Vestfirska fréttablaðið - 20.12.1994, Síða 8
8
Fasteignaviðskipti
ÍSAFJÖRÐUR
Aðalstræti 20 4ra herb. íbúð á 2. hæð, u.þ.b. 130 m2.
Laus eftir samkomulagi.
Aðalstræti 32 3ja herb. íbúð á 1. hæð.
Silfurgata 11 3ja herb. íbúð á 1. hæð. Laus fljótlega.
Smiðjugata 11a Húsið er tvær hæðir, kjallari og ris
(háaloft). Hvor hæð er rúmir 50 m2. Niðri er eldhús,
stofa og bað, uppi eru 4 svefnherbergi og salerni.
Strandgata 7 Nýuppgert, tvílyft einbýlishús úr timbri.
Pólgata 4 5 herb. íbúð á 3. hæð.
Aðalstræti 22b 3ja-4ra herb. íbúðir á 2. og 3. hæð.
Fitjateigur 4 U.þ.b. 151 m2 einbýlishús á einni hæð
ásamt bílskúr.
Bolungarvík
Ljósaland 5 118 m2 einbýlishús.
Ljósaland 6 2x126 m2 einbýlishús. Hagstæð lán.
Hlíðarstræti 21 Gamalt einbýlishús.
Traðarland 24 Tvílyft einbýlishús, u.þ.b. 200 m2 með
bílskúr.
Stigahlíð 2 3ja herb. íbúð á jarðhæð. Laus.
Stigahlíð 4 3ja herb. íbúð á 1. hæð. íbúðin er laus.
Völusteinsstræti 4 2x126 m2 einbýlishús. Á neðri
hæð er bílskúr og fokhelt húsnæði. Á efri hæð eru m.a.
4 svefnherbergi. Verð ca. kr. 9 milljónir, mest áhvílandi
húsnæðisstofnunarlán. Skipti á minni eign í Bolungar-
vík koma vel til greina.
Arnar G. Hinriksson
Silfurtorgi 1, sími 4144
Þriðjudagur 20. desember 1994
VESTFIRSKA
J FRÉTTABLAÐIÐ
Eysteirm G. Gíslason f Skáleyjum:
Ápangurinn skiptip mestu máli
I laufskálaþætti 31/8 sl.
ræddi Finnbogi Hermannsson
við hjónin á Kirkjubóli í Val-
þjófsdal. Þar bar á góma að
þau höfðu bæði verið nem-
endur Guðmundar Inga Krist-
jánssonar, sveitunga síns, og
spannst nokkur umræða um
það. M.a. nefndi Finnbogi
hvort Guðmundur hefði ekki
á löngum kennsluferli upp-
frætt menn sem síðar urðu
þjóðkunnir, eins og t.d. föður-
bróður Sigríðar húsfreyju,
Gils Guðmundsson. Það taldi
hún þó ólíklegt að gæti verið,
vegna lítils aldursmunar
þeirra. Það mun þó vera mis-
skilningur hennar, og skal hér
rifjuð upp lítil saga því til
sönnunar.
Á árlegum fundi Kennara-
félags Vestfjarða skömmu
eftir 1960 urðu fjörugar um-
ræður um réttindafólk og rétt-
indalaust við kennslustörf. Þá
munu hafa verið kröfur á lofti í þjóðfélaginu um að allir
kennarar hefðu fulla menntun og réttindi, en mikið var af
„svörtum sauðunT í því efni á Vestfjörðum þá, eins og
löngum síðan. Réttindafólkið lá ekki alltaf á lausu og margir
höfðu starfað sem kennarar við góðan orðstír, um langt
skeið, án réttinda. Björgvin skólastjóri á ísafirði ræddi máiið;
var alveg andvígur launamismun milli „hvítra sauða og
svartra" en taldi nauðsynlegt að kennarar væru vel undir
starf sitt búnir og kynnu sem best að hagnýta sér nýjustu
tæki og vinnubrögð við kennsluna. Sá tími væri liðinn að
stafrófskverið, blaðið og blýanturinn væru helstu kennslu-
tækin. Guðmundur Bernharðsson og Guðmundur Ingi sögðu
frá langri reynslu sinni sem réttindalausir
kennarar, með frumstæða og ófullkomna
aðstöðu, þar sem blýanturinn og pésinn
voru stundum helstu verkfæri nemend-
anna. Samt vildu þeir meina að árangurinn
færi ekki alltaf eftir aðstöðu, kennslugögn-
um eða faglegum réttindum kennarans.
Guðmundur Ingi nefndi sem dæmi að hann
hefði sem ungur maður og réttindalaus leitt
þá fyrstu skrefin á menntabrautinni Þorvald
Garðar og Gils Guðmundsson, við áður-
nefndar aðstæður. Ef að líkum lætur mun
Guðmundur Ingi hafa verið fundarritari og
skilað af sér fundargerð á löglegan hátt, en
það mun hafa verið á kvöldvöku í fundarlok
sem hann las fundargerð í bundnu máli, við
góðar undirtektir. Þar rifjaði hann upp að-
stöðumuninn sem áður gat verið í þéttbýli
og sveit, annars vegar sprenglært réttindafólk í velbúnum
skólum, meðan:
Hinir voru að bögglast með blýant og pésa
en Björgvin mun sjálfsagt telja til lítilla þrifa,
þegar þeir kenndu Þorvaldi Garðari að lesa
og þegar þeir voru að æfa Gils í að skrifa.
Þetta var löng fundargerð og vakti mikla kátínu.
Aths. Vestfirska: Guðmundur Ingi man eftir atvikinu en
segir kvæðið löngu týnt.
Óskum starfsfólki okkar,
viðskiptavinum og Vest-
firðingum gleðilegra jóla
ogfarsaldar á nýju ári.
YERSLUNN
ígOT&FlSKUR
Patreksfirði
Starfsfólk íslandsbanka
óskar landsmönnum allra heilla
a nýju an
og þakkar samskiptin
á árinu sem er að líða.
Gleðilega hátíð!
ISLAN DSBAN Kl
HJA OKKUR FÆRÐU NYJUSTU H/IYNDBONDIN
A ADEINS KR. 300
OPNUNARTIMI UM JOL:
Aðfangadag kl. 11.00-16.00
Jóladag Lokað
Annan íjólum kl. 16-19 og 20-23.30
Videoúrval
Hafnarstræti 11 • ísafirði Sími 3339
Fjögup brúðkaup og jarðarför
Listi Schindlers