Fréttablaðið - 28.04.2016, Blaðsíða 60

Fréttablaðið - 28.04.2016, Blaðsíða 60
Louder Than Bombs HHHHH Leikstjóri: Joachim Trier Handrit: Joachim Trier og Eskil Vogt Aðalleikarar: Jesse Eisenberg, Gabriel Byrne, Isabelle Huppert og Devin Druid. Louder Than Bombs er fyrsta mynd- in sem norski leikstjórinn Joachim Trier gerir á ensku en hann er líklega þekktastur fyrir mynd sína Ósló, 31. ágúst. Myndin segir frá feðgum sem eru ennþá að kljást við sjálfsmorð móðurinnar (Isabelle Huppert) þótt nokkur ár séu liðin. Faðirinn (Gabriel Byrne) og yngsti sonurinn (Devin Druid) búa einir saman en eldri sonurinn (Jesse Eisenberg) var að eignast barn og starfar sem háskólaprófessor. Hann kemur í heimsókn til föðurins í tilefni sýningar á myndum móðurinnar en hún starfaði sem ljósmyndari. Leyndarmál koma upp á yfirborðið og feðgarnir þurfa að horfast í augu við sannleikann og hvor annan. Líkt og í fyrri myndum Triers er áherslan hér á persónusköpun og ákveðna stemningu frekar en sterkan söguþráð. Sagan í myndinni snýst ekki um hver leyndarmálin eru, enda eru þau flest ljós snemma, heldur hvernig persónurnar kljást við þessi leyndarmál og hvernig þær bregðast hver við annarri. Þetta er vissulega mjög alvarleg mynd, með sjálfsmorð í þungamiðj- unni, en Trier og samstarfsfólki hans tekst að takast á við þetta efni án þess að myndin verði of þung. Það er bæði smá húmor í myndinni til að brjóta upp alvöruna en það er þó helst hvernig upplýsingum er miðl- að sem sem skapar stemninguna. Myndin verður aldrei of dramatísk, fólk er ekki öskrandi eða grátandi að óþörfu og lítið er um væmni. Trier dæmir heldur ekki persónur sína og leyfir þeim öllum að vera jafn miklir gallagripir. Það má segja að Trier hafi tekist að gera ameríska vellu á evrópskan (eða jafnvel bara skandinavískan) hátt, það á líka einhvern þátt að foreldrarnir eru leiknir af Íra og Frakka (persóna hennar er frönsk en allt bendir til að hann sé Kani þótt írski hreimurinn hans Byrnes læðist inn stöku sinnum). Hér tekst líka nokkuð vel að forðast klisjur og það er sjaldan farið augljósustu leiðina að hlutunum. Brotakenndur stíll myndarinnar gefur henni líka ákveðna sérstöðu og myndinni tekst einhvern veginn að vera í senn bókmenntaleg og kvikmyndaleg. Til dæmis er í fleiri en einni senu myndfléttu blandað skemmtilega saman við persónur að lesa upp texta af blaði og mynda textinn og myndefnið oft í senn áhugaverðar hliðstæður sem og andstæður. Þessi stíll passar líka vel við viðfangsefnið enda er hér verið að takast á við menn með brota- kennda sjálfsmynd. Louder Than Bombs verður pínku langdregin á köflum og tekst ekki algjörlega að forðast klisjur, það vantar aðeins upp á að myndin nái fullu húsi. En þetta er samt í heildina afar vönduð og áhrifamikil mynd og vel þess virði að sjá. Atli Sigurjónsson NiðursTaða: Sterk og vönduð mynd sem tekur á kunnuglegum og drama- tískum efnum án þess að verða of klisjukennd eða dramatísk. Vel leikin og skemmtilega tekin og klippt. Karlmenn með brotna sjálfsmynd Lounder Than Bombs er fyrsta kvikmynd leikstjórans Joachims Trier á ensku. Í aðal- hlutverkum eru Jesse Eisenberg, Gabriel Byrne, Isabelle Huppert og Devin Druid. Frumsýningar BasTILLE Day Hasarmynd Aðalhlutverk: Idris Elba, Richard Madden og Kelly Reilly IMDb 6,4/10 Frumsýnd: 29. apríl Dramatík Aðalhlutverk: Tom Hanks, Alexander Black og Sarita Choudhury Frumsýnd: 29. apríl IMDb 6,3/10 a HoLoGram for THE KInG CapTaIn amErICa: CIvIL War Hasar- og ævintýramynd Aðalhlutverk: Chris Evans, Robert Downey Jr. og Scarlett Johansson Frumsýnd: 29. apríl IMDb 8,5/10 Myndin segir frá feðgum sem eru enn að kljást við sjálfsmorð eiginkonu og móður. 2 8 . a p r í L 2 0 1 6 F i M M T u D a G u r36 M e N N i N G ∙ F r É T T a B L a ð i ð bíó 2 8 -0 4 -2 0 1 6 0 3 :5 5 F B 0 7 2 s _ P 0 6 5 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 6 0 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 0 8 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 1 3 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 9 3 D -D F 0 4 1 9 3 D -D D C 8 1 9 3 D -D C 8 C 1 9 3 D -D B 5 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 7 B F B 0 7 2 s _ 2 7 _ 4 _ 2 0 1 6 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.