Jökull - 01.12.1953, Page 41
SvigSur á Svínafellsjökli
í Oræfum
Chevrons on Svínafellsjökull
í greinarkorni, sem birtist í síðasta árgangi
þessa tímarits, lýsti ég nokkuð svigðunum á
Morsárjökli í Oræfum og gat einnig svigða á
Kvíárjökli og Fjallsjökli.
Síðastliðið haust gafst mér tækifæri til að
skoða Öræfajökul og skriðjökla hans, betra en
mér hafði áður gefizt, er ég tók þátt í leitinni
að þeim brezku stúdentum, sem týndust á jöklin-
um. í þrjá daga (18.—20. ágúst) var ég tímunum
saman í flugvél yfir jöklinum, ýmist í björgun-
arflugvél frá Keflavík eða í sjúkraflugvél Björns
Pálssonar, og var skyggni yfirleitt ágætt. Því
miður fengust engar nýtilegar Ijósmyndafilmur
í Reykjavík um þessar mundir, og varð því lítið
um myndatöku.
Úr loftinu sá ég svigður víða þar, sem ég hafði
ekki veitt þeim eftirtekt áður. A Skaftafellsjökli
eru svigður nokkuð greinilegar, svo og á Falljökli
og hér og þar á Breiðamerkurjökli, einkum neð-
an við jökulfossa, er falla niður frá Öræfajökli.
T. d. eru mjög fallegar svigður í jöklinum, þar
sem hann sveigir niður með Breiðamerkurmúla.
Einnig eru fallegar svigður á jökli þeim, er geng-
ur niður Austurdal í Esjufjöllum. Þó báru af
svigðurnar á Svínafellsjökli. Allt frá innsta
jökulfossi og fram á fremsta jaðar er skriðjök-
ull þessi settur svigðum svo reglulegum, að leit-
un mun á jökli, sem hafi svo reglulegar svigður.
Jökullinn er miklu hreinni en Morsárjökull og
lítill sem enginn hæðarmunur á svigðahryggj-
um og svigðadölum. í vissri birtu sáust svigð-
urnar vart, og ég geri ekki ráð fyrir, að maður
tæki mikið eftir þeim, þótt maður gengi eftir
jöklinum. Virtist mér auðsætt, að svigðurnar
koma fram vegna mismunandi gerðar íssins,
þannig að það skiptast reglulega á bönd með
mismunandi þéttum ís. Mér virtist og líklegt,
að á þessum jökli séu þessi reglulegu skipti háð
árstíðaskiptum, þannig að hver svigða sé mynd-
uð af þeim ís, er jökulfossinn skilar frá sér á
einu sumarmisseri og einu vetrarmisseri, og sé
þá einhver eðlismunur á sumar- og vetrarísn-
um, og geta ýmsar orsakir legið hér til. Skrið
jökulfossanna er að líkindum annað á sumrum
en á vetrum. Á vetrum safnast snjór í sprung-
ur jökulfossanna og pressast saman við ísinn,
1. mynd. Svigður á Svína-
fellsjökli í Öræfum séðar
Úr lofti.
Chevrons on Svínafells-
jökull in Öreefi.
Flugmynd:
S. Þórarinsson. 18/s 1953.
39