Jökull


Jökull - 01.12.1964, Blaðsíða 46

Jökull - 01.12.1964, Blaðsíða 46
JÓN EYÞÓRSSON Brúarjökuls-leiðangur 1964 An Expedition to Brúarjökull 1964 Eins og skýrt frá frá í síðasta hefti Jökuls, liljóp Brúarjökull skyndilega fram haustið 1963, en virðist hafa stöðvazt í ársbyrjun 1964. Veturinn 1963/64 voru fjórar könnunarferðir farnar í flugvél yfir jökulinn, myndir teknar af sprungusvæðum og staða jökuljaðars athug- uð. í júnímánuði flaug Ágúst Böðvarsson yfir jökulinn í flugvél Landhelgisgæzlunnar TF-SIF og tók loftmyndir af öllum jökuljaðrinum og miklum hluta sprungusvæðisins, en það nær suður í Breiðubungu og suður undir Esjufjöll. Tími hefur ekki unnizt til þess að gera upp- drætti eftir loftmyndunum, og verður ýtarleg skýrsla um framhlaupið því að bíða næsta heftis (Shr. og grein S. Þórarinssonar hér að framan, 76.-89. bls.). Af loftmyndum og yfirsýn úr flugvél var Ijóst, að jökullinn hafði skriðið fram til norð- austurs. Austurjaðar hans liafði á kafla gengið yfir Jökulkvísl og náði því sem næst að jökul- öldunum frá 1810 og 1890. Á Kringilsárrana og vestur undir Kverkárnes var 2—3 km breið spilda frá jökuljaðri að „Hraukunum" frá 1890. Þrátt fyrir flugferðirnar, þótti nauðsyn bera til að kynnast betur aðstæðum við jökulsporð- inn, m. a. hvort jökulýtur hefðu myndazt þar, eins og við fyrri framhlaup. Jöklarannsóknafélagið efndi því til leiðang- urs í þessu skyni, og verður stuttlega frá honum skýrt hér á eftir. Lagt var upp frá Reykjavík laugardaginn 18. júlí á tveimur fjallabílum, R 364 (Heiðar Stein- grímsson) og R 12204 (Carl J. Eiríksson). Alls var 25 manns í förinni, sumir til þess að kanna ókunna stigu, og tóku þeir þátt í kostnaði að sínu leyti, en veittu jafnframt aðstoð eftir því, sem efni stóðu til. Fararstjórar voru Magnús Jóhannsson og Sigurður Þórarinsson, en mæl- ingamaður Magnús verkfræðingur Hallgríms- son. Matráðskona var Una Bergmann. Auk þess hafði R 1069 með átta manns að mestu sam- flot með leiðangrinum. Þar á meðal voru þeir Gunnar Guðmundsson og Þórður Sigurðsson og liöfðu meðferðis gúmbát mikinn til þess að ferja yfir stórvötn. Fyrsta dag var ekið til Akueyrar og tjaldað hjá Syðrahóli í Eyjafirði í blíðskaparveðri. Sunnud. 19. júli. „Rauður" (R 12204) hafði bilazt lítillega á leiðinni og þurfti viðgerð. Kom- umst því ekki af stað fyrr en um hádegi. Var þá ekið viðstöðulaust að Reykjahlíð. Hittum þar Þórð á R 1069 og förunauta hans. Kom- um við í Möðrudal og höfðum tal af Jóni bónda Stefánssyni. Var liann að vanda hress í máli og fræddi okkur um margt í grennd við Möðru- dal. Veður hlýtt og bjart, sem bezt mátti verða. Ókum því næst sem leið liggur suður Arnardal og komum í Fagradal um 20-leytið. Fagridalur ber nafn sitt með prýði. Dalbotn- inn er rennsléttur og fagurgrænn vfir að líta, 4—5 km á lengd og 1 km á breidd. Talsverð bergvatnsá liðast eftir dalnum út í Kreppu, sem rennur í norðurátt vestan við dalmynnið. Mánud. 20. júlí. Ókum suður að jökli, um 30 km, en skildum tjökl eftir. Heiðríkja og hiti. Komum að jökli rétt austan við Kverká. Yzti öldugarður, frá 1890, mjög glöggur. Þá hafði jökull náð langdrægt upp á austustu kúlu Kverkárness, og sást farið mjög greinilega. Jökulsporðurinn var svartleitur, úfinn og bratt- ur fremst, en sýnilega staðnaður og tekinn að sléttast. Leituðum vel og lengi, árangurslaust, að jökulmerkjum þeirra Fljótsdælinga frá. 4. jan. (Sbr. síðasta hefti.), en hið vestasta þeirra átti að vera við Kverká. (Síðar kom í ljós, að það var austan Sauðár.) Hlaðin var allstór varða á yzta öldugarði (Vi) og önnur í stefnu þverbeint á jökuljaðar. Fjar- lægð milli varða er 1407 m, en frá V2 að jökli 202 m, eða öll fjarlægðin frá öldugarði að jökli skammt austan Kringilsár 1609 metrar. Árið 1890 hefur jökullinn því skriðið um 1600 metrum lengra fram en að þessu sinni. Jökul- sporðurinn var þverbrattur og hæðin upp á brún um 27 m. Uppdráttur M. Hallgrímssonar af jökulgarði frá 1890 og jökuljaðri 1964. Enn fremur sýnir hann legu jökuljaðars 1937 og 1945. The position of the terminal moraine of 1890, the present position of the advanced glacier front and the stadium of the glacier margin 1937 and 1945. 104 JÖKULL 1964

x

Jökull

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Jökull
https://timarit.is/publication/1155

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.