Jökull


Jökull - 01.12.1964, Blaðsíða 34

Jökull - 01.12.1964, Blaðsíða 34
50 000 km2 að flatarmáli, kallast jökulskild- ir eða jökulhettur. ice shelf ísþilja: fljótandi isbreiða, allþykk. Isþiljur eru oftast mjög víðlendar, sléttar eða lítið eitt öldóttar á yfirborði. Þær myndast eink- um af skriði jökulíss á haf út og auk þess safnast á þær ákoma úr lofti ár frá ári. A stöku stað standa þær á botni. Þær byrja oft sem fjarðafreri og halda þvi nafni, unz skörin er orðin fullir 2 metrar yfir sjávar- borð. ice wail jökulhamar, ísveggur: brún á meginjöklij strandjökli eða isbungu gegnt hafi. Undir- lagið getur verið jafnt yfirborði sjávar eða undir því (skör, ísþil). inland ice sheet meginjökull: þykk jökulbreiða og yfir 50000 km2 að flatarmáli. Oft ganga þeir á sæinn út og mynda fljótandi jökulþiljur. lead simd: mjóar lænur, en skipgengar gegnum hafís. Má oft þræða slík sund, þótt hemuð séu. Ievel ice sléttur lagnaðarís: greiðfær vetrarís, sem ekki hefur hrannazt. new ice íshroði: notað i víðtækri merkingu um all- an nýlegan ís, svifís, krap, hem og islumm- ur, ef þykktin er innan við 5 cm. nip teþpa: sagt er að ís teppi siglingar, þegar skip er umflotið ís og kemst hvorki fram né aftur. Ef ekki greiðist úr og skip festist með öllu, er það isbundið. open pack ice gisið isrek: jakarnir snertast fæstir og víða eru álar og vakir. íshula 3/8—°/s- Sigling er sæmilega greið traustum skipum og jafnvel hvaða skipi sem er, ef íshulan er ekki yfir 4/s open water auður sjór: tiltölulega stór, íslaus svæði. pack ice isrek: allar gerðir hafíss nema fastis eða landfastur lagnaðarís. Þéttleika ísreks má telja í áttungum eða flokka í mjög gisið ís- rek (i/s-3/8), gisið isrek (3/s—6/8)> þétt ís- rek (6/s—T/s) og mjög þétt ísrek (7/s—8/s)> er varla sér í auðan sjó. pancake ice íslummur: nýmyndaðar, litlar ísflögur, kringlóttar að mestu og íhvolfar, 20—30 cm í þvermál. Minna á „hungurdiska" Matthí- asar Jochumssonar. patch spilda: isrek á litlum bletti, sem sést út yfir úr siglutoppi eða jafnvel úr lyftingu. polar ice stórís, norðanis: mjög stórgerður hafís norð- an úr íshafi, 2—3 metra þykkur eða þar yfir, elclri en ársgamall. Hrannaður og úf- inn á efra borði, en sléttist eftir því sem hann rekur lengra suður og nær að veðrast og þiðna. Auðþekktur frá einærum ís. polynia (flt. polynyi) fastavök: stór vök með hafís á alla vegu, er helzt á sömu slóðum ár frá ári. Stundum ná þær að landi á einn veginn. Slíkar vak- ir eru algengar undan ósum stórfljóta. pool vök: auðir blettir í hafís, breiðari en sund, en ekki nægilega stórar til þess að kállast auður sjór. Vök, sem kemur á sama stað ár- lega, kallast fastavök. pressure ice hrannaður ís: allur ís, sem hefur orðið fyrir hörðum árekstri eða þrýstingi, svo að hann molast, rís á rönd eða haugast saman. Eftir útliti kallast hann hrófaður, hrannaður og skrýfður. pressure ridge ishrönn, sbr. liummocked ice. puddle pollur: lautir á jökum og jöklum fylltar vatni eða krapi (krapablár). Vatnið er oft- ast ósalt og gott drykkjarvatn. rafted ice hrófaður ís: þunnir jakar og íslummur hróf- ast oft hver ofan á aðra, leggjast á misvíxl eða kastast upp á stóra jaka af sjógangi og hliðarþrýstingi. Getur slíkur hrófís orðið illþýfður og ógreiður yfirferðar. ram isbarð: neðansjávar skör á jaka, borgarís eða ísþilju. Hættulegt skipum (sbr. að verða fyrir barðinu á ehv.). rotten ice vorís, isfrauður: ís, sem er að bráðna og orðinn gljúpur og ótraustur. shore lead landvök: Skipgengur áll milli strandar og JÖKULL 1964 92

x

Jökull

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Jökull
https://timarit.is/publication/1155

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.