Morgunblaðið - 29.07.2015, Síða 11

Morgunblaðið - 29.07.2015, Síða 11
Áhugi Alvogen-teymið í New Jersey í Bandaríkjunum tekur virkan þátt í vinnustofu um valkostina fimm. fjölda opinberra stofnana og menntastofnana um allan heim. Fyr- irtækið er einnig skráð í kauphöllina í New York. „Á meðal viðskiptavina okkar hér á landi eru Ölgerðin, Eimskip, Alvogen, Icelandair, ÁTVR, Lands- bankinn, Vodafone, Borgarbyggð, ráðuneytin, Samskip, Reiknistofa bankanna og fleiri,“ segir Guðrún en mörg fyrirtækjanna hafa fjallað op- inberlega um árangur sinn af starfi sínu með þeim. Þessi góði árangur þeirra á meðal viðskiptavina hefur einnig verið mældur með svokölluðum NPS-staðli (e. Net Promoter Score) þar sem þau skoruðu 78% þegar við- skiptavinirnir voru spurðir hvort þeir hygðust mæla með þjónustunni við aðra. „Viðbrögðin hafa því verið alveg ótrúleg og við höldum ótrauð áfram.“ Meðmælavísitala annarra ís- lenskra fyrirtækja (á sama mæli- kvarða) mælist á bilinu -80 til 36% skv. MMR. Með alla anga úti Fræðsluefnið sem notað er í vinnustofunum er sótt í fræðaum- hverfið hjá háskólasamfélaginu um allan heim. Efnið er einstaklega hag- nýtt og í samræmi við skilning fræði- manna hverju sinni. „Um 7% af tekjum okkar fara í rannsóknir og þróun. Í stjórn FranklinCovey sitja nokkrir prófessorar sem eru allir frá stóru heimsháskólunum eins og Har- vard og Stanford. Auk þess búum við yfir rannsóknarteymi sem vaktar það hvað háskólarnir birta af rann- sóknum um stjórn, árangur, fram- leiðni, sölu, traust og fleira. Við tök- um svo það efni og greinum hvernig fólk getur tileinkað sér þessa nýju þekkingu í persónulegu lífi sínu ásamt vinnulífinu,“ segir Guðrún. „Leiðtoginn í mér“ FranklinCovey einblínir ekki al- farið á atvinnulífið og fullorðna held- ur hefur fyrirtækið einnig hannað fræðslu og ráðgjöf til handa börnum. Þeim er kennt að taka líf sitt föstum tökum og ná persónulegum árangri til langs tíma litið. Verkefnið „Leið- toginn í mér“ hefur verið hluti af skólastarfi barna í Borgarbyggð undanfarið og gefist gríðarlega vel, að sögn Guðrúnar. „Það var alveg frábært að sjá krakkana í Borgar- byggð þegar við komum í heimsókn til þeirra og upplifa árangur fræðsl- unnar, þau voru stórkostleg.“ Er krökkunum kennt að bera ábyrgð á eigin hegðun, hafa áhrif á umhverfi sitt, finna sýn sína á heim- inn, átta sig á því hvernig mann- eskjur þau vilja verða, forgangsraða, vinna saman og leysa sem best úr ágreiningi sem upp kemur. Sýna börnin svo árangurinn af fræðslunni í verki með því að bjóða sveitarstjórnendum og framafólki úr atvinnulífinu til sín í heimsókn á svo- kallaðan Leiðtogadag. „Þá snúa krakkarnir sér við og kenna gest- unum hvað það þýðir að vera leið- togi,“ segir Guðrún en þetta hafi reynst frábært verkefni þar sem framfarirnar hjá krökkunum hafi verið augljósar. „Kennararnir kunnu einnig að meta að fá haldbært efni sem auð- veldaði útskýringar á þessum hug- tökum, eins og hvað það þýðir að taka ábyrgð á eigin líðan og sýna frumkvæði.“ Til stendur að víkka út þjón- ustuna til barnanna en næsta stopp er í Garðabæ. Viðræður eru einnig hafnar við fleiri sveitarfélög og því margs að vænta á næstu árum. Draumurinn sé að þessi fræðsla verði hluti af lífsleikni í öllum skólum landsins. Þá hafa börn í Víetnam, Suður- Afríku og Bandaríkjunum einnig notið góðs af svipaðri fræðslu en Elín María Björnsdóttir kennari hefur sinnt því af miklum myndugleik fyrir hönd fyrirtækisins. Heilbrigða skynsemin Þrátt fyrir að þátttakendur í fræðslu og vinnustofum fyrirtæk- isins séu af ólíku bergi brotnir og staddir í mismunandi löndum með ólíka menningu virðist það ekki valda mismunandi árangri þegar upp er staðið. „Auðvitað eru ákveðnir hlutir til dæmis við íslenska menningu sem gera íslenska vinnustaði öðruvísi en þá sem eru erlendis, en í grunninn erum við að vinna með mannlegt eðli og fólk er þegar upp er staðið ótrú- lega líkt þrátt fyrir allt.“ Kennsluefnið sé byggt á traust- um gildum sem þjóni árangri þvert á alla trú, pólitík og landamæri því þetta sé í raun heilbrigð skynsemi. „Um er að ræða einfaldan ramma, tungumál og aðferðir sem fólk nýtir sér á vinnustaðnum og unnið er með dagsdaglega og tengist ekki sérfræðikunnáttu hvers og eins. Tileinkun heilbrigðrar skynsemi og mannlegra gilda tryggir að sam- starfið gangi betur og árangurinn náist.“ DAGLEGT LÍF 11 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 29. JÚLÍ 2015 Útsalan hefst í dag v/Laugalæk • sími 553 3755 Borgarbókasafnið býður öllum þeim sem vettlingi geta valdið að kíkja í ókeypis bókmenntagöngu um miðbæ Reykjavíkur í sumar. Farið er frá aðalbókasafninu við Tryggvagötu alla fimmtudaga út ágúst klukkan þrjú. Næst verður farið á morgun. Gangan ber heitið „Myrkraverk í Reykjavík“ en leiðsögumaður frá bóka- safninu leiðir hana og stoppar á völdum stöðum þar sem kynntar verða íslenskar draugasögur og glæpaskáldsögur. Er um að ræða skemmtilega leið til að kynnast íslenskum bókmenntum og skoða sögu- sviðið í leiðinni. Gangan er róleg og fer fram á ensku. Göngutúr um miðborgina með sögulegu ívafi Ljósmynd/Borgarbókasafnið Sögur Hópurinn heldur í bókmenntagöngu sem farin er á fimmtudögum. Myrkraverk í Reykjavík „Það er alveg óþarfi að henda hlutum sem þú þarft ekki lengur á að halda!“ segir á Facebook-síðu viðburðarins „Swap til you drop“ eða skiptu þar til þú getur ekki meira sem fram fer á Loft Hostel, Bankastræti, í mið- bænum í dag klukkan hálffimm. Tryggt er að þeim hlutum sem finna leið sína inn á hostelið verði komið fyrir hjá nýjum eigendum eða hjá Rauða krossinum. Óskað er eftir bókum og hreinum fötum. Skiptin manna á milli eru ókeypis og frjáls. Eina krafan er sú að góða skapið sé örugglega með í för. Gefðu fötunum nýtt líf og endurnýjaðu fataskápinn Morgunblaðið/Ómar Skiptu þar til þú getur ekki meira á Loft Hostel „Veldu það sem þú hefur gaman af að gera, þar sem hjartað slær og þú getur vaxið,“ segir Guð- rún um leiðina að góðum ár- angri í persónulegu lífi hvers og eins. „Mikilvægt er einnig að eiga ákveðna mynd af framtíðinni og vinna kerfisbundið og ötullega að því að gera þá mynd að veru- leika,“ bætir hún við. Þriðja og síðasta ráðið felst í því að velja rétta fólkið í kringum sig hverju sinni. „Það er ekkert gefið í lífinu og við erum alltaf að bæta við okkur og vaxa,“ segir hún. Mik- ilvægt sé einnig að finna jafn- vægi á milli vinnu og fjölskyld- unnar. „Sýndu alltaf metnað og gleði í vinnunni og líka heima með fjölskyldunni. Þannig færðu þetta til að ganga upp.“ Persónulegi árangurinn MIKILVÆGT Tengsl Emblur, félag MBA-kvenna frá HR, á stefnumóti stjórnenda.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.