Vestfirska fréttablaðið - 20.12.1994, Page 12
VESTFIRSKA
12
Þriðjudagur 20. desember 1994
---- ----- ----------- \ i tM l I ABI.AfíU)
Minningar frá liönu sumri:
Hrafnseyrarhátíð 17. júní 1994
Á þjóðhátíðardaginn 17. júnf
síðastliðinn fjölmenntu Vest-
firðingar til Hrafnseyrar í Am-
arfirði til að heiðra minningu
Jóns Sigurðssonar, sem fæddist
þar 17. júní 1811 og fagna 50
ára lýðveldisafmæli. Fóru há-
tíðarhöldin fram á vegum
Hrafnseyrarnefndar.
Dr. Jóhannes Nordal flutti
ræðu dagsins, en þess má geta
að faðir hans, dr. Sigurður Nor-
dal, flutti hátíðarræðu á
Hrafnseyri 17. júní 1944, við
stofnun lýðveldis.
Guðsþjónusta fór fram í
Minningarkapellu Jóns Sig-
urðssonar og messaði þar séra
Kristinn Jens Sigurþórsson
sóknarprestur og Kirkjukór
Þingeyrar söng ásamt barnakór
þaðan, undir stjórn Guðmundar
Vilhjálmssonar organista og
söngstjóra.
Foreldrasamtök og nemend-
ur grunnskólanna á Þingeyri, í
Holti og á Flateyri, ásamt
Leikfélagi Flateyrar, höfðu veg
og vanda af fjölskylduskemmt-
un sem fram fór á palli undir
Bælisbrekku, þar sem Jón Sig-
urðsson mun hafa leikið sér
ungur sveinn, en þar er áhorf-
endasvæði gert af náttúrunnar
höndum. Leikstjóri var Ey-
vindur Erlendsson.
Veður var gott framan af
degi en gerðist nokkuð hrá-
slagalegt þegar á leið. Þóttu
hátíðarhöldin takast mjög vel
og er talið að um 1200 manns
hafi verið saman komin á
Hrafnseyri þennan dag. Með-
fylgjandi myndir tóku Steinþór
Gunnarsson og Hallgrímur
Sveinsson.
Ólafur Helgi Kjartansson,
sýslumaður ísafjarðarsýslu,
flytur minni Jóns Sigurðs-
sonar og fæðingarstaðar
hans. Ólafur skrýðist hinum
fallega hátíðarbúningi sýslu-
manna.
Hluti af hátíðargestum í Bælisbrekku. I forgrunni formaður Hrafnseyrarnefndar, Þórhallur
Ásgeirsson og kona hans Lilly.
Hér sér yfir hluta af bílaflota hátíðargesta. Gott skipulag var á umferðarmálum undir stjórn
lögreglunnar á ísafirði.
Or. Jóhannes Nordal flytur
hátíðarræðu í Minningarkap-
ellu Jóns Sigurðssonar.
Ræðunni var varpað út í
gjallarhornum yfir hátíðar-
svæðið.
Nokkrir ánægðir hátíðargestir af eldri kynslóðinni frá Þing-
eyri og ísafirði.
Séð yfir hátíðarsvæðið frá Bælisbrekku.
Fjölskyldustemmning úr Bælisbrekku. í forgrunni Angantýr Valur Jónasson frá Þingeyri og
kona hans Edda Ársælsdóttir með börnum sínum.
Hin gömlu einkunnarorð ungmennafélaganna, „íslandi allt“,
voru á borða sem strengdur var yfir minnismerki Jóns Þjóðdansar stignir í íslenskum búningum. Skólabörn og
Sigurðssonar frá 1911. foreldrar úr Önundarfiröi.
Viö óskum Vestfirðingum gleöilegra jóla,
árs og friðar og þökkum samstarfið
á árinu sem er að líða
vátryggingafélag
^/IBf ÍSLANDS HF