Málfríður - 15.03.2015, Side 12

Málfríður - 15.03.2015, Side 12
Samkvæmt nýrri Aðalnámskrá grunnskóla á Íslandi og í Danmörku er áhersla á færni nemenda og er Jeppe á þeirri skoðun að besta leiðin til náms hjá nemendum sé „projektvinna“, þ.e. þemavinna, sögu- aðferðin, hlutverkaleikir, að greina vanda — finna lausn eða leið til að komast hjá vandanum. Nemendur vinna að ákveðnum verkefnum með kennara sem leiðbeinanda. Þetta búi nemendur undir 21. öldina þar sem kröfur eru gerðar til fólks um tölvulæsi, hæfni til að nema og koma frá sér upplýsingum eftir mismunandi leiðum, skapandi hugsun, samvinnu og samskiptahæfni. Það er greinilegt að Jeppe er fræðimaður með góð tengsl við grunnskólann. Hann lýsti mjög sannfærandi þeirri vinnu sem þetta form krefst af kennaranum en jafnframt hversu ánægjulegt það er að sjá nemendur Nordspråk stóð fyrir námskeiði í Kaupmannahöfn í vor um notkun snjalltækja og smáforrita í kennslu. Undanfarin ár hef ég setið í Nordspråk sem annar af tveimur fulltrúum Félags dönskukennara. Okkar markmið er alltaf að koma með hugmyndir að nám- skeiðum sem nýtast íslenskum dönskukennurum og hafa hag okkar að leiðarljósi í vinnu við önnur nám- skeið enda eru dönskukennarar óþreytandi við að kynna sér nýjungar og duglegir að sækja námskeiðin. Fyrir mörgum árum var haldið Nordspråksnámskeið um notkun farsíma í kennslu og þeir kennarar sem fóru frá Íslandi hafa síðan breitt út boðskapinn og haldið þróunarvinnunni áfram. Það var kveikjan að þessu námskeiði. Tilkoma snjalltækja er bylting sem býður upp á óendanlega möguleika og því var námskeið sem þetta efst á óskalistanum. Ég fékk danskan reynslubolta, Jørn Schmidt, til liðs við mig við skipulagningu nám- skeiðsins og úr því varð Digits og apps. Netnotkun og kennslufræði Jeppe Bundsgaard prófessor við Háskólann í Árósum lagði upp með fyrirlestur sem bar heitið „Hvaða net- miðlar virka“. Hann hefur rannsakað kennslufræði tengda netnotkun, sérstaklega í grunnskólum. Hann lagði ríka áherslu á nauðsyn þess að við kennarar séum meðvitaðir um það hvernig við nýtum netið og snjall- miðla, allt frá því að vera tæki til þjálfunar til skapandi starfs. Mikið er til af smáforritum sem nota má í utan- bókarlærdómi. Töluvert er komið af efni þar sem netið nýtist eins og hefðbundið lesbókarform, verkefni þar sem nemendur þurfa að tileinka sér þekkingu og nýta á ákveðinn hátt eins og t.d. forritið Scratch þar sem nemendur forrita á aðgengilegan hátt. 12 MÁLFRÍÐUR Hildur Ásta Viggósdóttir, dönsku- kennari í Kópavogsskóla. Snjallnám Að undirbúa nemendur fyrir framtíð sína – eða fortíð okkar Hildur og Jørn að undirbúa námskeiðið. Námsefni til kennslu. Repetitive læremidler Formidlings- orienterede læremidler Stilladserende læremidler Praksis- stilladserende læremidler Træning Transport Tilegnelse Deltagelse Adfærds- regulering Overførsel af viden Rekonstruktion af viden Samkonstruktion af viden Stimuli-respons Brugerkontrol Manipulation Praksis- fællesskab Didaktiske Digitale læremidler Ny nordisk skole, skolereformen, EU, OECD, læringsvidenskaberne Didaktiske læremidler

x

Málfríður

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Málfríður
https://timarit.is/publication/1081

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.