Jökull - 01.12.1964, Qupperneq 32
JÓN EYÞÓRSSON.
ORÐASAFN
Glossary of Sea Ice
Helztu heiti á hafísum
Orðasafn þetta er gert eftir Illustrated Ice
Glossary, sem prentað er í Polar Record, 8. b.
No. 52, 1956. Höfundar eru Terence Armstrong
og Brian Roberts. Geta þeir þess, að orðasafnið
hafi verið 15 ár í smíðurn og hafi þeir borið sig
saman við marga aðila og leitazt við að sam-
ræma mismunandi sjónarmið til þess að finna
nöfn og lýsingarorð, sem sjómenn geti viðhaft,
ef þeir lenda í ís, og sömuleiðis áhafnir ísbrjóta
og flugvéla, er eiga að vísa á færa leið út úr
ísnum. — Þá er nauðsynlegt, að allir aðilar tali
sama mál. Hér er enn fremur leitazt við að
komast af með sem fæst orð.
Enn fremur hef ég haft til hliðsjónar Atlas
of Sea Ice eftir Alf Maurstad, Oslo 1935, og
A Functional Glossary of Ice Terminology, U.S.
Navy Hydrographic Office, Washington, D.C.
1952.
íslenzku orðin eru fæst nýsmíði, en leitazt er
við að velja algengum orðurn ákveðna merk-
ingu, þannig að eitt rekist ekki á annars horn.
Til hliðsjónar hef ég einkum haft rit Þorv.
Thoroddsens, Orðabók Sigfúsar Blöndals og
Orðasafn um ísmyndun eftir Steingrím Jónsson,
Arsskýrsla Sambands ísl. rafveitna, 20. ár, 1962.
Ensk heiti eru látin standa sem lykilorð, en
íslenzku heitunum raðað í stafrófsröð í greinar-
lok.
anchor ice
grunnstingull: botnfastur ís niðri í vatni.
bay ice
fjarðafreri: landfastur lagnaðarís og vetrar-
snjór, eldri en ársgamall og allt að 2 metr-
um upp úr sjó. Ef frerinn verður þykkari,
kallast hann ísþilja. Gamall fjarðafreri, 10
ára eða eldri, kallast sikussak á grænlenzku.
belt
isbelti: langar hafísbreiður, oftast fáeinir
kílómetrar, en stundum 100 km eða meira,
á breidd. (T. d. ísbeltið við A-strönd Græn-
lands). Sbr. strip.
bergy bit
stórjakar: þykkir hafísjakar, litlir borgarís-
jakar eða brot úr þeim og hrúgöld úr brotn-
um íshrönnum. Tæpast yfir 5 m upp úr sjó
og 10 m í þvermál.
beset
isbundið: um skip, sem er fast í is og má
sig hvergi hræra.
bight
bugur: stór vík, flói eða bogadregin bót í
jaðri hafísbreiðu af völdum vinda eða
strauma.
brash ice
kurl, hrul: smájakar og jakabrot, varla yfir
2 m í þvermál.
calving
jökulkast: svo nefnist, er borgarís og stór-
jakar brotna framan af jökulsporðum.
close pack ice
þétt ísrek: jakarnir flestir snerta hver ann-
an, svo að sigling er örðug nema ísbrjótum.
íshula e/8—T/8-
consolidated pack ice
hafþök af is: jakarnir samfrosta. íshula 8/r.
crack
sprunga: mjóar rifur í ísbreiðu, of þröngar
skipum, og verða því ekki kallaðar sund.
Oftast má stökkva yfir sprungur.
tast ice
fastis: landfastur lagnaðaris, sem myndast
með ströndum frarn og verður samfrosta
við fjörur, isþiljur og jökulhamra. Fastís-
inn er misbreiður, en getur náð allt að því
400 km á haf út.
floe
jaki: stór eða lítil ísspilda, sem ekki er fast-
is. Jakar teljast léttir, ef þeir eru ekki yfir
einn metra á þykkt, en þungir, ef þeir eru
þar yfir. Jakar yfir 10 km í þvermál kall-
ast afarstórir, frá 1—10 km stórir, frá 10—
200 m litlir. Jakar undir 10 m í þvermál
kallast ísflögur.
frazil ice
svifis: isnálar og litlar ísþynnur, sem mara
í kafi. Þegar vatn byrjar að leggja, verður
það þelgrátt. Vestfirðingar kalla þetta
tnœðu og segja, að sjórinn sé orðinn mœdd-
ur eða það sé farið að mœða á fjörðinn.
frost smoke
frostreykur: þokuslæður, sem myndast af
snertingu kalds lofts við tiltölulega hlýtt
90
JOKULL 1964