Feykir - 18.12.1991, Page 3
45/1991 FEYKIR 3
Musteri Guðs, sem gott
er að íhuga ájólum
,,Verið óhrœddir, því sjá, ég boða yður
mikinn fögnuð.” Þessi orð voru fyrstu orðin
sem engill Guðs flutti fjárhirðunum á
Betlehemsvöllum. Það var nóttina sem hann
kom til þeirra að bera þeim fyrstum manna
tíðindin um fæðingu Drottins inn ímannheim.
Sá atburður var úrslitaatburður í sögu
mannkyns.
Enn nálgast heilög jól, jafnt hér á
norðurhveli sem um alla heimsbyggðina og
enn hljóma orð engilsins í eyrum okkar. Þau
eru okkur þó ekki ný. Kirkjan og heilög
ritning flytja okkur sífellt fagnaðarboðskap-
inn: Guð elskar þig og sá sem elskaður er af
Guði þarf ekki að óttast. Fögnum því
Drottinn sjálfur er kominn til okkar. Hann
fæddist sem lítið barn og stofnaði kirkju sína
sem við erum hluti af.
Lífið sjálft og heimurinn sem við lifum í er
mikill /eyndardómur. Kraftar himnanna
umluktu fjárhirðana þegar engillinn vitjaði
þeirra. Sömu kraftar eru okkur enn nálægir
núna á jólunum, tæpum tveimur árþúsundum
síðar. Okkur er gefið að vita að sá Guð sem
valdi að koma inn í mannleg kjör sem lítið
ósjálfbjarga barn er ekkifjarlægt afl utan og
ofan við allt, heldur er hann persónulegur
algóður Guð, sem kallar okkur mennina
stöðugt til eftirfylgdar og samfélags við sig.
Samfélagið við Drottinn er engu öðru líkt.
Hann þekkir okkur hvert og eitt betur en við
sjálf gerum og kallar okkur til svo innilegs
sambands við sig að ekkert sem við þekkjum
jafnast á við það. Strax í skírninni erum við
tengd lífi, dauða og upprisu Jesú Krists og
skírnarnáðin verkar stöðugt í okkur.
Guð er Guð og maðurinn ermaður. Aðeins
í Jesú Kristi hafa Guð og maður algerlega
sameinast. Hann er hvorutveggja í senn,
sannur Guð og sannur maður. Þess vegna
getum við samtengst honum með sérstökum
hætti. Drottinn vill fæðast í sálum okkar
mannanna. Þar innst inni vill hann gjöra sér
bústað svo hann geti haft helgandi áhrif á alla
okkar tilveru. Það er köllun sérhvers kristins
manns að gera hjarta sitt að vöggu hans sem
fæddist í Betlehem á hinum fyrstu jólum.
Þannig verður samfélagið við Guð að einingu
sem veitir okkur helgun og b/essun í lífinu og
gefur okkur óverðugum og syndugum
mönnum hlutdeild í guðlegu eðli. Þannig
getum við hvert og eitt verið musteri Guðs,
þar sem Kristur sjálfur býr og starfar. Hér er
um að ræða mikinn leyndardóm, sem gott er
að íhuga á jólum.
Gjöf Guðs til okkar er hann sjálfur.
Fagnaðarerindið hljómar enn jafn hreint og
tært sem hin fyrstu jól. Guðs ríki er komið.
Með því að játast Jesú Kristi, játumst við
líinu og lifum daglega inni á orkusviði hans.
Við skulum leyfa Drottni að hönd/a okkur og
kveikja Ijós sitt innra með okkur. Biðjum
hann að hjarta okkar megi verða vagga hans.
Þá munum við finna hinn sanna jólafrið, sem
æðri er öllum skilningi og vera farvegur hans
til samferðamanna okkar. Þá munum við
eiga gleðileg jól.
Egill Hallgrímsson.