Málfríður - 15.03.2015, Side 23
Það má til sanns vegar færa að það að fá að sitja þing
eins og þetta og sjá og hitta kennara og fræðimenn frá
öðrum löndum er sem vítamínsprauta fyrir kennara
erlendra tungumála.
Næsta þing FIPLV verður haldið í New Orleans í
Bandaríkjunum 2018 og verður áhugavert að fylgjast
með því í ljósi þess að tungumálakennsla er að verða
vinsælli í Bandaríkjunum um þessar mundir.
sem er ekki svo ólíkt Íslandi þar sem eru fámennar
byggðir, miklar fjarlægðir á milli staða og veðurskil-
yrði ekki alltaf góð. Mesta vandamál fjarkennslu er að
mynda tengsl á milli nemenda en samkvæmt Murphy
er hægt að brjóta niður múrana og tengja betur nem-
endur og kennara með ýmsum leiðum, t.d. að hittast
á Skype. Fjarkennarar í okkar röðum ættu endilega að
kynna sér Center for Distance Learning og Innovation sem
Murphy starfar fyrir, https://www.cdli.ca/.
Hvað er FIPLV?
• Fédération Internationale des Professeurs de
Langues Vivantes (Alþjóðleg samtök kennara
sem kenna lifandi tungumál).
• Samtökin voru stofnuð árið 1931.
• Samtökin eru einu samtökin sem sameina alla
tungumálakennara, óháð hvaða tungumál þeir
kenna.
• Samtökin hafa opinbera aðild sem frjáls félaga-
samtök að UNESCO og hafa fulltrúa hjá
Evrópuráðinu sem frjáls félagasamtök.
Tilgangur FIPLV
• Að stuðla að tungumálakennslu og -námi til
að auðvelda og bæta samskipti, skilning, sam-
starf og vinsamleg samskipti á milli allra þjóða
heims.
• Að þróa, styðja og stuðla að kerfisbreytingum
sem skapa meiri fjölbreytni í kennslu erlendra
tungumála, að bæta tungumálakennslu og gera
hana aðgengilega öllum.
• Að þróa áframhaldandi og samhangandi
kennslu margra tungumála í grunn-, fram-
halds- og háskólum ásamt fullorðinsfræðslu.
• Að bæta þjálfun og þróun starfandi sem og
verðandi tungumálakennara á öllum sviðum
menntunar.
• Að aðstoða með og ráðleggja við stofnun fag-
félaga tungumálakennara.
• Að hafa milligöngu um og þróa starf aðildar-
félaga þess.
• Að hvetja starfandi fagfélög í öllum löndum
til að vinna saman og stuðla að tungumála-
kennslu og tungumálastefnu með fjöltyngi að
leiðarljósi.
• Að styðja fagfélög heima fyrir og vera fulltrúi
þeirra á alþjóðavettvangi.
• Að vera vettvangur fyrir samstöðu á meðal
tungumálakennara á alþjóðavettvangi.
Heimasíða Samtakanna er: www.fiplv.com.
MÁLFRÍÐUR 23
Jim Murphy – Fjarnám á Nýfundnalandi. Svanlaug, Sigurborg og Petrínu Rós í Kanada.