Vestfirska fréttablaðið - 20.12.1994, Page 3
VESTFIRSKA
FRÉTTAM ^nrn |
Þriðjudagur 20. desember 1994
3
Jólahugleiðing
eftir séra Baldur Vilhelmsson, prófast í Vatnsfirði
Enn á ný, og nú í þjáðmn heimi hljóma bjöllurnar og Ijósið skín í
myrkrinu, fagnaðarhátíð, friðarhátíð, fæðingarhátíð, komin með sinn
boðskap.Tökum á móti þessti Ijósi sem skín í gegnum hráan og gráan
hversdaginn sem ríkir í mannheimi á norðlægu landi um þessar
mundir, en því miður oftar hið innra í köldu og döpru hjarta. Helgi
jólanna lýsir upp hið innra og jólanóttin verður stund íhugunar um
mannlegt líf og eigið Iíf, stöðu okkar gagnvart þeim er kom í heiminn
fullur kærleika en var hafnað. Þessa nótt minnumst við bernskujóla
í föðurhúsum, gleði þeirra og sérleika, engri nóttu lík... Og margur
minnist annarra jóla, einn á göngu, fjarri foreldrum og systkinum,
jafnvel vinum, en á sér þó Ijós, eitt Ijós er fyllir sál hans friði. Hann
horfir í það og verður þess var að þetta er Ijós bernskunnar, sem
hefur í raun aldrei slokknað þrátt fyrir öldugang og gráma lífsins
— jólaljósið. Já, í hugann kemur sálmurinn:
Lýs, milda Ijós, í gegnum þennan geim,
mig glepur sýn,
því nú er nótt, og harla langt er heim.
Ó, hjálpin mín,
styð þú minn fót; þótt fetin nái skammt,
ég feginn verð, ef áfram miðar samt.
Ég spurði fyrr: Hvað hjálpar heilög trú
og hennar Ijós?
Mér sýndist bjart, en birtan þvarr, og nú
er burt mitt hrós.
Ég elti skugga, fann þó sjaldan frið,
uns fáráð öndin sættist Guð sinn við.
Þú Ijós, sem ávallt lýsa vildir mér,
þú logar enn,
í gegnum bárur, brim og voðasker.
Nú birtir senn.
Og ég finn aftur andans fögru dyr
og engla þá, sem barn ég þekkti fyr.
(Matthías Jochumsson).
Jólin konia. Fögnuður ríkir í borg og bæ. Börnin skynja að eitthvað
óvenjulegt er í nánd,eftirvænting ríkir.AHt dregur að einum punkti,
sálmalögin kunnu, útstillingar í glugga verslana, tré á torgi skreytt,
marglit Ijós á húsum, jólasveinar,glaðlegt viðmót allra,stjörnur skína
á bláum himni norðurhvelsins, snjór og kirkjan skreytt að utan og
innan.
Alla ævi munu þau minnast þessarar nætur.Sviptivindar mannlegs
Iífs, oft naprir, munu ekki fá slökkt Ijósið í sálu þeirra, þótt gleymist
um stund.
Kristur Jesús á afmæli. Heiðrum afmælisbarnið, tökum á móti því
ung — og gömul munum við enn eiga það að leiðtoga og vini, í sorg
og þraut.
Minnumst Lúkasar, 2. kapítula, versanna II og 12: „Yður er í dag
frelsari fæddur,sem er Kristur Drottinn í borg Davíðs. Og hafið það
til marks: Þér munuð finna ungbarn reifað og lagt í jötu."
Gleðileg jól!
Óskum starfsfólki okkar og viðskipavinum
gleðilegra jóla ogfarsœldar á nýju ári
GNA HF.
Bolungarvík
Kaupfélag Isfirðinga Söluskálinn Súðin
ísafirði - Súðavík Súðavík
Samvinnuferðir-
Landsýn
UMBOÐIÐ MJALLARGÖTU 1 ÍSAFIRÐI
HRÖNN HF.
ísafjarðar
apóteh
Mjólkursamlag
ö ísfirðinga
SPARISJÓÐUR
ÖNUNDARFJARÐAR
RITUR HF.