Vestfirska fréttablaðið - 20.12.1994, Page 17
VESTFffiSKA
FRÉTTABLAÐIÐ
j^^^^^^^^^^^^^^ri^udagui^0^1esembeiM994
17
Vestfjarðagöng
opnuð fyrir
takmarkaðri
umferð til
Súgandafjarðar
- Vegagerðarmenn afhentu kvenfélaginu Ársói tvö
jólatré að gjöf í tilefni dagsins
Á tíunda tímanum í gær-
morgun (mánudag) var Súg-
andafjarðarleggur Vestfjarða-
ganganna formlega opnaður
fyirir takmarkaðri umferð. Það
var Gísli Eirfksson umdæmis-
verkfræðingur Vegagerðar-
innar á Vestfjörðum sem lýsti
yfir opnun ganganna og af-
henti hann Kvenfélaginu Ársól
á Súgandafirði tvö myndarleg
jólatré að gjöf af þessu tilefni.
Starfsmenn verktaka og Vega-
gerðarinnar voru mættir við
þessa athöfn við gangamunn-
ann í Botnsdal, auk fulltrúa
fjölmiðla á svæðinu. Það var
Ingibjörg Sigfúsdóttir sem tók
við jólatrjánum fyrir hönd
kvenfélgsins Ársólar og að þvf
búnu settust menn upp í bíla
sína og óku um göngin til Isa-
fjarðar með Halldór Karl Her-
mannsson sveitarstjóra á
Suðureyri í broddi fylkingar,
en þetta var jafnframt í fyrsta
skiptið sem hann fór í gegnum
þessi göng.
Eins og fyrr segir er um
takmarkaðan opnunartíma að
ræða, þar sem frágangi á
gangagólfinu er enn ekki lokið.
Opið var á mánudaginn frá
klukkan rúmlega 9 til 18. Opið
verður miðvikudaginn 21. des-
ember kl. 9 til 18, fimmtudag
22. kl.9til 18, föstudaginn 23.
kl. 9 til 24, mánudaginn 26. kl.
13 til 21, miðvikudaginn 28. kl.
9 til 18 og föstudaginn 30.
desember kl. 9 til 18.
- hk.
Gísli Eiríksson umdæmisverkfræðingur Vegagerðar ríkisins
afhendir Ingibjörgu Sigfúsdóttur tvö jólatré að gjöf til
kvenfélagsins Ársólar á Suðureyri í tilefni af opnun gang-
anna. Lengst til hægri er Halldór Karl Hermannsson
sveitarstjóri á Suðureyri.
Aðalfundur
Aðalfundur fulltrúaráðs Sjálfstæðisfélaganna á ísafirði verður haldinn að Hafnarstræti 12, 2. hæð, þriðjudaginn
10. janúar 1995 kl. 20.30.
Dagskrá: 1. Skýrsla stjórnar. 2. Lagðir fram reikningar. 3. Kosningar. 4. Bæjarfulltrúar kynna fjárhagsáætlun.
JJf
5. Önnur mál. Stjórnin.
Þetta eru fyrstu hjólreiðamennirnir sem fara í gegnum Vestfjarðagöng til Súgandafjarðar
eftir að umferð var hleypt á göngin. Talið frá vinstri: Salmar Jóhannsson, Heimir Snorrason,
Hrafn Snorrason og Gunnar Oddsson. Annars eru fjallahjól ætluð til þess að fara yfir fjöll en
ekki undir þau.
Fulltrúar verktaka, Vegagerðarinnar og Súgfirðinga við athöfnina þegar umferð var formlega
hleypt í fyrsta skiptið á hluta Vestfjarðarganga.
Vestfjarðagöng
Botnsheiðargöng verða opin
fyrir akandi umferð sem hér segir:
Miðvikudag 21. des.’94 kl.9-18
Fimmtudag 22. des.’94 kl. 9-18
Föstudag 23. des. ’94 kl. 9-24
Mánudag26. des.’94 kl.1321
Miðvikudag 28. des.’94 kl. 9-18
Föstudag 30. des. ’94 kl. 9-18
Eftir áramót verða þau opin:
Mánudaga - miðvikudaga - föstudaga
kl. 9-12 og 17-18
og laugardaga kl. 10-12.
Bíðið við gangamunna.
Hleypt verður í gegn á u.þ.b.
15 minútna fresti.
VEGAGERÐIN
Sextugur
Kristínn Jón Jónsson,
Brautarholtí 13, ísafirði,
rekstrarstjóri
Vegagerðar ríkísins, verður
sextugur á jóladag, 25. desember.
Hann tekur á mótí gestum í sal
Frímúrara í Hafnarhúsínu
föstudaginn 30. desember
kl. 18-21.
!l 0 UA'H WlR,rJD RÆtT iT il
KR ABB AMEINSF
VEITTU STUÐNIN
ElAGSINS 1994
G - VERTU MEÐ!
í þetta sinn voru miðar sendir konum, á éldri
sem þegar hafa borgað miðana og minnum þiné
Greiða má í banka, sparisjóði eða pói
Vakin er athygli á því að hægt er að
Hringið þá í síma^9J) 621414.
Hver keyptur miöi eflir sókn og vörn gegn krabbameini!
3ja - 75 ára. Við þökkum öllum þeim
ðan malstað og verðmæta vinninga.
iðslu til hádegis á aðfangadag jóla.
ieð greiöslukorti (Visa, Eurocard).