Málfríður - 15.03.2015, Blaðsíða 9

Málfríður - 15.03.2015, Blaðsíða 9
„Það er tvennt sem við þurfum að gefa börn- um okkar – annað er rætur og hitt eru vængir“ Svona hljómar málsháttur indíána sem ég tileinkaði mér snemma á kennaraferli mínum í Danmörku. Orðin fengu rými í lokaritgerð minni og fylgdu mér öll árin sem ég kenndi tungumál og var umsjónarkennari í danska skólakerfinu. Þau hafa einnig fengið mikið vægi á nýjum stað og í nýju starfi hér á Íslandi, á sviði fjöltyngis og fjölmenningar hjá Borgarbókasafni Reykjavíkur. Hugmyndin að baki þessari grein er að hugleiða samhengið á milli þessa málsháttar indíán- anna og tungumála. Tungumál eru rætur okkar og vængir hvort sem um er að ræða móðurmál eða önnur mál sem við tileinkum okkur. Í móðurmálinu finnum við rætur sjálfsmyndar- innar og þau erlendu mál sem við lærum gefa okkur vængi og skapa meðal annars tengsl okkar og sam- skipti við heiminn. En svo er líka hægt að hugsa þetta á hinn veginn því ný tungumál gefa okkur nýjar rætur á meðan góð tök á móðurmálinu geta fleygt huganum hvert sem hann vill fara, langt út fyrir heimsins höf. Nokkrir fastir dagskrárliðir í fjölmenningarstarfi okkar á bókasafninu eru Evrópski tungumáladagurinn í september og Alþjóðadagur móðurmálsins sem við höldum hátíðlegan í febrúar á hverju ári með pompi og prakt. Slíkir hátíðisdagar veita kærkomið tækifæri til að vekja athygli á mikilvægi tungumála ásamt tungu- málaforða fjöltyngdra borgarbúa. Með verkefnum eins og Café Lingua, Menningarmóti og Reykjavík safarí, sem er árleg menningarleiðsögn fyrir innflytjendur á ólíkum tungumálum, virkjum við tungumál borgarbúa og vinnum markvisst að því í samstarfi við ýmsa aðila að varpa ljósi á það ríkidæmi sem fólgið er í fjöltyngi og mikilvægi þess að fagna ekki aðeins hinum alþjóð- legu dögum tungumála. Við þurfum að fagna fjölbreytileika tungumála og örva móðurmál og tungumálakunnáttu barna og ung- menna á hverjum degi, sama hvort uppruni þeirra er íslenskur eða á rætur sínar að rekja til annarra breiddar- gráða. Það skiptir máli að rífa ekki manneskjur upp með rótum þegar þær breiða út vængina og flytja á milli landa. Stundum gleymum við að þeir sem flytja til Íslands, hvort sem um er að ræða svokallaða „snúbúa“, þ.e. Íslendingar sem snúa aftur heim, eða „nýbúa“ sem koma hingað með lífsreynslu að þeim fylgja sögur, lífs- hættir og tungumál sem geta auðgað samfélagið. Af hverju rætur og vængir? Þessi hugtök skipta máli í lífi einstaklings og fyrir þróun sjálfsmyndar. Það er hlutverk foreldra, kennara og allra sem vinna á sviði menntunar og menningar að hjálpa unga fólk- inu að tengjast rótum sínum og það er á sama tíma stórmerkileg áskorun að skapa þeim möguleika á að eignast sína eigin vængi. Meðvitund um hvaðan maður kemur, saga manns og uppruni, er það sem hjálpar manni að finna sinn stað í lífinu — að „eiga heima“, sama hvar maður býr. Engir tveir eru með alveg sömu Vigdís Finnbogadóttir, velgjörðarsendiherra tungumála Sameinuðu þjóðanna, ásamt persneskumælandi Reykvíkingum á Café Lingua. Mynd: Krv. MÁLFRÍÐUR 9 Kristín R. Vilhjálmsdóttir, verkefnastjóri fjölmenningar hjá Borgarbókasafni Reykjavíkur og tungumálakennari. Rætur og vængir – hugleiðingar um gildi tungumála

x

Málfríður

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Málfríður
https://timarit.is/publication/1081

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.