Málfríður - 15.03.2015, Page 15
Framhaldsskólinn í Mosfellsbæ var stofnaður árið
2009. Frá upphafi hefur skólinn unnið eftir nýrri
Aðalnámskrá og mikil vinna hefur verið lögð í að skipu-
leggja námið samkvæmt henni. Hér verður stiklað á
stóru um hvernig spænskukennslu í FMOS er háttað.
Spænskukennsla hófst þar haustið 2010. Nemendur
höfðu fengið að velja hvaða þriðja tungumál yrði kennt
þar og spænska var valin. Mín beið því mikið verk-
efni, að skipuleggja spænskukennslu í skólanum út frá
nýrri námskrá og um leið vinna eftir hugmyndafræði
skólans, þ.e. verkefnamiðuðu námi og leiðsagnarmati.
Við skólann starfa óhræddir og metnaðarfullir kenn-
arar sem hafa hjálpast að við að þróa kennsluhætti og
aðlaga sig að þessu nýja umhverfi. Vikulegir kenn-
arafundir allt frá stofnun skólans hafa komið að góðu
gagni vegna þess að það er nauðsynlegt að heyra frá
öðrum og fá hugmyndir um hvernig hægt sé að koma
MÁLFRÍÐUR 15
Rýnt í spænskar sagnir.
Tveir nemendur að vinna á gangi.
Hildur Jónsdóttir, spænsku-
kennari við Framhaldsskólann
í Mosfellsbæ.
Spænskukennsla í Framhaldsskólanum
í Mosfellsbæ