeir eru stærri en áður var. Eitt af rökunum fyrir því að hægt væri að stytta nám til stúdentsprófs var sú að fyrstu áfangar í ensku, dönsku, stærðfræði og íslensku í framhaldsskóla hefðu í raun þegar verið kenndir í grunnskóla og ættu nemendur því að koma beint inn í framhaldsáfangana, það er að segja samkvæmt nýju skilgreiningunum á öðru þrepi. Þar af leiðandi mætti segja að kennsla í viðkomandi fögum ætti að skerðast um það sem því nemur. Hins vegar má gera ráð fyrir að hluti nemenda sem koma inn í framhaldsskóla hafi ekki staðist þær kröfur sem skólarnir setja sér til að hleypa nemendum beint inn á annað þrep svo það verður að bjóða upp á þessa áfanga á fyrsta þrepi eftir sem áður. FB er þar að auki með framhaldsskólabraut þar sem undirbúningsáfangar eru í boði, einmitt í þessum greinum. Eftir að nemendur hafa lokið þeim er einn áfangi í viðbót á fyrsta þrepi sem þeir þurfa að taka áður en þeir komast inn á annað þrep. Þegar skoðaðar voru forkröfur Háskóla Íslands um dönskukunnáttu til að komast inn í dönskudeildina var ákveðið að gera áfangalýsingu á dönskuáfanga á þriðja þrepi sem valáfanga eða hluti af bundna valinu á hugvísinda- braut. Um er að ræða áfanga sem er fremur opinn og getur kenn- ari stjórnað viðfangs- efninu svo lengi sem kröfum þrepsins er mætt. 8 MÁLFRÍÐUR Fjölbrautaskólinn í Breiðholti. Húsasmiðanemar í FB.

x

Málfríður

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Málfríður
https://timarit.is/publication/1081

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.