Fréttablaðið - 28.04.2016, Síða 4

Fréttablaðið - 28.04.2016, Síða 4
Glitrandi hrein glös úr Bosch uppþvottavél! Nú á sérstöku tilboði. Opið virka daga frá kl. 11 - 18 og á laugardögum frá kl. 11 - 16. Uppþvottavél SMU 50M92SK Orkuflokkur A++. 13 manna. Fimm kerfi. Hljóð: 44 dB. Tímastytting þvotta- kerfa. Hæglokun á hurð. „AquaStop“-flæðivörn. Tilboðsverð: Fullt verð: 118.400 kr. 89.900 kr. Uppþvottavél SMU 50M95SK (stál) Orkuflokkur A++. 13 manna. Fimm kerfi. Hljóð: 44 dB. Tímastytting þvotta- kerfa. Hæglokun á hurð. „AquaStop“-flæðivörn. Tilboðsverð: Fullt verð: 134.200 kr. 99.900kr. FRÁBÆRT VERÐ! Heilbrigðismál Allt að mánaðarbið er eftir lausum tíma hjá heimilislækni á heilsugæslustöðvum höfuðborgar­ svæðis samkvæmt könnun Frétta­ blaðsins. Þá heyrir til undantekn­ inga að það sé laus heimilislæknir og því flestir sem flytja nýir í hverfi borgarinnar skráðir á stöð án heim­ ilislæknis. Einnig hefur reynst erfitt á mörgum heilsugæslustöðvum að manna allar stöður. „Það er ekki gott að fá heimilis­ lækna,“ segir Sigríður Dóra Magnús­ dóttir, yfirlæknir á heilsugæslustöð Miðbæjar. „Það er vegna langtíma skorts. Það hefur til að mynda ekki verið settur peningur í að manna námsstöður í langan tíma.“ Frumvarp Kristjáns Þórs Júlíusson­ ar heilbrigðisráðherra til breytinga á lögum um sjúkratryggingar kveður á um nýtt greiðsluþátttökukerfi fyrir heilbrigðisþjónustu sem hefur meðal annars það að markmiði að styrkja hlutverk heilsugæslunnar sem fyrsta viðkomustaðar fólks í heilbrigðis­ kerfinu. Þannig þurfa foreldrar að fá tilvísun hjá heimilislækni til að fá niðurgreidda sérfræðiþjónustu. Sigríður segir börn alltaf vera sett í forgang á heilsugæslustöð Miðbæjar. Aðspurð hvort stöðin ráði þó við enn meira álag með tilvísunarkerfi segir hún erfitt að spá þegar hún hafi ekki forsendurnar. „En nei, ég sé ekki fyrir mér að við ráðum við það eins og staðan er í dag.“ Enginn greiði við barnafjölskyldur Ólafur Alexander Ólafsson heilsu­ hagfræðingur segist styðja það fyrir­ komulag að heilsugæslan sé fyrsti við­ komustaður í heilbrigðiskerfinu en nauðsynlegt sé að efla hana um leið. „Það er verið að auka álagið á heilsugæsluna og í stað þess að auka féð í samræmi við það er tekið af henni fé vegna þriggja einkarekinna heilsugæslustöðva. Þetta mun leiða til lengri biðlista og því er þetta enginn greiði við barnafjölskyldur sem þurfa oft hraða þjónustu, vegna eyrnabólgu og annars slíks.“ Ólafur segir breytingarnar í frum­ varpinu ekki trúverðugar. „Heilsu­ gæslan er þegar sprungin og mun hún þá springa meira? Þetta er ekki aðgerð sem er ætlað að skila árangri því það er ekki verið að veita aukið fé í heilsugæsluna til að takast á við nýjar áskoranir og veruleika.“ Illa ígrundað tilvísunarkerfi Þorbjörn Jónsson, formaður lækna­ félags Íslands, tekur undir með Ólafi. „Heilsugæslan ræður ekki við verkefnið að fullu. Það er ekki búið að skapa þær forsendur,“ segir Þor­ björn sem segir greiðan aðgang fólks að sérfræðiþjónustunni hafa létt á kerfinu hingað til. „Það er þessi greiði aðgangur sem útskýrir hvers vegna við búum að þessari góðu þjónustu. Það er óumdeilt að fyrir þá fjárhæð sem ríkið leggur í sérfræðiþjónustu, þá fær það mikla þjónustu á móti sem heilsugæslukerfið hefur ekki verið fært um að veita og verður ekki fært um að veita.“ Þorbjörn segir skort á heimilis­ læknum standa í vegi fyrir breyting­ um á kerfinu. Þá gagnrýnir hann að tilvísunarkerfi hafi ekki verið skoðað betur. „Það er nauðsynlegt að sérfræðilæknar geti tilvísað sjúk­ lingum sín á milli. Það er ekkert víst að þótt heimilislæknir vísi á lungna­ sérfræðing þá dugi það til. Lunga­ sérfræðingur gæti séð að það þyrfti annars konar sérfræðing eða viljað annað álit.“ Þorbjörn segir góða hugsun í því að létta byrðina á veikustu sjúk­ lingunum. „Það hefði samt verið eðlilegast að ríkið legði einfaldlega aukna fjármuni til þeirra. Það er um það bil milljarður sem ber á milli til þessa hóps.“ Hann segir alltof skamman tíma til stefnu. „Þetta er lykilmál og því alltof skammur tími fyrir okkur að bregðast við. Það þarf að ræða ígrundað um útgjöld vegna heilbrigðisþjónustu og aðgengi að henni,“ segir Þorbjörn. erlabjorg@frettabladid.is kristjanabjorg@frettabladid.is Heilsugæslan ræður ekki við verkefnin Í frumvarpi um nýtt greiðsluþátttökukerfi fyrir heilbrigðisþjónustu er gert ráð fyrir að heimilislæknar veiti tilvísun til sérfræði- lækna. Sérfræðingar og læknar segja heilsugæsluna á höfuðborgarsvæðinu ekki ráða við álagið núna vegna manneklu og fjárskorts. nýsköpun Embla, 11 metra strand­ gæslubátur sem byggður er á bylt­ ingarkenndri hönnun skrokklags Rafnar ehf., lagði í gærmorgun úr Reykjavíkurhöfn, en ferðinni er heitið á eina stærstu bátaráðstefnu heims í Gautaborg í Svíþjóð. Aldrei fyrr hefur opnum báti sem þessum verið siglt jafn langa vegalengd á jafn skömmum tíma, ef áætlanir stand­ ast, og eru hraðamet ekki útilokuð. Emblu, sem er af gerðinni Leiftur RIB 1100, verður siglt yfir úfið Atl­ antshafið til Gautaborgar með við­ komu í Færeyjum, Hjaltlandseyjum og Noregi. „Tilgangurinn með siglingunni er að sýna fram á afburða sjóhæfni bátanna okkar sem meðal annars hefur verið staðfest í samanburðar­ tilraunum Magnúsar Þórs Jónssonar, prófessors í verkfræði við Háskóla Íslands. Smíðagæði bátsins verða jafnframt kynnt og ekki síður niður­ stöður úr siglingu okkar frá Íslandi til Svíþjóðar,“ segir Björn Jónsson, framkvæmdastjóri Rafnar ehf. Embla er hraðgengur bátur og ver sig vel. Takist vel til má reikna með að met verði slegin, þó ekki sé það markmið í sjálfu sér. Embla kemur við í Vestmannaeyjum og er ferð­ inni heitið til Hafnar í Hornafirði áður en lagt er út á opið haf. HSBO bátaráðstefnan stendur yfir 10.­12. maí og munu starfsmenn Rafnar sýna bátinn og bjóða upp á reynslusiglingar, en jafnframt halda fyrirlestra. Báturinn er ríkulega útbú­ inn og hentar til ýmissa björgunar­, eftirlits­ og löggæslustarfa og hefur nýsmíði Rafnar ehf. vakið mikla athygli í bátaheiminum síðustu mán­ uði. – shá Útiloka ekki hraðamet á leið til Gautaborgar Rafnar ehf. er hugarfóstur Össurar Kristinssonar. Til að fá niðurgreidda sérfræðiþjónustu fyrir börn þarf að hafa tilvísun frá heimilislækni. Bið eftir tíma getur þó verið löng og fáir heimilislæknar eru á lausu. NoRdIcPhoTos/GETTy Þetta mun leiða til lengri biðlista og því er þetta enginn greiði við barnafjöl- skyldur. Ólafur Alexander Ólafsson heilsu­ hagfræðingur Það er óumdeilt að fyrir þá fjárhæð sem ríkið leggur í sérfræðiþjón- ustu, þá fær það mikla þjónustu á móti sem heilsu- gæslukerfið hefur ekki verið fært um að veita og verður ekki fært um að veita. Þorbjörn Jónsson, formaður Lækna­ félags Íslands NæsTI hEIlsuGæsla TímI BIðTímI Fjörður 25. maí 29 dagar Garðabær 25. maí 29 dagar Hlíðar 18. maí 22 dagar Efra Breiðholt 13. maí 17 dagar Árbær 13. maí 17 dagar Hamraborg 12. maí 16 dagar Hvammur 11. maí 15 dagar Mosfellsumd. 11. maí 15 dagar Glæsibær 10. maí 14 dagar Efstaleiti 9. maí 13 dagar Miðbær 4. maí 8 dagar Sólvangur 3. maí 7 dagar Grafarvogur 2. maí 6 dagar Mjódd 27. apríl 1 dagur Seltjarnarnes 27. apríl 1 dagur ✿ löng bið eftir tíma hjá lækni spurt er: Hvenær er laus tími næst hjá heimilislækni? 2 8 . a p r í l 2 0 1 6 F i m m T u D a g u r4 F r é T T i r ∙ F r é T T a b l a ð i ð 2 8 -0 4 -2 0 1 6 0 3 :5 5 F B 0 7 2 s _ P 0 6 9 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 5 6 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 0 4 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 1 7 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 9 3 D -B 7 8 4 1 9 3 D -B 6 4 8 1 9 3 D -B 5 0 C 1 9 3 D -B 3 D 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 B F B 0 7 2 s _ 2 7 _ 4 _ 2 0 1 6 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.