Jökull


Jökull - 01.12.1953, Síða 2

Jökull - 01.12.1953, Síða 2
FRÁ FÉLAGINU Aðalfundur var haldinn í 1. kennslu- stofu háskólans 16. febrúar 1953. Þetta gerð- ist helzt: 1. Formaður flutti skýrslu um störf fé- lagsins á liðnu starfsári. 2. Gjaldkeri lagði fram endurskoðaða reikningar . Samkv. efnahagsreikningi eru eignir félagsins í árslok 1952 metn- ar á kr. 87468,49. Félagsmenn voru 170 að tölu. 3. í stjórn voru endurkosnir Trausti Ein- arsson, Árni Stefánsson og Sigurjón Rist, en í stað Guðmundar Kjartans- sonar, sem baðst undan endurkosningu, var kosinn Sigurður Þórarinsson. Jón Eyþórsson er formaður til næsta aðal- fundar. — í varastjórn eru: Einar Magnússon, Guðmundur Kjartansson og Þorbjörn Sigurgeirsson. — Endui'- skoðendur: Páll Sigurðsson, Rögnvald- ur Þorláksson og Gunnar Böðvarsson. 4. Að lokum var sýnd litkvikmynd af björgun amerísku skíðavélarinnar af Vatnajökli vorið 1951. Alfred Elíasson forstjóri útskýrði myndina. Úr skýrslu formanns o. fl. Snjóbíllinn, JÖKULL I, kom til landsins í maímán. 1952 og kostaði um 35 þús. kr. Um haustið var hann léður Kaupfélagi Flér- aðsbúa á Reyðarfirði til reynslu. Skálar. Sumarið 1952 unnu þeir Stefán Jónsson trésmiður, Jón Sigurjónsson við- skiptafræðingur, Kjartan Kjartansson vél- stjóri og Sverrir Scheving jarðfræðingur ásamt formanni félagsins að endurbótum á Breiðárskála. Voru settar stórar bíldyr í austurgafl skálans á steypta undirstöðu, fyllt með grjóti og möl í skálagólfið, jafnt þverbitum, og skálinn málaður að utan. í vesturenda skálans er trégólf og afþiljuð þriggja metra löng vistarvera. Einnig var litið eftir Esjufjallaskála, og reyndist hann óskemmdur með öllu, þuir og þokkalegur. í Breiðárskála er geymt timbur til þess að klæða með Esjufjallaskála að innan, en ekki hafa verið nein tök á því að flytja það til Esjufjalla. Bifreið á Breiðá. Það hefur létt mjög ferðir og störf þar eystra, að s. 1. tvö sum- ur hefur verið tveggja smálesta flutninga- bifreið til afnota. Er hún eign vegagerðar ríkisins. Er bifreiðin geyrnd í Breiðárskála að vetrinum. Rannsóknir. Sumarið 1952 dvöldust fjór- ir stúdentar frá Durhamháskóla ásamt Sverri Scheving við rannsóknir að Breiðá og í Esjufjöllum. M. a. unnu þeir að mæl- ingum á jöklinum og skriðhraða hans. Sumarið 1953 hófust rannsóknir á Tind- fjallajökli á vegum félagsins. Verður nán- ar skýrt frá rannsóknum þessum síðar. JÖKULL kemur út í seinna lagi að þessu sinni, en ætlazt er til að hann sé tilbúinn um hver áramót. Þess má geta, að ritið hefur hlotið lofsamlega dóma í merkum erlendum tímaritum, og hefur eftirspurn eftir því aukizt verulega síðan. r ----------s JÖKLARANNSÓICNAFÉLAG ÍSLANDS P. O. B. 884, Reykjavík Félagsgjald (þar í ársritið Jökull) kr. 50.00 ICELAND GLACIOLOGICAL SOCIETY P. O. B. 884, Reykjavík Annual subscription for receipt of the journal JÖKULL £ 1-0-0, or $ 3.00 Ritstfóri Jökuls: JÓN EYÞÓRSSON Fornhaga 21, Reykjavík ^J

x

Jökull

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Jökull
https://timarit.is/publication/1155

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.