Málfríður - 15.03.2015, Side 14
Þau sýndu okkur m.a. hvernig nýta má snjallsíma í
ratleiki, hvernig nota má QR merki til að koma skila-
boðum til nemenda og kenndu okkur að búa til app í
snjallsíma með App Inventor. Við prófuðum Kahoot
sem er skemmtilegt forrit til að búa til spurninga-
keppni, spurningum er varpað upp með skjávarpa og
nemendur nota síma/spjaldtölvur sem fjarstýringu.
Með spurningunum má setja myndir og myndbrot
frá YouTube. Í forritinu Linoid, sem minnir á gömlu
góðu korktöflurnar, er hægt að festa upp miða, myndir
og myndbönd og í 2know getur kennarinn eða nem-
endur búið til spurningaleiki í símana. Í Goanimate er
hægt að gera stuttar teiknimyndir og nýta talgervil svo
persónurnar tali dönsku eða ensku.
Ritmálið takmarkar
Á meðan ég hef skrifað þessa grein hefur það heft
mig gríðarlega að geta ekki lagt inn slóðir sem hver
og einn getur opnað til að sjá meira um efnið, myndir
til að undirstrika það sem ég vil segja og myndbrot.
Þetta minnir mig á það þegar maður tók myndir með
filmu og flasskubbi áður fyrr, þurfti að fara sparlega
með þær og senda svo í framköllun. Möguleikarnir eru
óendanlegir þegar kemur að notkun snjalltækja í námi
og það eru sannarlega spennandi tímar framundan í
skólastarfi.
aðferð þegar koma á til móts við mismikla lestrargetu
nemenda. Hann sagði þetta hafa reynst mjög vel.
Gagnvirkur námsvefur
Sigríður Sigurðardóttir og Heimir Eyvindarson voru
með fyrirlestur og vinnustofu þar sem þau lýstu því
hvernig þau nota netið og snjalltæki í kennslu. Þau
hafa verið öflug á þessu sviði og hafa unnið að gagn-
virkum námsvef hjá Námsgagnastofnun sem heitir
„Lige i lommen“ og verður líklega tilbúinn í haust.
14 MÁLFRÍÐUR
Heimir og Sigríður að aðstoða þátttakendur.
Að búa til hreyfimynd.