Vestfirska fréttablaðið - 20.12.1994, Page 11
VESTFIRSKA
\ FRÉTTABI Anm | ------
þær muni nýtast okkur. Nýjungamar eru okkur oft eins og
leikföng. En við verðum auðvitað að dansa með í heimin-
um. Annars eigum víð á hættu að dragast aftur úr í samfé-
lagi þjóðanna. En það er svo langt frá því að við höfum gert
það. A þessu afmíelisári lýðveldisins hef ég hugleitt míkið
þessar breytingar úr kyrrum kjörum - því hér voru kyrr kjör
fyrir lýðveldisstofnun, fyrir heimsstyrjöld. Ég er einmitt
þessa dagana að semja áramótaræðuna mína og þar velti ég
fyrir mér þeim hugsjónastyrk sem stofnendur lýðveldisins
höfðu þegar þeir litu til framtíðarinnar. Peir settu sér það
markmið að breyta íslensku samfélagi úr kyrrum kjörum í
þjóðfélag sem stæðist allan samanburð við erlend samfélög.
Þeir settu sér það mark að við yrðum sterk, að við yrðum
sjálfstæð þjóð meðal þjóða. Og þetta hefur okkur tekist á
fimmtíu árum. En með öllu því góða sem við höfum flutt
inn og hagnýtt okkur hefur auðvitað flotið sitthvað sem
betur hefði verið vinsað frá sem hismi frá kjama. Öðru
hverju verðum víð að staldra við og skilgreina stöðu okkar
og reyna síðan að gera betur."
- Islensk tunga, staða íslenskrar menningar...
„Ég hef þá bjargföstu trú, að íslensk tunga og menning
muní lífa af. Ég trúi því, að alltaf verði nógu margir í land-
inu sem spoma víð, setja hæla í svörðinn og gæta þess að
tungan týnist ekki, að mínningamar og menningin glatist
ekki. Ef við týnum tungu okkar, þá týnum við og mínn-
íngunum, þá týnum víð samhengí fortíðar, nútíðar og
framtíðar. Ég er í hópi þeirra sem trúa því, og þeir eru
margir núna úti í hinum stóra heimi, að eftir því sem ein-
ingamar verða stærri, því betur komi menn auga á gersemar
þess smáa. Fyrir skömmu var ég einmítt að ræða þetta við
Roman EHerzog, forseta Eýskalands. I nýrri bók eftir John
Naisbitt, sem ber titilinn Qlobal Paradox, eru íslendingar
teknir sem dæmi um eina af hinum minnstu þjóðum heims
sem tekst að halda tungu sinní og menningu lifandi. Ég
vona að ég sé ekki óraunsæ í þessu efni. Pað er bjargföst trú
mín, að alltaf verði nægílega margir í landinu sem meta
menníngu okkar að verðleikum og gæta þess að hún faríst
ekki. Vissulega eru áhrifin að utan svo mikil, að tungu
okkar og menníngu er hætta búín ef ekki er staðið á verði.
Erlend áhrif gætu vissulega drekkt okkar eigin menningu.
Og það er ömurleg tilhugsun - það er svo miklu skemmti-
legra að vera með einhver sérkenni, eins og eigin tungu og
menningu, heldur en að hverfa í þjóðahafið. En ég trúi því
að nánustu kynslóðum okkar takíst að varðveita arfleifðina.
Pað er svo mikil umræða um þetta hjá okkur. Hér á íslandi
er miklu meira fjallað um þær hættur sem geta stafað af
menningaráhrífum að utan en þar sem ég þekki til erlendis.
Og meðan fjallað er um hættuna, þá vita menn af henni og
varast hana."
- Breytingar á fjölmiðlun og fjölmiðlum...
„Fjölmiðlar hafa breyst geysilega mikið - að mörgu leyti
í átt til framfara. Peir spanna míklu víðari svið en áður, en
um leið hafa þeir kannski breytt áherslun sínum. Peir eru
orðnir miklu hnýsnari en áður. Stundum er það erfitt í svona
fámennu þjóðfélagi þegar verið er að fjalla um málefní
einstakra manna og velta sér upp úr einhverju sem hefur
mísfaríst hjá þeim, Mér fellur það yfirleitt ekki vel, vegna
þess að mér verður hugsað til þeírra sem eru í kringum þá,
alsaklausir. Mérverðurhugsaðtilaðstandendaþeirra. Petta
bitnar oft á ærukæru fólki. íslendingar eru nokkuð gjamír
á að dæma þunglega það sem lítið er og lítílvægt, en taka
vægar á því sem veigameira. Pá á ég ekkí við lögbrot,
heldur það sem stærra er í sniðum í samfélaginu en yfir-
sjónir einstaklinga eða smámunir sem varða einstaka
menn.
Mér finnast fjölnriðlar stundum ekki vera agaðir sem
skyldi og sletta ýmsu fram. En það gildir reyndar aðeins um
ákveðinn hluta fjölmiðla, ákveðna grein þeirra. Ég vildi sjá
meiri aga hjá fjölmiðlum og meirí aga í þjóðfélaginu. Mér
finnst samfélagið nokkuð agalaust. Ég er viss um það, að
æskunni myndi falla betur að finna fyrir meiri aga."
- Kennslustörf Vigdísar Finnbogadóttur, fimm ár í MR,
fimm ár í MH, í Háskóla íslands...
„Pað er ein uppáhaldsíðjan mín að kenna. Eínu sinní
skáti, alltaf skáti. Einu sínni húsmóðir, alltaf húsmóðir,- einu
sinni kennari, alltaf kennari! Undan þessu verður aldrei
komist. Ég er haldin þeirri áráttu, að þegar ég uppgötva
einhvern sannleik, eða það sem ég trúi að sé sannleikur, þá
hef ég mikla ánægju af að koma honum áfram til annarra.
Sumir sitja á sannleika sínum. Sumir sitja á þekkingu sínni
og finnst ekkert gaman að miðla henni til annarra. Mér
hefur alltaf þótt gaman að miðla því sem ég veít eða hef
lært. Ég held að allir hljóti að finna það í fari mínu!"
- Nýtíst reynsla kennarans í starfi forsetans! Hvemig er
embætti forseta íslands í raun og veru! í hverju er það
fólgið..!
„Já, mér nýtist alveg ómetanlega sú reynsla að hafa verið
kennari. Einnig sú reynsla að hafa verið leikhússtjóri. Eða
öllu heldur: Áð hafa kynnt mér leikbókmenntir og bók-
menntir almennt.
Bókmenntir fjalla um fólk. Forsetaembættið snýst um
fólk. Forsetinn er þjónn fólksins. Embcetti forsetans er í því
fólgið að hafa samskipti við fólk. Ég held að forverum
mínum, rétt eins og mér sjálfri, hafi fundist erfitt að líta á sig
sem yfir aðra hafna. Pannig er ekki hægt að rækja þetta
embætti, a.m.k. ekki nú á tímum. Embættið er frá fólkinu
- forsetínn er andsvar sem fólkíð skapar. Forsetinn er berg-
mál fólksins. Pjóðín leggur forseta sínum línumar um það,
Þriðjudagur 20. desember 1994
11
hvað hann á að segja, hvemig hann á
að koma fram, hverníg hann á að vinna
verk sitt. íslendingar hafa veríð mjög
natnir við að leggja það upp í hendurnar
á mér, hvemig ég geti þjónað þeim sem
best. Manni tekst það nú aldrei full-
komlega. Pað er ekki hægt að vera við-
hlæjandi allra.
En það er fyrst og fremst sem andsvar
við fólkinu í landinu, sem ég vinn mín
verk. Ég orðin nægilega roskin - ég hef
verið svo lengi á jörðinní, eins og ég
orða það stundum - að ég á ekki til
neina óvild í garð eins eða neins. Að
vísu getur mér sárnað þegar mér fínnst
fjallað af ósanngirni um einhver af
mínum verkum - auðvitað, ég er ekki
skaplaus! En engu að síður finn ég
stöðugt til væntumþykju í garð fólksins
sem lifir í þessu landi. Mig langar svo
mikið til að verk mín verði til fram-
dráttar íslenskri þjóð. Sú löngun stýrir
mínum gerðum allar stundir.
Ég er metnaðargjöm fyrir hönd þess-
arar þjóðar. Víð búum við hörð kjör og
við gerum þau góð, Par er okkar eiginn
kraftur að verki.
Mannlíf hér á Íslandí er almennt
miklu, míklu betra en gengur og gerist
í öðrum löndum. Pegar ég hitti íslend-
inga erlendis, þá er ég alltaf svo glöð að
finna fyrir þessu. íslendingur erlendis er
hafrekið sprek á annarlegrí strönd, hvar
sem maður kemur í heimínum, Hann
hefur alltaf tapað einhverju og hann er
alltaf á leiðinni heim til að finna það
aftur."
- Að vera íslendingur...
„Mér finnst að víð ættum oftar að
staldra við og meta kostí þess að vera
Islendíngar, kosti þess að fá að vera í
friði í þessu landi. Víð hugsum kannski ekki nógu oft út í
þessa hluti. íslensk vinkona mín, sem býr í Bretlandi, segir
að það ættí að senda alla íslendinga niður í ensku Mið-
löndin og láta þá vera þar í tíu daga eða svo! Pá muni þeír
læra að meta þjóðerni sitt, þá muni þeir læra að meta ísland.
Strax og komið er sunnar í álfuna, þá sést að almenningur
hefur það ekki eins gott og hér á landi. Par er bara efnafólk
sem hefur það eins gott og íslenskur almenningur.
En við eigum auðvitað við okkar andstreymi að stríða,
eins og aðrar þjóðir. Par finnst mér atvinnuleysið verst.
Atvinnuleysið er mesta böl sem yfir okkur íslendinga hefur
dunið á [ýðveldistímanum. Á því verður að finna lausn.
Pegar það hefur tekist, þá öðlumst við - við öll - aftur þann
styrk sem við þurfum á að halda, vegna þess að í okkar fá-
menna þjóðfélagi hcfur hver einstaklingur svo mikið gildi.
Mér er það kappsmál að við gætum að menntun þjóð-
arinnar. Pað skiptir öllu þegar horft er tíl framtíðar, að víð
drögumst ekki aftur úr. Við erum svo fámenn og styrkur
okkar felst í því að vera vel að okkur til munns og handa.
En fyrst og fremst verður að koma málum þannig, að eng-
inn þurfi að sitja auðum höndum hjá fámennri þjóð, sem
þarf svo nauðsynlega á hverjum einstaklingí og kröftum
hans að halda."
Aftur víkur talinu að hinum öru breytingum á samfélag-
ínu. Dæmi: Pegar Vigdís Finnbogadóttir kenndi við
Menntaskólann í Reykjavík á sínum tíma, þá þéruðu
nemendur kennara og kennarar nemendur. Nú þúast forseti
íslands og fólkíð í landinu...
„Ég held að þéringar komi aftur. Pær eru að koma aftur
annars staðar á Norðurlöndum. Pað að þúa kom með 68-
kynslóðinni, sem gerði þéringar að hégóma, fannst þetta
vera tildur. En þéringar eru ákveðið virðingarform. Við
þérum þá sem okkur finnst við þurfa að sýna virðingu og
djúpa kurteisi. Núna er hvergi þérað á Íslandí nema í tal-
sambandi við útlönd! Par er öllum kennt að þéra til vonar
og vara, því að stundum þarf að hafa samband við lönd þar
sem það telst mikil ókurteisi að þúa ókunnuga.
Mér finnst það nú ósköp notalegt og fallegt að þúa, en
það er stundum erfitt að útskýra það fyrir fólki annars staðar
í heiminum að allir skuli þúast á íslandi og ávarpa hver
annan með fomafni. Pá er ég stundum spurð: „Hvemíg
farið þið þá að því að aðgreina þá sem þið þekkið mjög vel
og hina sem þið þekkið ekki neitt..!" Svarið er auðvitað, að
sú aðgreiníng felst í háttalagí mannsins, svípbrigðum og
blæbrigðum persónunnar. Petta er bara kurteisi samfélags-
ins."
- Jólin, jólahald forsetans...
„Jólahaldið á mínu heimíli er mjög hefðbundíð. Jólín eru
undírbúin að eíns miklu leyti fyrirfram og kostur er. Pað er
bakað svolítið og séð til þess að nóg sé til handa gestum og
gangandi - og handa fjölskyldunni líka! Á aðfangadags-
kvöld borðum við annaðhvort rjúpur eða gæs eða eitthvert
annað góðmeti. Núna er það að færast í vöxt hjá yngra fólkí
að borða svínasteik á aðfangadagskvöld. Á jóladag borðum
við alltaf hangikjöt. Iðulega er hangikjötið soðið á Porláks-
messu og þá borðum við það heitt. Pað líkar ykkur Vest-
firðingum víst ekki, þið eruð með skötuna ykkar á Porláks-
messu. Síðan etum við kalt hangikjöt á jóladag. Klukkan tvö
á jóladag förum við í kirkju á Bessastöðum.
Ég sakna þess mjög, að í gamla daga var svo mikið lesið
og spilað á jólunum. Mér finnst ekkí sama ró til þess núna.
Að vísu er ekki alveg að marka mig í mínu starfi, vegna þess
að jólin fara alltaf í það að skrifa og undirbúa áramót. Ég les
mínna á sjálfum jólunum en áður, en ég les mikið fyrir jól.
Ég er svo forvitín! Ég reyni að komast yfir eins mikið af
nýjum bókum fyrir jólin og ég get og kynna mér þær. Svo
les ég líka eftir jólin.
Vonandi er ennþá mikið lesið á íslenskum heimilum yfir
jólin. Pað er gömul hefð sem við megum ekki rjúfa.
Og svo förum við í leiki. Ætli að sé nú ekki gert víða
ennþá, að leika bókatítla og fara í leiki við bömin! Við fór-
um í svo mikið af jólaleikjum í gamla daga. Pá var mikið gert
til þess að gera jólin minnisverð fyrir okkur börnin, með
ýmsu öðru en gjöfum. Og auðvitað gengum við í kringum
jólatréð og sungum. Enn í dag kann ég öll erindin í öllum
jólasálmunum. Ég tek eftir því að böm gera það yfirleitt ekki
lengur. Og svo var spilað. Leikímir sem við fórum í reyndu
alltaf svolítið á þroska barnanna.
Ég ber ómælda virðingu fyrir jólunum. Ég vil gera jólin
hljóðlátari. Um daginn sá ég auglýst námskeið til hjálpar
þeim sem haldnir eru jólakvíða. Pað kom á daginn að þetta
námskeið snýst um þá áráttu fólks að þurfa gera einhver
lifandis ósköp fyrir jólin. Vissulega er gott og blessað að hafa
hreint og fágað í kringum sig. En það má ekki að ganga út
í þær öfgar að menn njóti þess ekkí að jólin eru hátíðin þegar
Ijósið birtist okkur, daginn tekur að lengja og við förum að
horfa til nýrra gróskutíma í hringrás lífsins. Fyrir utan það
er boðskapur jólanna svo fallegur. Mér finnst eins og hann
falli stundum dálítið í skuggann.
Boðskapur jólanna snýst um eftirbreytni. Hann er boð-
skapurinn um fyrirmyndina. Par er komið til skila boðskap
um eftirbreytni, eftir mjög flóknum leiðum, með flóknum
dæmisögum. „Verði þinn vilji, til komi þitt ríki..."
Pegar ég var barn hugsaði ég oft: „Hvað er átt við með
þessu? Hvaða ríki er verið að tala um!"
Auðvitað er hér átt við samfélag þar sem reynt er að
breyta eftír hugsjónum kristninnar, boðskap jólanna. Pað
myndi færa okkur betra líf ef farið væri eftir þessum boðskap,
sem vírðist svo erfitt fyrir okkur mennina að sinna. Ef jólin
eru einungis kapphlaup um veraldleg gæði, þá höfum við
engan tíma til að sinna boðskapnum.
Tvær hátíðir ársins eiga alveg sérstakan sess í huga mér,
jólin og páskamir. Pessar kristnu hátíðír minna okkur á, að
það er til boðskapur í heiminum, sem veitir okkur leiðsögn
í lífinu. Pama er til boðskapur, ákveðið lögmál, ákveðnar
reglur, sem geta hjálpað mönnunum að lifa í sátt við sjálfa
sig."
Pað líður að lokum heimsóknarinnar til Vígdísar Fínn-
bogadóttur, forseta íslands. Vestfirska fréttablaðið óskar
henni gleðilegra jóla og farsældar og þakkar fyrir samtalið.
Hlynur Pór Magnússon