Morgunblaðið - 29.07.2015, Blaðsíða 21
MINNINGAR 21
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 29. JÚLÍ 2015
✝ Hafdís Ingv-arsdóttir
fæddist 4. mars
1947 í Reykjavík.
Hún lést á líkn-
ardeild Landspít-
alans 18. júlí 2015.
Foreldrar henn-
ar voru Ingvar
Guðjónsson bif-
reiðastjóri, fædd-
ur 26.9. 1919, að
Stirtlu (Dals-
mynni), flutti að Eiríksbakka í
hjóna. Hafdís giftist Hilmari
Bjarnasyni smið, f. 15.8. 1950,
þann 3.3. 1973, þau slitu sam-
vistir. Foreldrar hans voru
þau Bjarni Loftsson, f. 27.12.
1905, d. 13.4. 1991, og Svan-
hvít Rútsdóttir, f. 10.8. 1911,
d. 21.4. 1989. Börn þeirra Haf-
dísar og Hilmars eru Ingvar
Örn, f. 14.9. 1971, Svana Fjóla,
f. 27.6. 1975, og Birna Svan-
hvít, f. 8.2. 1982. Hafdís
menntaði sig við Gagnfræða-
skóla verknáms í Reykjavík og
svo við Húsmæðraskólann.
Hún starfaði við hin ýmsu
störf í gegnum tíðina en
lengst af starfaði hún hjá Ís-
landspósti, eða í yfir 30 ár.
Hafdís var jarðsungin frá
Háteigskirkju 28. júlí 2015.
Biskupstungum
1921, hann lést
17.5. 2008, og
Fjóla H. Halldórs-
dóttir, fædd 25.6.
1923, í Reykjavík
en hún ólst lengst
af upp hjá móð-
urforeldrum sín-
um í Riftúni í Ölf-
usi, síðar í
Hveragerði, hún
lést 27.11. 2013.
Hafdís var einkadóttir þeirra
Ég kveð þig, hugann heillar minning
blíð,
hjartans þakkir fyrir liðna tíð,
lifðu sæl á ljóssins friðar strönd,
leiði sjálfur Drottinn þig við hönd.
(Guðrún Jóhannsdóttir)
Í dag er til moldar borin Haf-
dís Ingvarsdóttir, góð vinkona
mín til margra ára.
Eitt af því dýrmætasta í lífinu
er falleg og sönn vinátta. Hafdís
hafði allt sem góða vinkonu prýð-
ir. Hún var heilsteyptur persónu-
leiki sem vildi öllum vel og ein-
kennandi fyrir hana var létt lund
og glaðværð. Við hlógum saman
að mörgu, stundum bara að smá-
munum og oft að okkur sjálfum.
Símtölin góðu verða ekki fleiri og
að röddin hennar sé þögnuð er
svo erfitt að sætta sig við.
Þegar árin færðust yfir tókum
við upp þann sið í kringum af-
mælin okkar að bjóða hvor ann-
arri í leikhús eða á tónleika. Þess-
ar kvöldstundir byrjuðu á góðri
máltíð og enduðu á spjalli um við-
burðinn. Síðast sáum við Billy El-
liot og núna var hún búin að
ákveða skemmtilega sýningu í
október. Svona var Hafdís. Hún
lét sjúkdóminn sem hún barðist
við í nokkur ár ekki stoppa sig í
neinu.
Hafdís sýndi aðdáunarverða
bjartsýni í veikindunum. Hún
kvartaði aldrei og var þakklát
bæði læknum og öðrum sem
studdu hana. Trúin á Guð og hið
góða hjálpaði henni að takast á
við erfiðleikana.
Sannkölluð hetja er farin frá
okkur. Hetja sem lét aldrei bug-
ast, heldur horfði fram á við.
Vinátta hennar var mér mikils
virði og fyrir hana þakka ég af
heilum hug.
Við fráfall hennar eiga margir
um sárt að binda en börnin þó
mest. Þau reyndust móður sinni
vel alla tíð.
Fjölskyldunni allri votta ég
mína dýpstu samúð.
Sigrún L. Baldvinsdóttir.
Elsku Hafdís mín.
Ég er enn að átta mig á því að
þú sért farin og hafir kvatt jarð-
neskt líf, ég vissi að þú varst
haldin illvígum sjúkdómi sem
myndi hafa betur að lokum, en
alltaf hélst þú og við öll sem
þekktum þig í vonina um bata, þú
varst svo trúuð og sigurviss.
Margan fjársjóðinn geymi ég í
sjóði minninganna, söknuðurinn
er sár, það var svo yndislegt að
eiga þig sem vinkonu frá barn-
æsku og til þess tíma er þú
kvaddir þennan heim, ég er viss
um að vel hefur verið tekið á móti
þér, foreldrar þínir og aðrir ást-
vinir sem farnir voru á undan
þér, þinn tími var kominn. Það
var svo erfitt að hugsa til þess að
við eigum ekki eftir að hittast,
spjalla saman, ferðast saman inn-
anlands sem utan, sem við gerð-
um svo oft. Fara saman á Alfa,
sem þú naust svo vel, þú varst
svo góð og yndisleg persóna, þú
varst svo glöð og kát og með ljúfa
nærveru, öllum sem kynntust þér
þótti vænt um þig.
Ég sakna svo hlátursins, góða
húmorsins, því alltaf sást þú
spaugilegu hliðina í öllu og þá var
hlegið innilega, þú varst alltaf svo
fjörug og orðheppin og það voru
alltaf svo notalegar stundir þegar
við vinkonurnar komum saman
því ég og Ingileif áttum vináttu
þína í 60 ár, við hittumst fyrst í
sjö ára bekk í Melaskóla.
Ég má ekki gleyma yndislegu
foreldrum þínum sem tóku mér
opnum örmum við fyrstu kynni,
þú varst þeirra einkabarn. Þau
buðu mér alltaf með í bíltúr og
ferðir sem þið fóruð í.
Þú varst mikil hesta- og
sveitastelpa er við vorum ung-
lingar og þú leyfðir mér oft að
koma með í sveitina þína og
kynnast æskuslóðun föður þíns í
Biskupstungum. Nokkrar ferðir
fórum við til Huldu á Eiríks-
bakka sem var föðursystir þín og
gistum þar.
Þú eignaðist fjölskyldu, elsku
Hafdís mín, þrjú yndisleg börn,
þú varst svo dugleg að koma með
þau í heimsókn þegar ég bjó í
Grindavík, en síðar lágu leiðir
mínar og minna barna til Reykja-
víkur og svo Kópavogs og það
efldi betur vináttuna.
Elsku vinkona, það er komið
að leiðarlokum samveru okkar
hér, en við munum hittast á nýj-
um stað. Þakka þér fyrir allt liðið.
Guð blessi þína minningu og veri
með börnunum þínum á erfiðum
tímum. Vertu kær kvödd elsku
Hafdís mín.
Þín æskuvinkona,
Svanhvít Hallgrímsdóttir.
Hvernig kveður maður vin
sinn eftir meira en 60 ára vin-
áttu? Það eru svo margar minn-
ingar, svo margt sem er brallað á
heilum 60 árum.
Við Hafdís, vinkona mín,
kynntumst fyrst sjö ára stelpu-
hnokkar í Skjólunum. Hafdís var
strax sem barn svo ljúf og kát og
frá fyrstu kynnum var hún mín
besta vinkona, hún var einbirni
og ég átti enga systir svo við vor-
um sem systur. Við vorum ekki
háar í loftinu er við fórum að
passa börn og oft voru vagnarnir
svo stórir að við sáum varla upp
fyrir og stundum vorum við að
metast um hvor væri með flottari
vagn. Einu sinni ætluðum við að
búa til röndóttan lit og settum við
nokkra vaxliti í blikkdós og sett-
um hana á ofninn í eldhúsinu
heima hjá Hafdísi og daginn eftir
fórum við að athuga með hvort
það væri ekki komin röndóttur
litur í boxið, en viti menn, þar var
bara svört klessa og mikið hlógu
þau Ingvar og Fjóla, foreldrar
Hafdísar, að þessu uppátæki
okkar.
Við Hafdís vorum fermingar-
systur og fermdumst í Fríkirkj-
unni í Reykjavík. Eftir skyldu-
námið fór Hafdís í verknámið í
Brautarholti og síðan í Hús-
mæðraskólann í Reykjavík, ég
fór í skóla í Danmörku í hálft ár
og svo að vinna, en við Hafdís fór-
um á mörg handverksnámskeið
saman, t.d. sníðateikningu og
kjólasaum. Við vorum saman í
unglingaklúbbi sem hét Vita-
klúbburinn og fórum í mörg
ferðalög með honum og man ég
er við fórum fyrst í Þórsmörk og
tjölduðum þar um verslunar-
mannahelgi og Matti var með
okkur. Við höfðum aldrei tjaldað
áður og gekk það heldur brösu-
lega og endaði með því að við
bundum tjaldið í nærliggjandi
tré, það var allt skakkt og Matti
vaknaði alltaf hálfur út úr tjald-
inu því við vorum ekki á mjög
sléttum stað, en mikið var hlegið.
Okkur fannst mjög gaman að
dansa og fórum allar helgar til að
dansa, ekki smökkuðum við vín
né reyktum en að dansa gömlu
dansana og tvista var toppurinn á
tilverunni í þá daga.
Svo tók alvara lífsins við og við
giftum okkur og áttum börnin
okkar, hún Ingvar, Svönu og
Birnu, en ég fjóra stráka. Við
ráðfærðum okkur hvor við aðra í
barnauppeldinu.
Síðustu ár voru Hafdísi mjög
erfið á margan hátt, missir for-
eldra, skilnaður og veikindi, en
alltaf reyndi hún að harka af sér
og alltaf var stutt í hláturinn og
léttu lundina og hjálpaði það
henni mikið í gegnum allt það
sem var lagt á hana. Hún var að
vinna fram á síðustu stundu og
var ekkert á því að gefast upp.
Við ferðuðumst mikið saman
síðustu árin og eru þær stundir
ómetanlegar nú þegar kemur að
kveðjustund. Það er sárt að
hugsa til þess að ekki verður
komið oftar saman heima hjá þér
og hlegið dátt eins og vaninn var,
en minningin um frábæra vin-
konu lifir með okkur og við mun-
um koma saman vinkonurnar í
minningu Hafdísar.
Móðir mín, sem er látin, sagði
oft að hún ætlaði að sitja á skýj-
unum og fylgjast með okkur hér
niðri og hlæja að streðinu við
þessa veraldlegu hluti. Nú er
Hafdís mín sest hjá henni á skýið
og þær dingla fótunum og hlæja
að okkur þar sem við erum að
fárast yfir þessum fánýtu verald-
legu hlutum.
Góður Guð blessi þig, elsku
Hafdís, og börnin þín. Ég sakna
þín, elsku vinkona. Þín vinkona,
Ingileif Ögmundsdóttir.
Ég var sex ára þegar ég
kynntist þér fyrst. Alltaf var ég
velkomin á heimili þitt, fyrst á
Nýbýlavegi og síðar í Efstahjall-
anum og á ég margar góðar
minningar þaðan. Elsku Hafdís,
minning um afburða góð-
mennsku þína og húmor lifir.
Sigrún Edda Hauksdóttir.
Í dag kveðjum við með söknuði
Hafdísi Ingvarsdóttur, sam-
starfsfélaga okkar til margra ára.
Hafdís starfaði sem bréfberi hjá
Íslandspósti í rúmlega 30 ár. Hún
var mjög duglegur og áreiðanleg-
ur starfsmaður sem mátti ekki
vamm sitt vita og alltaf boðin og
búin að veita aðstoð ef veikindi
komu upp í vinnunni.
Hafdís var ávallt glöð og hress.
Hún greindist með krabbamein
fyrir nokkrum árum en sigraðist
á því og átti góðan tíma áður en
það tók sig aftur upp árið 2013.
Allan þennan tíma sýndi hún
mikið hugrekki og æðruleysi.
Hún var staðráðin í að sigrast á
veikindum sínum en varð að lok-
um að lúta í lægra haldi.
Hún stundaði vinnu allan þann
tíma sem hún glímdi við veikindi
sín, sló hvergi af og vildi ekki
minnka við sig vinnu þótt henni
stæði það til boða. Þrátt fyrir
veikindi sín var Hafdís m.a. dug-
leg að sækja tónleika og leikhús
og hafði af því mikla ánægju. Í
byrjun júní fór Hafdís svo með
nokkrum núverandi og fyrrver-
andi vinnufélögum sínum í ferð
til Ítalíu og dvöldu þær við
Gardavatnið á yndislegum stað
og ferðuðust þær um svæðið og
naut hún ferðarinnar til hins ýtr-
asta.
Eftir heimkomuna frá Ítalíu
hrakaði heilsu hennar mjög og
lést hún á líknardeildinni þann
18. júlí síðastliðinn. Með þessum
orðum kveðjum við vinnufélag-
arnir góðan samstarfsfélaga til
margra ára og vottum börnum
hennar okkar innilegustu samúð.
Blessuð sé minning Hafdísar
Ingvarsdóttur.
Fyrir hönd starfsmanna Ís-
landspósts, Dalshrauni 6, Hafn-
arfirði,
Valdís Þ. Vilhjálmsdóttir.
Hafdís
Ingvarsdóttir
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
SESSELJA ÞORBJÖRG
ÞORSTEINSDÓTTIR,
bóndi,
Hraunholtum,
Kolbeinsstaðahreppi,
sem lést á hjartadeild Landspítalans við Hringbraut mánudaginn
20. júlí, verður jarðsungin föstudaginn 31. júlí kl. 14 frá
Kolbeinsstaðakirkju. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á
Nýrað, félag nýrnasjúklinga, 0334-26-001558, kt. 670387-1279,
og skilunardeild Landspítalans við Hringbraut.
.
Sigurður Þ. Helgason,
Steinar Þór Snorrason, Jóhanna Lára Óttarsdóttir,
Sigríður Jóna Sigurðardóttir, Ásberg Jónsson,
Ásdís Ólöf Sigurðardóttir, Siguroddur Pétursson,
Elísabet Sigurðardóttir, Guðlaugur Þór Tómasson,
Jódís Sigurðardóttir,
Helgi Sigurðsson, Addý G. Kristinsdóttir,
Guðmundur M. Sigurðsson, Sólveig Einarsdóttir,
ömmu- og langömmubörn.
Ástkær móðir mín, amma og langamma,
SIGURBJÖRG ELÍSABET
GUÐLAUGSDÓTTIR,
Melgerði 17, Kópavogi,
lést á hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð
mánudaginn 20. júlí. Útför hennar verður
gerð frá Kópavogskirkju fimmtudaginn 30. júlí kl. 15. Þeim sem
vilja minnast hennar er bent á hjúkrunarheimilið Sunnuhlíð.
.
Grétar Halldórsson,
Arnaldur Grétarsson, Auður Ástráðsdóttir,
Röskva Arnaldardóttir, Urður Arnaldardóttir.
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, dóttir,
systir og tengdadóttir,
KATRÍN ÓLÖF BÖÐVARSDÓTTIR
læknir,
lést á Landspítalanum miðvikudaginn 22.
júlí. Útförin fer fram frá Lindakirkju
fimmtudaginn 30. júlí kl. 15. Blóm og kransar eru vinsamlegast
afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hennar er bent á
Minningarsjóð krabbameinsdeildar Landspítala.
.
Þórólfur Heiðar Þorsteinsson,
Matthías Örn Þórólfsson, Benedikt Arnór Þórólfsson,
Böðvar Örn Sigurjónsson, Gestný K. Kolbeinsdóttir,
Sigurjón Örn Böðvarsson,
Þorsteinn H. Gunnarsson, Inga Þórunn Halldórsdóttir.
Elsku móðir okkar, tengdamóðir, amma og
systir,
JÓHANNA JÓHANNSDÓTTIR,
Snælandi 7,
lést í faðmi fjölskyldunnar þriðjudaginn
21. júlí. Útförin fer fram frá Áskirkju
föstudaginn 31. júlí kl. 11.
.
Jóhann Kristos Lapas, Jóna Björk Helgadóttir,
María Lapas, Vilhjálmur Þór Arnarsson,
Alexander Lapas, Margrét Guðmundsdóttir,
Kristín Jóhannsdóttir,
Áslaug Jóhannsdóttir, Sigurður Sigurðsson
og barnabörn.
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamamma, amma og langamma,
HERDÍS KRISTJANA HERVINSDÓTTIR,
(Dísa í Vík)
Bæjartúni 9, Ólafsvík,
lést á Heilbrigðistofnun Vesturlands
22. júlí. Útför fer fram í Ólafsvíkurkirkju þriðjudaginn 4. ágúst
kl. 14. Blóm og kransar eru vinsamlegast afþakkaðir en þeim
sem vilja minnast hennar er bent á Ólafsvíkurkirkju
kt. 500269-4999 reikn. 0194-26-76.
.
Vigfús Kr. Vigfússon,
Kristín Vigfúsdóttir, Björn Erlingur Jónasson,
Óðinn Pétur Vigfússon, Sonja Riedmann,
Gunnhildur Linda Vigfúsdóttir, Heiðar E. Friðriksson,
Hlynur Vigfússon, Olga Eremína,
Guðrún Jóhannesdóttir,
barnabörn og langömmubörn.
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir, amma, langamma og
langalangamma,
AÐALBJÖRG AÐALBJÖRNSDÓTTIR,
áður til heimilis á Valþjófsstað í
Fljótsdal,
lést þann 24. júlí á hjúkrunarheimilinu
Dyngju á Egilsstöðum. Útförin fer fram frá Valþjófsstaðakirkju
laugardaginn 1. ágúst kl. 14.
.
Bjarni Guðjónsson,
Jón Þór Tryggvason,
Katrín Erla Kjartansdóttir,
Guðjón Bjarnason,
Kristinn Bjarnason,
Una Birna Bjarnadóttir,
Hafdís Björg Bjarnadóttir,
Sigurbjörg Svana Jónsdóttir
og fjölskyldur.