Málfríður - 15.03.2015, Page 21

Málfríður - 15.03.2015, Page 21
einn viðmælandi sagðist ekki hafa gert sér grein fyrir því að hann gæti tengt ensku við kjörsvið sitt. Annar viðmælandi spurði hvort hann yrði þá að taka dönsku líka ef hann veldi ensku. Hann virtist hissa þegar hann heyrði að þess þyrfti ekki. Þessi misskilningur gæti verið vegna þess að nú tilheyrir enska og danska sama kjörsviðinu á menntavísindasviði sem er erlend tungu- mál. Við verðum því að horfast í augu við það að kenn- aranemar völdu e.t.v. ekki ensku vegna þess að þeir þekktu ekki möguleikana. Það er miður og sýnir að við höfum ekki komið einföldum upplýsingum rétt á fram- færi. Aðaláhyggjuefni mitt um niðurstöður þessarar óformlegu könnunar er að of margir kennaranemar telja enskufærni sína ófullnægjandi. En hvernig á að bæta færni Íslendinga í ensku ef of fáir taka fagmennt- un í ensku í grunnskólakennaranáminu? Við verðum að reyna að skapa áhuga hjá kennaranemum á því að læra og síðan miðla vandaðri ensku í grunnskóla og skapa þannig grundvöll fyrir að nemendur nái völdum á akademískri ensku í framhaldsskóla. Heimildir Anna Jeeves. (2013). Relevance and the L2 self in the context of Icelandic secondary school learners: Learner views (Unpublished doctoral dis- sertation). University of Iceland, Reykjavik. Birna Arnbjörnsdóttir. (2011). Exposure to English in Iceland: A quan- titative and qualitative study. Netla – Veftímarit um uppeldi og menntun. Retrieved from http://netla.hi.is/menntakvika2011/004.pdf Birna Arnbjörnsdóttir & Hafdís Ingvarsdóttir. (2010). Coping with English at university: Students’ beliefs. Netla – Veftímarit um uppeldi og menntun. Retrieved from http://netla.hi.is/menntakvika 2010/008.pdf Gerður Guðmundsdóttir & Birna Arnbjörnsdóttir (2014) Undirbúningur framhaldsskólanemenda fyrir notkun ensku í háskólanámi: Námskrár og nýtt íslenskt málumhverfi, Netla – Veftímarit um upp- eldi og menntun. Retrieved from http://netla.hi.is/greinar/2014/ ryn/010.pdf Menntamálaráðuneytið (2006). Menntun dönsku-, ensku-, og íslenskukenn- ara í grunnskólum 2005–2006. Retrieved from http://reykjavik.is/ sites/default/files/ymis_skjol/skjol_utgefid_efni/menntunkennara 2006.pdf Róbert Berman (2010). Icelandic university students’ English reading skills. In Málfríður 1/26. (p. 15–18) Samúel Lefever (2010) English skills of young learners in Iceland: “I started talking English when I was 4 years old. It just bang… just fall into me”, Netla – Veftímarit um uppeldi og menntun. Retrieved from http://netla.hi.is/menntakvika2010/021.pdf hann veldi ensku myndi hann líka þurfa að velja dönsku. Það sem þau áttu flest sameiginlegt var að enska vakti ekki áhuga þeirra eða níu af tuttugu aðspurðum. Þá langaði helst að kenna yngri nemendum eða kenna stærðfræði, textíl, samfélagsfræði, tónlist eða dans. Sú staðreynd að kennaranámið er sett þannig upp að nemendur velja sér kjörsvið er góðra gjalda vert en þá er tryggt að kennaraefnin komi áhugasöm til starfa og kenni það sem þau hafa áhuga á. Eini viðmælandi minn sem hafði tekið enska kennslufræði sem valáfanga tjáði mér það að hún myndi ekki taka fleiri áfanga í ensku því hún vildi fá meira frelsi og meira rými fyrir sköpun í sínu námi sem hún hafði fundið pláss fyrir í kennslu yngri barna. Kennaranemar eru almennt vel meðvit- aðir um sínar sterku og veiku hliðar, hvað þeir hafa áhuga á og hvaða kjörsvið þeir velja sér. Það veit á gott því það leiðir til þess að þeir verða allir sérfræðingar á sínu áhugasviði. Önnur ástæða fimm viðmælenda minna var efi um eigið ágæti í ensku. Þessi vankunnátta í ensku hefur þau víðtæku áhrif að háskólanemar yfirhöfuð telja sig ekki búa yfir nægilegri færni í ensku, þrátt fyrir margra ára nám í tungumálinu og sjá sig þess vegna ekki fyrir sér sem enskukennara. Þessi svör ættu ekki að koma á óvart því rannsóknir hafa sýnt að Íslendingar búa yfir ófullnægjandi enskukunnáttu, jafnt háskólanemar sem fólk úti á vinnumarkaðnum (Anna Jeeves, 2013; Birna Arnbjörnsdóttir, 2011, Birna Arnbjörnsdóttir og Hafdís Ingvarsdóttir, 2010; Róbert Berman, 2010). Þriðja atriðið, sem nefnt var af þremur aðilum, var hræðslan við að kenna í unglingadeild. Þeim hafði gengið vel í ensku í framhaldsskóla en höfðu frekar áhuga á að kenna yngri nemendum. Einn viðmæland- inn minn hélt því hreinlega fram að hann væri hræddur við unglinga. Þetta tel ég vera miður því fær og góður enskukennari sem býr yfir fjölbreyttum kennsluað- ferðum á svo sannanlega heima á meðal unglinga. Við í kennaradeild menntavísindasviðs ættum að geta eflt þennan þátt, þ.e. að útskrifa sjálfstæða og færa kenn- ara. Fjórða atriðið tengist e.t.v. ónógu upplýsingaflæði en MÁLFRÍÐUR 21

x

Málfríður

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Málfríður
https://timarit.is/publication/1081

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.