Fréttablaðið - 28.04.2016, Blaðsíða 26
Frida Pedersen hefur klippt skjólstæðinga Fjölskylduhjálparinnar á hverjum mið-
vikudegi í fimm ár. MYNDIR/ERNIR
Það er nóg að gera hjá sjálfboðaliðum Fjölskylduhjálparinnar við að flokka notaðan
fatnað sem stuðningsfólk hefur komið með. Fötin eru síðan seld til fjáröflunar eða
gefin fátækum. Hér eru Anna María og Jóhanna.
Ásta Katrín Vilhjálmsdóttir situr í
stjórn Fjölskylduhjálpar. Tölvan er
orðin gömul og þarfnast endurnýjunar.
Rúnar Jóhannsson sjálfboðaliði að
störfum.
Kærleikskerti eru framleidd hjá Fjöl-
skylduhjálpinni til fjáröflunar. Jón Elís-
son hefur séð um vinnuna við kertin.
Hér er stæða af dósum sem bíður.
Tryggvi Snorrason sjálfboðaliði að störfum.
Nytjamarkaður Fjölskylduhjálparinnar í Hamraborg.
Matarúthlutun Fjölskylduhjálpar Íslands í Iðufelli í Breiðholti.
Mikið úrval er af alls kyns fatnaði, notuðum og nýjum, á styrktarmarkaði Fjöl-
skylduhjálparinnar við Iðufell.
Nýr fatnaður er seldur á mjög góðu verði á styrktarmarkaði Fjölskylduhjálpar
Íslands.
þjónustu sl. 5 ár. Fólk kemur
hingað úr öllum hverfum
borgarinnar og nærliggjandi sveit-
arfélögum.“
50 sjálfboðaliðar
Hjá Fjölskylduhjálpinni starfa 50
sjálfboðaliðar og aldrei hefur verið
skortur á fólki sem vill hjálpa til
og gera góðverk. „Það eru sex til
átta konur sem starfa í Kópavogi
og síðan erum við með stóra starfs-
stöð í Reykjanesbæ. Þar starfa 15
sjálfboðaliðar. Til okkar kemur
fólk í samfélagsþjónustu og leggur
fram krafta sína, einnig hafa ör-
yrkjar hjálpað okkur og fólk sem
er hætt að vinna.
Við byrjuðum með tvær hendur
tómar og ég er stolt af því hvern-
ig starfið hefur þróast,“ segir hún.
„Í fyrstu notuðum við eigin bíla,
borguðum fyrir síma og annað sem
þurfti. Jón Ásgeir Jóhannesson
borgaði leigu fyrir okkur í Eski-
hlíð fyrstu þrjú árin og það var í
rauninni til þess að starfsemin
gat gengið. Fasteignafélagið Reit-
ir hefur verið okkar stærsti stuðn-
ingsfulltrúi, það útvegaði okkur
húsnæðið í Iðufelli 14 og hefur
verið mjög sanngjarnt með leigu-
verð. Við tökum alltaf á móti notuð-
um fatnaði og leikföngum og erum
þakklát fyrir allan stuðning.“
Ásgerður segir að félagið njóti
mikillar velvildar almennings hér
á landi sem nær út fyrir landstein-
ana. Árið 2014 gaf bandaríska
fyrir tækið Cain Meetings & In-
centives veglegan frystiklefa og
setti hann upp í höfuðstöðvunum
í Iðufelli.
KærleiKsKerti
Fjölskylduhjálpin hefur búið til
kærleikskerti úr mör fyrir leiði
eða til notkunar utanhúss og til
gjafa til að fjármagna starfsem-
ina. „Eins og gefur að skilja er
mikil þörf á fjármagni í svona
miklu hjálparstarfi. Sjálfboða-
liðar aðstoða við kertagerðina
en töluverð vinna er í kringum
hana. Eimskip hefur boðið frysti-
geymslu án gjalds til að geyma
fyrir okkur mörlagerinn.“
Íslandsforeldri
Íslandsforeldri er starfsemi undir
Fjölskylduhjálpinni. Fólk getur
skráð sig sem foreldri og greiðir
þá 500, 1.000 eða 2.500 krónur á
mánuði. „Við viljum styðja fátæk
börn á Íslandi. Fátækt er veruleiki
á Íslandi og þessi börn verða út-
undan í samfélaginu. Við fengum
yndislega konu, Margréti Hrafns-
dóttur, til að vera verndari þess-
ara samtaka. Við höfum fengið
frábært fólk í lið með okkur sem
Íslandsforeldra og markmiðið í ár
er að Íslandsforeldrar verði orðn-
ir 1.000 talsins. Í dag eru við með
400 Íslandsforeldra og viljum
gjarnan fá fleiri í þann hóp. Með
aðstoð Íslandsforeldra höfum við
getað keypt lýsi, egg, fisk, kæfu
og ávexti fyrir barnafjölskyld-
ur. Einnig höfum við aðstoðað við
kaup á íþróttafatnaði á börn og
unglinga og öðru sem vantar til
frístunda þegar við höfum fengið
sérstaka styrki til þess.“
Hægt er að afla sér frekari upp-
lýsinga á heimasíðunni www.fjol-
skylduhjalp.is, á Facebook-síðunni
Fjölskylduhjálp Íslands og á Face-
book-síðu Íslandsforeldra.
Stjórn Fjölskylduhjálpar
Íslands
Í stjórn Fjölskylduhjálpar Íslands
eru Ásgerður Jóna Flosadótt-
ir formaður, Þórunn Kolbeins
Matthíasdóttir varaformað-
ur, Ásta Katrín Vilhjálmsdóttir,
Guðrún Magnúsdóttir og Anna
Valdís Jónsdóttir, verkefnastjóri í
Reykjanesbæ.
2 8 . a p r í l 2 0 1 6 F I M M T U D a G U r2 F ó l k ∙ k y n n I n G a r b l a ð ∙ h e I M I l I
2
8
-0
4
-2
0
1
6
0
3
:5
5
F
B
0
7
2
s
_
P
0
4
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
4
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
2
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
3
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
9
3
D
-E
8
E
4
1
9
3
D
-E
7
A
8
1
9
3
D
-E
6
6
C
1
9
3
D
-E
5
3
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
8
B
F
B
0
7
2
s
_
2
7
_
4
_
2
0
1
6
C
M
Y
K