Jökull

Ataaseq assigiiaat ilaat

Jökull - 01.12.1953, Qupperneq 45

Jökull - 01.12.1953, Qupperneq 45
EYSTEINN TRYGGVASON: Lambárdalsjökull JÖKULÍS UNDIR GRJÓTURÐ. Kerling við Eyjafjörð er að norðanverðu þver- brött niður að botni Lambárdals. Þarna er mjög mikið grjóthrun úr fjallinu, svo að stundum heyrist þaðan sífelldur kliður frá þessu hruni. Svo var a. m. k. 18. ágúst 1952, er ég kom þangað. Allt það grjót, sem hrynur úr hömrunum norð- an í Kerlingu, fellur niður á jökul þann, sem fyllir Lambárdalinn, en skriðjökullinn flytur það frá fjallinu niður dalinn. A neðri hluta jökulsins, fyrir neðan snælín- una, eyðist jökullinn vegna bráðnunar, en sam- Uppdráttur af Lambárdalsjökli og næsta um- hverfi. Sá hluti jökulsins, sem er hulinn grjóti, er merktur punktum. (E. Tryggvason teiknaði). Sketch map of Lambárdalsjökull. The dotted areas are covered by a thick layer of débris and big basalt blocks. Yfirborð Lambárdalsjökuls 12. ágúst 1953. Jökulís sést í 'sprungu neðst á myndinni. (Ljósm. E. Tryggvason). The surface of Lambárdalsjökull. Notice the crevasse in the foreground. tímis myndar grjótið og aurinn, sem jökullinn ber með sér, lag á yfirborði hans. Þegar ég var þarna, 18. ágúst 1952, var jökul- tungan orðin snjólaus upp að 1000 m. hæð, en 12. ágúst 1953 var snjórinn horfinn upp fyrir 1100 m. línuna. Nú er ástand þessa jökuls þannig, að um helmingur hans er hulinn grjóti og möl, svo að hvergi sér þar í ís nema í sprungum, eða þar sem rennandi vatn hefir grafið rásir. Víða er þó aurlagið svo þunnt, að ísinn kemur í ljós, þegar allstórum steinum er velt við, en fremst á jöklinum er lagið þykkara, og er þar nokkur gróður, aðallega mosi og skófir, en einnig hafa einstakar blómplöntur fest þar rætur, t. d. dvergvíðir, Ólafssúra og fjallasveifgras. Grjótið á jöklinum er mjög mismunandi að stærð, allt frá leir og sandi að stórgrýti fleiri metra í þvermál. Steinarnir eru yfirleitt hvass- brýndir. Mest er þarna basalt (blágrýti), en einnig er talsvert af líparíti. Grjótlag þetta mun tefja mjög bráðnun jökulsins og valda því, að hann styttist seinna en aðrir jöklar við hlýnandi veðráttu, enda hef- ir hann ekki styttst neitt á síðustu áratugum, og þess sjást engin merki, að hann hafi nokkru sinni, síðan ísöld lauk, gengið lengra fram, en þangað sem hann liggur nú. Sá hluti jökulsins, sem hulinn er aur og grjóti, er lítið sprunginn, og virðist hreyfing hans vera mjög lítil og sennilega engin næst jökul- sporðinum, en nær Kerlingu er jökullinn all- mikið sprunginn. Með hlíðum fjallsins lá geig- 43

x

Jökull

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Jökull
https://timarit.is/publication/1155

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.