Jökull


Jökull - 01.12.1964, Síða 37

Jökull - 01.12.1964, Síða 37
Vatnajökulsleiðangur 1964 The Vatnajökull Expedit.ion May 1964 Lagt var upp frá Reykjavík laugardaginn 23. maí kl. 08.50. Færð var góð. Komum í Jökul- heima kl. 18.30. Þar var SA-gola og þokusúld. I förinni voru:: Gunnar Guðmundsson, fararstjóri, Þórður Sigurðsson, Hörður Hafliðason, Halldór Gíslason, Carl J. Eiríksson, Magnús Jóhannsson, Gauðlaug Erlendsdóttir, Vigdís Jónsdóttir. Samflot höfðu á eigin snjóbíl Rafn Johnson, Sverrir Sigfússon, Gunnar Hannesson og Hinrik Thorarensen. Um kvöldið voru snjóbílar fluttir inn að jökli. Sunnud. 24. maí. Dót flutt inn fyrir á snemma morguns og búizt til ferðar. Veður var bjart, logn og hitamolla. Lagt upp á jökul kl. 11.30. Eftir 13.3 km akstur var komið að ein- földu járnmastri, sem sett var upp vorið 1963, í h. u. b. 1150 m hæð. Stóð það 170 cm upp úr snjó. Kl. 15.00 var ekið áfram í stefnu 103° misv. og vorum komin kl. 16.40 að merkinu milli Pálsfjalls og Kerlinga. Vegmælir sýndi 19.3 km frá jökulsporði. Hæð mældist 1290 m. Hækkun á snjóborði frá vorinu 1963 mældist 192 cm. (Frá snjó upp á topp 481 cm. Bætt var ofan á mastrið h. u. b. 3 metrum, og var að því loknu sund (lcena), lead svifís, frazil ice teppa, nip valnshiminn, water sky veðraður is, weathered ice veltijaki (boljaki), growler vetrarís, winter ice vorts, isfrauður, rotten ice vök, pool þétt isrek, close pack ice JÖKULL 1964 hæð frá snjóborði á toppstöng 793 cm, en á „axlir“ 616 cm). Héðan blasir við sprungusvæðið kringum Páls fjall. Það er ferlega sundur tætt, einkum kamb- urinn NA af fjallinu. Virtist okkur móta fyrir sprungum alla leið upp í dalverpið vestan við Háubungu. Tókum því stefnu N90A og ókum þannig um stund, en sáum brátt missmíði fram undan og breyttum stefnu í N85A. Kl. 19.15 sýndi vegmælir 23.3 km og hæðar- mælir (leiðréttur) um 1345 m. Við höfðum farið yfir þrjár sprungur, en þær voru vel lokaðar. Munum senn komnir norður fyrir sprungu- beltið. Kl. 19.50 gerði slydduél og dimmviðri. Stönz- uðum því og biðum þess, að élið gengi yfir. Vegmælir 25.9 km og hæðin um 1400 m. Sprung- ur 1 grennd, og virtist stefna þeirra h. u. b. NV—SA. Stefndum um hríð N43A til þess að fara þvert á sprungustefnuna, en tókum brátt fyrri stefnu, N85A, er vegmælir sýndi 27.7 km og hæðin röskir 1420 m. Kl. 21.30 sýndi vegmælir 32.7 km og hæðar- mælir um 1490 m. Stefna tekin N119A og héld- um þannig áfram til kl. 23.15. Sýndi vegmælir þá 40.3 km og hæðarmælir tæpa 1680 m. í sömu mund svipti þokunni frá, og Svíahnúkur vestari blasti við í réttri stefnu. Komum í skála á Grímsfjalli laust eftir miðnætti. Sýndi vegmælir þá 47.7 km og hæðarmælir 1760 m, sem er 41 m of hátt, en hann var settur á 670 við jökul- sporð. Er leiðrétt fyrir þessari breytingu hér að framan, en gengið út frá jafnri breytingu á loftþrýstingi. Mánud. 25. mai. Haldið ofan á Grímsvötn kl. 11.00. Leituðum að mælingastöng, en fund- um ekki. Hún hlýtur að hafa fallið og grafizt í snjó. Veður bjart og gott. Mælt snið frá Gríðarhorni að Depli: Við Gríðarhorn kl. 17.15: Hæð 1431 m Frá Gríðarhorni 1.0 mílu — 1447 - 1.5 - — 1444 - 2.0 - — 1441 - 2.5 - — 1440 - 3.0 - — 1439 - 3.5 - — 1431 - - 3.8 - — 1424 - Kl. 18.20: Undir Depli — 1423 - Á Depli - 1455 - Hæð Depils yfir snjóborð mældist af meðal- tali tveggja hæðarmæla 33.5 m, en frá því að 95

x

Jökull

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Jökull
https://timarit.is/publication/1155

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.