Morgunblaðið - 29.07.2015, Side 6

Morgunblaðið - 29.07.2015, Side 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 29. JÚLÍ 2015 Jón Birgir Eiríksson jbe@mbl.is Í Víðidalnum er iðulega líf og fjör á sumrin, en þar má finna umhverfi sem sjaldgæft er að sjá í borgum erlendis. Meðal þeirra sem hafa að- setur þar er Reiðskóli Reykjavíkur, en hann hefur verið starfræktur þar frá árinu 2001. Hjónin Edda Rún Ragnarsdóttir og Sigurður Vignir Matthíasson, sem bæði eru reyndir knapar og tamningamenn, reka skólann og hafa gert frá upphafi. Samhliða reiðskólanum reka þau hestamið- stöðina Ganghesta sem sérhæfir sig í þjónustu við hestafólk, m.a. kaupum og sölu á hrossum, reið- kennslu, frumtamningum og þjálf- un á keppnis- og kynbótahrossum. 700 nemendur í sumar Að sögn þeirra hjóna gengur reksturinn vel og mikil ásókn er í pláss í reiðskólanum hvert einasta sumar. „Það eru um það bil 700 nem- endur hjá okkur yfir sumarið og milli fimmtíu og sextíu hestar. Þetta hefur verið mjög farsælt og vaxandi,“ segir Sigurður. Sigurður og Edda Rún eru sam- mála um að það sé hollt og gott fyr- ir nemendur í reiðskólanum að fá að kynnast hestamennskunni á þann hátt sem færi er á í Víðidaln- um, innan borgarmarkanna. „Það er gefandi fyrir krakkana að fá að kynnast skepnunni. Það er líka ofboðslega hollt fyrir börnin að vera í tengslum við náttúruna, að kynnast þessari paradís sem er í raun inni í miðri höfuðborginni. Ég held að við gerum okkur varla grein fyrir því hvað við erum rík, hér eru útreiðarleiðir í allar áttir,“ segir Edda Rún. Að sögn Eddu Rúnar og Sig- urðar er allt starfsfólk reiðskólans reynt hestafólk sem hefur nánast verið alið upp á hestbaki. Auk starfsfólksins má síðan sjá nokkrar yngri hjálparhellur sem sjá einnig til þess að allt gangi snurðulaust fyrir sig. Námsframboð Reiðskóla Reykja- víkur er fjölbreytt og skólinn er op- inn börnum á öllum aldri, en flest námskeiðanna standa yfir í tvær vikur yfir sumartímann. Hver nem- andi fær einn hest úthlutaðan sem hann umgengst og annast. Mörg barnanna koma ár eftir ár og klífa upp stigann, en námskeið- unum er skipt eftir getustigi og reynslu knapanna. Byrjendanámskeið býðst börnum á aldrinum sex til átta ára, en þar eru undirstöðuatriði kennd. Börnin læra umgengni við hrossin og fara einnig í útreiðartúra. Reiðtúrarnir vinsælastir Aðspurður hvernig sambandinu sé háttað milli yngstu nemendanna og hestanna segir Sigurður að hrossin séu afar gæf og mýkist upp eftir því sem knapinn er yngri. Edda Rún tekur í sama streng og segir að í raun sé best að ala unga knapa upp frá blautu barnsbeini. Framhaldsnámskeiðin taka síðan við en þau eru ætluð þeim sem hafa áður setið tveggja vikna námskeið. Þá eru reiðtúrarnir lengri og mikil áhersla er lögð á að nemendur byggi upp traust við hrossin í þeirra umsjá. Gangskiptingarnámskeiðið hefur notið mikilla vinsælda en það býðst einungis mjög reyndum nem- endum. Þar læra nemendur á gang- tegundir íslenska hestsins, en mikl- ar kröfur eru gerðar til nemenda og námskeiðið aðeins kennt í eina viku á ári. Vinsælasta námskeiðið er hins- vegar Ævintýranámskeiðið, en í því felast lengstu reiðtúrarnir. Þeir geta orðið allt að þriggja tíma lang- ir og er ýmist riðið út í Heiðmörk, upp að Bugðu og í Elliðaárdal. Eftir því sem blaðamaður kemst næst njóta reiðtúrarnir mestra vin- sælda hjá nemendum skólans. Nemendunum virðist líka ljóst að góð umhirða og umgengni við hrossin sé forsenda þess að hægt sé að ríða út. Þess vegna leggja þeir sig alla fram í þær tvær vikur sem þeim gefst tími til nándar við skepnurnar. Kátar Þær Victoria og Kristín voru önnum kafnar við að festa hnakk á hestinn Sleipni þegar blaðamann bar að garði, en þær voru að hefja tveggja vikna framhaldsnámskeið. Knapar Daníel Birkir og Katla Björk höfðu nýlega fengið úthlutaða hesta til umsjár, en þau sækja framhaldsnámskeið þar sem þau munu tengjast hestunum tryggðaböndum. Fyrstu kynni Þessi stúlka nálgaðist af varkárni en hesturinn virtist sallarólegur. Líklega er hann vanur fyrstu kynnum eftir að hafa kynnst fjölda nemenda þetta sumarið. Morgunblaðið/Árni Sæberg Skólastjórar Edda Rún og Sigurður hafa rekið Reiðskóla Reykjavíkur í fimmtán ár. Þau eru þaulreynt hestafólk og tamningamenn. Að þeirra sögn hefur nemendum í Víðidalnum fjölgað mjög frá ári til árs. Reiðskóli í hjarta höfuðborgarinnar Traust Kristín fær sér góðan blund. Meðal æfinga sem iðkaðar eru í skólanum eru jafnvægisæf- ingar. Þá standa nemendur uppréttir á baki hestanna til þess að byggja upp traust.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.