Frjáls Palestína - 01.11.2007, Qupperneq 8
8 FRJÁLS PALESTÍNA
Fyrir 12 árum var hleypt af byssu í Jerúsalem. Það var skotið til að
drepa. Ekki óvenjulegt í þeirri borg. Það
sem var óvenjulegra var að sá sem
varð fyrir skotinu, og átti að verða fyrir
því, var valdamesti maður Ísraelsríkis.
Forsætisráðherrann, Yitzhak Rabin,
var skotinn í bakið af öfgafullum gyð-
ingi og drepinn. Morðinginn skaut úr
byssu sinni, ákveðinn í því að drepa
forsætisráðherrann, vegna þess að hann
var dauðasekur að hans mati. Yitzhak
Rabin hafði unnið sér það til óhelgi að
hafa staðið að friðarsamkomulagi við
Yassir Arafat. Ætlunin var að stofna
sjálfstætt ríki Palestínumanna, á Vest-
urbakkanum svokallaða og á Gasa-
svæðinu, með samningum milli Ísraels
og Palestínumanna. Sú fyrirætlun var
dauðasök í huga morðingjans Yigal Amir,
sem hefur aldrei iðrast morðsins, enda
telur hann að með Oslóarsamningunum
hafiRabinætlaðaðlátaPalestínumönnum
eftir landið sem Guð gaf gyðingum.
Í Sex daga stríðinu árið 1967 var Rabin
hershöfðingi, leiddi Ísraela til sigurs og
hernam bæði Gasa og Vesturbakkann.
Þeir hermenn sem hafa kynnst ógnum
stríðs verða iðulega friðarsinnar og þannig
var það líklega með Rabin. Hann vildi
stuðla að friði og varð að gjalda fyrir það
með lífi sínu. Á þeim tíma sem Rabin var
drepinn, var mikil óeining meðal Ísraela
um hvaða leið skyldi fara í samskiptum
við Palestínumenn. Öfl kyrrstöðunnar
og harðneskjunnar náðu yfirhöndinni
í framhaldi af morðinu, en Rabin var
merkisberi Oslóarsamninganna milli
Ísraela og Palestínumanna. Þrátt fyrir að
milljónir gyðinga harmi fráfall Rabins og
syrgi hann, þá eru þeir þó margir sem sýna
opinberlega fulla samúð með morðingja
hans. Samkvæmt nýlegri skoðanakönnun
vill um fjórðungur ísraelskra gyðinga láta
náða morðingjann, og á fótboltaleik í
Jerúsalem fyrir skömmu var beðið um
að minnast morðsins á Rabin. Þó ekki til
að sýna Rabin virðingu heldur til að hylla
morðingjann.
Af hverju er ég að rekja þessa
sögu hér? Hvaða máli skiptir hún?
Hvaða máli skiptir það þó að fólk á
fótboltavelli í Jerúsalem samsami sig
með öfgamönnunum sem krefjast þess
að Palestínumönnum verði vísað burt af
landi sínu? Skiptir þetta einhverju máli í
núinu?
svæða. Það gildir ekki fyrir Ísraela.
Jafnvel þó að Sameinuðu þjóðirnar álykti
og víti Ísraela fyrir brot á samþykktum
þeirra, og fyrir brot á mannréttindum og
alþjóðasamningum, þá skiptir það ekki
máli vegna þess að vinaþjóð þeirra,
Bandaríkin, sér til þess að sérlög og -
reglur gildi fyrir þá. Frelsi og mannréttindi
skipta þá ekki máli, vegna þess að það
er vinaþjóð sem brýtur gegn öllum þeim
gildum sem Bandaríkjamenn telja sig
standa svo dyggan vörð um í heiminum.
Landtökubyggðir gyðinga eru reist-
ar á Vesturbakkanum, og hvers konar
fyrirbrigði eru það? Ég hélt að land-
nemabyggðir gyðinga á Vesturbakkanum
væru sveitabæir og þorp. Byggð land-
nema, þar sem fólk lifði af landinu
og ynni sér inn lifibrauð í sveita síns
andlitis. Svo er ekki. Í flestum tilvikum
eru landtökubyggðirnar svokölluðu sam-
ansafn af bráðabirgðahúsum sem við
Eftir
Jón
Magnús-
son
Það er svo bágt
að standa í stað
Á þeim 12 árum sem liðin eru
síðan Rabin var myrtur hafa Ísraelar
stöðugt hert tökin á Palestínumönnum.
Palestínumenn eru réttlitlir, jafnvel algjör-
lega réttlausir í eigin landi vegna þess
að hernámsríkið Ísrael meinar þeim um
eðlileg mannréttindi. Hernámsríkið meinar
íbúum landsins um að njóta mannréttinda
í samræmi við alþjóðasamþykktir um
réttindi íbúa hernuminna landa og