Fréttablaðið - 28.04.2016, Síða 28
Í framtíðinni
vonast ég til þess
að ég sjálfur og fleiri
fatahönnuðir fari að nýta
betur Norðurlöndin fyrir
sýningar og sölusvæði
enda er fagurfræðin okkar
svipuð og þeirra. Þarna
höfum við mikla mögu-
leika á því að koma vörum
okkar fyrir og leyfa þeim
að dafna og vaxa.
Ási Már fatahönnuður
Fatahönnuðurinn Ásgrímur Már
Friðriksson, betur þekktur sem
Ási Már, setti á laggirnar eigið
fatamerki síðasta haust undir
nafninu ASI MAR. Í lok næsta
mánaðar mun hann, ásamt fjór-
um öðrum hönnuðum, halda sam-
eiginlega sýningu á haustlínum
sínum í glæsilegum húsakynn-
um Safnahússins við Hverfis-
götu í Reykjavík. „Ég er að vinna
bæði með herra- og kvenfatnað.
Mér finnst gaman að leika mér
með ólíka hluti eins og hefðir og
nýbylgju, glamúr við götufatn-
að o.fl. Á þessu ári hef ég verið
að þróa merkið mitt ásamt því
að vera stílisti og pistlahöfundur
fyrir tímaritið Man.“
Með Ása Má á sýningunni
verða Rey, Skaparinn, Ýr og
Sævar Markús en öll eru þau
eigendur verslunarinnar P3.
„Þar sem salurinn rúmar ekki
marga munum við ekki koma
eins mörgum fyrir og við vilj-
um. Því munum við bjóða upp
á upphengda sýningu í verslun
okkar, P3. Þar sem sú dagsetning
er óákveðin mæli ég með því að
fólk fylgist með á Facebook-síðu
okkar.“
Hörð og Hvöss form
Innblásturinn að línunni sem Ási
Már mun sýna í næsta mánuði er
sóttur í framtíðarsýn á klassíska
rómantík. „Þar mun ég blanda
saman smáatriðum frá klassísk-
um málverkum við hörð og hvöss
form. Ég vinn mikið með snið sem
upphefja líkamann og vinn með
þær línur sem eru nú þegar til
staðar. Blanda það síðan með því
að ýkja viss form, bæta við þau og
gera öfgafyllri. Með hönnun minni
vil ég segja sögu eða vekja tilfinn-
ingu, hvort sem hún er unnin út frá
fegurð, ótta eða aðdáun.“
Línan sem hann vinnur að þessa
dagana inniheldur smá myrkur að
hans sögn. „Þar sem efnin verða
dökk og hörð, formin verða graf-
ísk og skorin en síðan hræri ég inn
blíðleika og rómantískum smáat-
riðum. Því miður get ég ekki farið
nánar út í það að svo stöddu.“
LéttLeiki fram undan
Eftir sýninguna mun Ási strax
leggja drög að næstu sumarlínu
sinni. „Eftir allt þetta myrkur er
kominn tími á liti, leikgleði og létt-
leika. Samhliða því mun ég vinna
að nokkrum nýjum verkefnum sem
eru ekki fatatengd. Það er margt
sem mig langar að gera en hefur
setið á hakanum um tíma. Nú gefst
mér loks tími til þess að einbeita
mér að þeim og þróa frekar. Þó að
þetta sé ekki fatnaður mun ég sitja
fastur við teikniborðið. Fyrir utan
þau verkefni ætla ég að reyna að
njóta sumarsins í faðmi fjölskyld-
unnar, vina og dýranna minna.“
Aðspurður um möguleika ís-
lenskra fatahönnuða segir hann
fullt af hæfileikaríku og kláru
fólki hér á landi en það krefj-
ist mikillar þrautseigju að halda
út. „Ég er ávallt mjög spennt-
ur fyrir útskriftarnemendunum
frá Listaháskóla Íslands en það
eru miklir meistarar sem hlúa að
þeim hæfileikum þar. Í framtíð-
inni vonast ég til þess að ég sjálfur
og fleiri fatahönnuðir fari að nýta
betur Norðurlöndin fyrir sýningar
og sölusvæði enda er fagurfræð-
in okkar svipuð og þeirra. Þarna
höfum við mikla möguleika á því
að koma vörum okkar fyrir og
leyfa þeim að dafna og vaxa.“
Nánari upplýsingar um hönnun
Ása Más má finna á Facebook
undir ASI MAR.
viLL segja sögu eða
vekja tiLfinningu
Glæsileg húsakynni Safnahússins í Reykjavík verða vettvangur
sameiginlegrar sýningar á haustlínum fimm íslenskra fatahönnuða.
Ási Már er einn þeirra en hann vinnur bæði með herra- og kvenfatnað.
„Mér finnst gaman að leika mér með ólíka hluti,” segir fatahönnuðurinn Ási Már. MYND/ANTON BRINK
Ási Már hannar bæði herra- og kvenfatnað. MYNDIR/ÁSI MÁR OG ÍRIS DÖGG EINARSDÓTTIR
Lógó með adressulínu
Engjateigi 5 // 581 2141 // hjahrafnhildi.is
Engjateigi 5 // 581 2141 // hjahrafnhildi.is
Engjateigi 5 // 581 2141 // hjahrafnhildi.is = Coopet Hewitt light (má vera book ef það er minna en 8pt)
LÆKKAÐ VERÐ!
Verð fyrir afnám
tolla 21.980
Verð nú
17.980
GLÆSILEG BUXNASENDING
FRÁ GARDEUR
Skeifunni 8 • 108 Reykjavík • Sími: 517 6460 • www.belladonna.is
Verslunin BelladonnaStærðir 38-58
Flottur sportfatnaður,
fyrir flottar konur
Nánari upplýsingar á
Texasborgarar.is
og Facebook
BLT-SAMLOKA MEÐ FRÖNSKUM
1.490 KR.
Alsæla með spældu eggi
og bernaise fyrir klink
af BLT-samloku með
frönskum
gegn framvísun
þessa miða.
Aðeins 1.490 kr.
fyrir tvo.
Klipptu miðann út
og taktu með þér.
Gildir til 25. maí
2016.
2
FYRIR
1
2 8 . a p r í l 2 0 1 6 F I M M T U D a G U r4 F ó l k ∙ k y n n I n G a r b l a ð ∙ X X X X X X X XF ó l k ∙ k y n I n G a r b l a ð ∙ T í s k a
2
8
-0
4
-2
0
1
6
0
3
:5
5
F
B
0
7
2
s
_
P
0
4
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
4
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
2
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
9
3
D
-F
C
A
4
1
9
3
D
-F
B
6
8
1
9
3
D
-F
A
2
C
1
9
3
D
-F
8
F
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
0
7
2
s
_
2
7
_
4
_
2
0
1
6
C
M
Y
K