Málfríður - 15.03.2015, Qupperneq 10

Málfríður - 15.03.2015, Qupperneq 10
Það er ekki nóg að vera með sterkar rætur, við þurf- um líka vængi. Vængi sem gefa okkur frelsi og gera okkur kleift að þora að kynnast nýjum slóðum og fara út fyrir þægindarammann. Nýju tungumálin sem við tileinkum okkur víkka vængjahafið og fá okkur til að sjá hlutina frá öðrum sjónarhornum. Manneskja sem hefur vald á mörgum tungumálum er fjársjóður fyrir atvinnulífið. Eitt af því mikilvægasta sem einstaklingar framtíðarinnar þurfa á að halda er nefnilega það að geta verið í góðum samskiptum við aðra, þvert á menningu og tungumál. Með því að efla tungumálakunnáttu og stuðla að mismunandi tjáningarformum í skólalífi nemenda erum við á réttri leið við að mennta skapandi og hugs- andi fólk sem þekkir sjálft sig og skilur umheiminn vel. Með þessu erum við líka að styrkja lýðræðislega og virka þátttöku í samfélaginu þar sem færni í tungu- málum er einmitt mikilvægasta verkfærið. Tungumálin eru hér Í íslensku felast margar áskoranir, það vitum við sem höfum ekki alist upp við íslensku í okkar daglegu lífi. Á hverjum degi hitti ég samt fólk sem hefur lagt það á sig að bæta henni við í fjársjóðskistu tungumálanna. Á hverjum degi heillast ég af því hversu vel hún er töluð meðal heimsborgara sem ég þekki í Reykjavík. Við erum lánsöm að þessir sömu heimsborgarar hafa ratað hingað til lands og ekki síst að þeim fylgir hafsjór af tungumálum. Með verkefni Borgarbókasafns „Cafe Lingua — lif- andi tungumál“ sem er meðal annars unnið í samstarfi við Háskóla Íslands, Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur og Norræna húsið erum við með þrjá til fjóra viðburði ræturnar þó að við getum kannski rakið þær til sömu slóða. Til að skilja aðra þarf að skilja sjálfan sig og til að aðrir skilji mann þarf að hafa gott vald á tungumálinu sínu. Í móðurmálinu uppgötvum við rætur okkar. Það stillir hugann inn á það persónulega og er á sama tíma tæki til að skilja samlanda okkar og eigin menningu. Greinarhöfundur virkjar ungar fjöltyngdar raddir á Café Lingua á Evrópska tungumáladeginum 2014 í Gerðubergi. 10 MÁLFRÍÐUR Nemandi í 5. bekk kynnir finnsku á Menningarmóti Borgarbókasafns. Mynd: Krv.

x

Málfríður

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Málfríður
https://timarit.is/publication/1081

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.