Málfríður - 15.03.2015, Page 16
verkefni og matið fyrir lotuna byggir á unnum tíma-
verkefnum, gagnvirkum æfingum á kennslukerfinu og
lotuverkefni sem tekur á helstu atriðum lotunnar.
Hlutverk mitt í kennslustofunni er að ganga á milli
og aðstoða nemendur. Þetta hefur þróast þannig að þeir
eru á mismunandi stöðum í lotunni. Í byrjun fannst mér
það vera flókið en fljótlega náði ég tökum á því og núna
finnst mér frábært að nemendur stjórni ferðinni sjálfir í
lotunum. Hver lota hefur lokadag og þegar henni lýkur
er ekki lengur hægt að skila verkefnum úr lotunni. Ég
tek saman námsmatið og set inn á kennslukerfið þar sem
nemendur geta séð hversu mörgum tímaverkefnum þeir
skiluðu, hvort þeir hafi unnið gagnvirku æfingarnar vel
og séð matið á lotuverkefninu. Svo er einnig einstaklega
skemmtilegt hjá okkur í lok annar en þá erum við með
verkefnadaga í stað lokaprófsdaga. Á verkefnadögum
breytist stundataflan, þá fæ ég hvern hóp tvisvar til mín
í 3,5 klukkustundir í senn og vinna nemendur þá stórt
verkefni þar sem þau sýna hvað þau hafa lært á önninni.
Leiðsagnarmat
Í FMOS eru ekki gefnar einkunnir í tölum heldur er
notast við leiðsagnarmat. Við höfum velt því mikið fyrir
okkur í gegnum árin hver sé besta leiðin til þess að fram-
kvæma þannig mat án þess að það sé óyfirstíganleg
vinna. Í upphafi einblíndum við á að gefa nemendum
skriflegt leiðsagnarmat fyrir öll verkefni, lítil sem stór.
Það er mikilvægt að finna hvenær skrifleg leiðsögn
gagnast nemendum og hvenær er hentugra að vera með
aðrar aðferðir við leiðsagnarmat. Eins og áður hefur
námsefninu til skila. Það er óljúkandi verkefni, ég vona
að við verðum alltaf dugleg að endurskoða okkur.
Verkefnamiðað nám
– Horfið frá töflukennslunni
Ein nýjung fyrir mig sem kennara var að allir nem-
endur væru með tölvur. Þar rættist draumur því það
er frábært að geta á auðveldan hátt nýtt allt það sem
Internetið hefur upp á að bjóða. Tölvurnar stuðla mikið
að því að nemendur tileinka sér sjálfstæð vinnubrögð
og leita sér sjálfir upplýsinga. Án tölvunnar væri erfitt
að hverfa frá hefðbundinni töflukennslu. Í upphafi
voru nemendur mínir með tölvu og kennslubók en
eftir fyrstu annirnar fannst mér það ekki henta og að ég
þyrfti að velja annað hvort. Ég valdi að sleppa kennslu-
bókinni, bjó til mitt eigið kennsluefni, tók eilítið hér og
þar úr kennslubókum og efni af netinu. Einnig setti ég
upp á Moodle kennslukerfið bæði gagnvirkar æfingar,
leiki og tímaverkefni, sum verkefni til þess að vinna í
tölvum, önnur ekki.
Ég skipti önninni upp í fjórar lotur á Moodle og
hefur hver lota sitt þema. Síðan eru undirkaflar eins og
í bók, kafli 1, kafli 2 o.s.frv. Nemendur vinna að mestu
sjálfstætt í kennslustundum. Þau lesa sér til um efnið
og vinna gagnvirkar æfingar og tímaverkefni til þess
að æfa sig. Þegar þau eru búin með tímaverkefnin sýna
þau mér afraksturinn og ég les yfir. Ef verkefnið er rétt
þá merki ég við hjá mér að því sé lokið en ef það er ekki
rétt þá fær nemandinn tækifæri til að bæta það eftir
leiðsögn frá mér. Í einni lotu eru um það bil 10 tíma-
16 MÁLFRÍÐUR
Vinna í fartölvunum.