Vestfirska fréttablaðið - 20.12.1994, Side 13
VESTFIRSKA
FRÉTTABLAÐIÐ
|^^^^^^^^^^^^^^^^^ric\judagur^20^desembcH994
13
SMÁ-
AUGLÝSINGAR
Til sölu Mazda 626 árg.
1982 í mjög góðu
standi. Nýskoðuð 1995.
Uppl. ís. 1409.
Tilsölu BMW 518 árg.
1982, skoðaður 1995.
Uppl. í s. 1409.
sma
Tveir fallegir og Ijúfir
hvolpar fást gefins. Eru
undan hreinræktaðri ís-
lenskri tík, faðir líklega
líka íslenskur. Sími
4893.
Barnakerra, tveir barna-
bílstólar og barnaleik-
grind fást gefins. Sími
5161.
Nintendo tölva m/byssu
og sjö leikjum óskast í
skiptum fyrir Sega
tölvu. Sími 4942.
Vélstjórar, ísafirði. Aðal-
fundur Vélstjórafélags
ísafjarðar verður hald-
inn 2. dag jóla í húsi Vf.
Baldurs og hefst kl. 2.
Venjuleg aðalfundar-
störf og önnur mál.
Stjórnin.
Bókatíðindi
Út er komin bókin
Golfaragrín eftir Braga
V. Bergmann. Hún hefur
að geyma kímnisögur um
kylfinga og aðra þá. sem
tengjast golftnu. Bókin ber
undirtitilinn Hláturinn
lengir lífið. I henni segir
m.a. af fjölskyldulífi og
heilsufari ónafngreindra
kylfinga; kylfusveinum,
klaufum og svindlurum,
fíklum og karlrembum.
Svörtust er kímnin í kafla
sem heitir Gálgahúmor, en
þar segir m.a. af guðs-
mönnum á golfvellinum.
Bókin hefur einnig að
geyma spakmæli, skop-
legar skilgreiningar á
helstu hugtökum golfí-
þróttarinnar og óábyrga
sagnfræði um tilurð golfs.
SÍMI
4011
FAX
4423
VESTFTRSKA
| FRÉTTABLAÐIÐ 1
;'ý'//-é^ípt-á!-t4i^a;-K4ófT.r;tq;tt^y.irt;nin$nö;t^Xsí-tAtaáá-:;;.'.e!f!évb;-V!'
•V.ýV^-óaiúíúÍý^^^
A/Vv'/v;-^
yy/’Vyyý'Vyy^
Komdu
bíó
.fOLAyíYiNlHRNAR l
Wm
M£nwcL annúil í jqlurn
pg þríðjnd, kl, 9
FIMMTUDAGSKVÖLD TIL 01
Pöbbinn opinn
FÖSTUDAGSKVÖLD TIL 03
Þorláksmessudiskó tek
MÁNUDAGSKVÖLD annan íjólum
J óladansleikur
HLJÓMSVEITIN
SKEMMTIR
Nýtt 6 manna band með Gumma Hjalta
og Þórunni Snorra í fararbroddi
18 ár öll kvöldin
Ganga bleikir fílar
á inniskóm?
- Af leiklistarstússi ísfirskra unglinga
Að frumkvæði hóps ísfirskra
ungmenna hefur verið stofnuð
Ungliðadeild Litla leikklúbbs-
ins (U.L.L.), og nú milli jóla og
nýárs stefna þau á sína fyrstu
frumsýningu. Um er að ræða
frumflutning á leikritinu
„Bleikir fílar á inniskóm" eftir
tvítugan Fáskrúðsfirðing, Jónas
Friðrik Steinsson.
Hópurinn hefur fengið til
liðs við sig Vigdísi Jakobsdótt-
ur leikstjóra, sem sjálf starfaði
með Litla leikklúbbnum fyrir
nokkrutn árum, og hafa þau æft
stíft undanfarnar vikur.
Leikritið er í léttum dúr með
mikilli tónlist, en undirtónninn
er alvarlegri, þar sem fekin er
fyrireiturlyfjaneysla ungs fólks
og afleiðingar hennar.
Að sögn Vigdísar hafa æf-
ingar gengið vel. Um 30 ung-.
lingar koma nálægt sýningunni
í allt, þar af 16 leikarar. Nánast
öll tæknivinna er í höndum
unglinganna sjálfra; hönnun
leikskrár og veggspjalds,
sviðsmynd, búningar og förðun
svo eitthvað sé nefnt. Félagar
úr eldri deild LL hafa sinnt
leiðbeinandi hlutverki í undir-
búningnum..
Aldurshópurinn er breiður -
allt frá þrettán ára ög upp í tví-
tugt - ^n Vigdís kveður það
ekki hafa verið til vandræða,
þvert á móti verið til góðs:
„Þetta eru allt orkumiklir og
yndislegir krakkar sem eru til-
búnir til að gefa mikið af sér. I
þessari vinnu fá þau tækifæri til
þess að gera einmitt það, og þá
skiptir aldurinn ekki lengur
máli. Aðaláherslan hjá okkur
hefur líka verið að hafa gaman
af ferlinu. Þá fyrst fær sköpun-
argleðin að njóta sín. Ég vona
bara að bæjarbúar sýni þessu
framtaki krakkanna stuðning.
Þau eiga það skilið.“
Bleikir fílar á inniskóm
verða sýndir í sal Grunnskólans
á Isafirði, en svið hefur verið
útbúið á gólfi salarins fyrir
sýninguna. Frumsýning verður
miðvikudaginn 28. desember
kl. 20, og 2. sýning föstudaginn
30. desember á sama tíma.
Forsala aðgöngumiða er hafin
í s. 3856 milli kl. 20 og 22 öll
kvöld.