Vestfirska fréttablaðið - 20.12.1994, Page 16
16
Þriðjudagur 20. desember 1994
VESTFIRSKA
J FRÉTTABLAPIÐ
Óveöur á jólaföstu:
Norðaustan stórhríð, mað-
ur bjargast úr snjóflóði í
Súðavík og hús yfirgefin í
Hnífsdal og á ísafirði
- Ernir í sjúkraflug til Bíldudals
í slæmu veðri og lélegu skyggni
Mikið hvassviðri gerði á Vestfjörðum á laugardag með
norðaustan stórhríð sem hélst alla helgina. Á (safirði fór að
bera á ófærð þegar liða tók á laugardaginn og aðfararnótt
sunnudagsins herti veðrið til muna og lokuðust allir vegir.
Að morgni sunnudags var vegurinn um Skutulsfjarðarbraut
ruddur með tækjum Vegagerðarinnar, en horfið var frá því
að moka Hnífsdalsveginn vegna veðurs. Var mönnum
ráðið frá þvi að hreyfa ökutæki innanbæjar, enda með öllu
ófært. Sem dæmi um ófærðina varð kaupmaður á Eyrinni
að vaða margra metra djúpa skafla á leiðinni til vinnu sinnar
á sunnudaginn úr Sundstræti yfir í Aðalstræti. Á laugar-
dagskvöld varð fólk að yfirgefa fjóra bíla á Breiðadalsheiði
sem festu sig vegna ófærðar. Undir miðnætti á laugar-
dagskvöldið hóf Twin Otter fiugvél frá Flugfélaginu Ernir sig
til flugs frá (safjarðarflugvelli ti að freista þess að sækja
konu sem veikst hafði á Bíldudal og þurfti að komast á
sjúkrahús í Reykjavík. Veður á ísafirði var slæmt þegar
þetta var og skyggni mjög lítið. Ernismenn létu það ekki á
sig fá og tókst þeim að komast til Bíldudals þar sem skilyrði
til lendingar voru ágæt þrátt fyrir að ófært væri á Patreks-
fjarðarflugvelli fáum kílómetrum vestar. Frá Bíldudal var
síðan haldið með konuna til Reykjavíkur og gekk flugferðin
vel. Þá leitaði fjöldi skipa vars undir Grænuhlíð í ísafjarð-
ardjúpi og eins inn á Dýrafirði.
Rafmagnstruflanir
Óveðrinu hafa fylgt miklar rafmagnstruflanir á Vestfjörð-
um þar sem Vesturlína datt út hvað eftir annað aðfaranótt
sunnudags. Fljótlega var því gripið til þess ráðs að gang-
setja varaaflsstöðvar um alla Vestfirði. Rafmagnslaust var
á mörgum bæjum á Ströndum og í Reykhólasveit þar sem
staurar brotnuðu.
Snjóflóð í Súðavík
Á sunnudag féll snjóflóð í innanverðu Súðavíkurþorpi og
lenti þar á íbúðarhúsinu Saurum. Einnig fórflóðið á bílskúr
við hús þar skammt frá og eyðilagði útihús þar fyrir utan.
Einn maður var í húsinu sem lenti í flóðinu og er talið gjör-
ónýtt. Þegar menn úr Björgunarsveitinni Kofra komu á
staðinn fundu þeir manninn sem heitir Karl Georg Guð-
mundsson, fastan í snjónum við húsið. Var hann orðinn
mjög kaidur, enda búinn að bíða í rúman klukkutíma í
snjónum. Komu björgunarmenn Karli til hjálpar og tókst að
draga hann í næsta hús við illan leik þar sem hafist var
handa við að koma hita í hann. Fór hann fljótlejga að
braggast og eftir skoðun á Fjórðungssjúkrahúsinu á Isafirði
virðist honum ekki hafa orðið meint af.
Snjóflóðið sem þarna féll kom úrTraðargili sem er þekkt
vegna snjóflóða. Flóðið á sunnudaginn hefur verið nokkuð
stórt, því það fór alla leið niður að Aðalgötu sem er við
sjóinn. í kjölfar flóðsins voru ein átta hús rýmd sem talin
voru vera innan hættusvæðis.
Karl Georg missti nær allar eigur sínar í flóðinu, utan
nokkrar kindur sem lifðu hamfarirnar af. Búið er að opna
reikning í Sparisjóði Súðavíkur þar sem fólki gefst kostur
á að leggja inn fjármuni til aðstoðar Karli á sparisjóðsbók
númer 1000.
Hús rýmd í Hnífsdal og á Isafirði
Almannavarnanefnd á ísafirði tók þá ákvörðun eftir há-
degi á sunnudag að láta rýma hús við Smárateig, Fitjateig
og Heimabæ í Hnífsdal, auk þess sem hesthúsabyggðinni
þar var lokað fyrir allri umferð fólks. Fólki sem yfirgefa þurfti
hús sín var safnað saman í Félagsheimilið og flutt þaðan
með bílum ýmist til ættingja _eða á Hótel ísafjörð og
heimavist Framhaldsskólans. Á ísafirði var fólki gert að
rýma sjoppuna Brúarnesti og húsið Seljaland sem stendur
þar rétt hjá. Mikil ófærð var á götum ísafjarðar og var ekki
hafist handa við ruðning á öðrum götum en Skutulsfjarðar-
braut og Hnífsdalsvegi fyrr en að kvöldi sunnudags þegar
veðrinu slotaði.
Hátíðaruppskrift
frá Magnúsi Hanssyni í Bolungarvík
Forréttur
Laxamús með reyktum laxi
fyrir 6-8 manns
500 g reyktur lax
800 g nýr lax
1 dós sýrður rjómi
4 msk hveiti
4 egg
hálf tsk hvítur pipar
1 -2 tsk salt
2 dl rjómi, þeyttur
1 tsk þriðja kryddið
hálfur mulinn Knorr fiskiteningur
örlítill sítrónusafi
Nýi laxinn er hakkaður. Öllu nema reykta laxinum
blandað saman við og hrært vel. Sett í lítil, smurð
form og bakað í 175°C heitum ofni í 30 mínútur.
Kælt.
Sósa:
2 dósir sýrður rjómi
salt, pipar
1 tsk Dijon sinnep
1 hvítlauksgeiri, pressaður
1/4 tsk finkull
saxaður graslaukur
Öllu blandað saman nema örlitlu af graslauknum,
sem er notaður til skrauts.
Að setja réttinn saman:
Reykti laxinn er hreinsaður, skorinn í litla teninga og
raðað á diska ásamt laxamúsinni. Salatblað er sett á
hvern disk, skreytt með sneið af niðursoðinni peru
og nokkrum radísusneiðum. Ofan á hverja mús er
sett örlítið af sósu og söxuðum graslauk stráð yfir.
vj,/
Aðalréttur
Innbakaðar lambalundir í smjördeigi
handa fjórum
300 g smjördeig
800 g lambalundir
1 eggjarauða
salt, pipar, timian
1 skammtur löguð kartöflumús úr pakka
Sveppamauk:
50 g sveppir
20 g laukur
4 msk brauðmylsna
pipar, salt
Kjötið er kryddað með pipar og salti, timian stráð
yfir. Steikt á vel heitri pönnu stutta stund til að loka
kjötinu og það síðan kælt. Smjördeigið er flatt út,
kjötið sett í miðjuna og sveppamaukinu smurt yfir
kjötið. Þá er deiginu lokað og það smurt með
eggjarauðu og bakað í 180°C heitum ofni í 20 mín-
útur.
Sveppamauk: Sveppirnir skornir í sneiðar, lauk-
urinn skorinn fínt. Steikt á pönnu með brauðmylsnu
og kryddað með salti og pipar. Kælt.
Kartöflutoppar: Kartöflumúsinni er sprautað í litla
toppa á bökunarplötu. Bakað í ofni við 180°C í 5
mínútur. Borið fram með fersku grænmeti og
brúnni sósu.
Eftirréttur
Ferskir ávextir með Grand Marnier
jarðarber, kiwi, bláber, græn og blá vínber
suðusúkkulaði
Brytjið allt smátt, setjið í skál og hellið Grand
Marnier yfir. Látið standa í kæli í 2 klst.
Uppskrift ogjóla-
kvebja til vibskipta-
vina frá Tœ Vœ
á Isaftrbi
1 dós kókosmjólk
1-3 msk Yellow Curry Paste
3 msk fiskisósa (austurlensk)
1 msk sykur
Sett í pönnu og látið sjóða í 15 mínútur. Síðan er sett
útí:
hálfur teningur kjúklingakraftur
250-300 g kjúklingur
V4 bolli bambus
2-3 litlar soðnar kartöflur
Látið krauma í 10 mínútur. Borið fram með hrís-
grjónum.
Jólatilboð á Siemens uppþvottavél 59.900 stgr.
Tryggið ykkur eintak á þessu frábæra verði
Dagana 27. desember
til 30. desember og 2., 3.,
og 4. janúar verður opið
frá kl. 13 til 18
V.V. HÁRSKERI
Hafnarstræti 11, ísafirði