Feykir - 18.12.1991, Síða 4
4 FEYKIR 45/1991
Jónína Auöur Sigurðardóttir á Hvammstanga hefur tvisvar legið á sæng um áramót:
Anægjulegt að eiga sitthvort kynið sinnhvorn daginn
„Það var óneitanlega talsverð
lífsreynsla að dvelja á fæðingar-
heimilinu yfir áramótin tvö ár
í röð ogeignastsitthvort kynið
sinnhvom daginn”, segir Jónína
Auður Sigurðardóttir eigin-
kona fréttaritara Feykis á
Hvammstanga Eggerts Antons-
sonar. Þau hjón eiga þrjú börn
og það er líka skemmtileg
tilviljun að 12 ár eru á milli
þeirra eldri en 12 mánuðir á
milli yngri krakkanna.
Eggert var við nám í
mjólkurfræðum í Oðinsvéum
í Danmörku þegar Anton
fæddist 29. desember 1987.
Jónína Auður fylgdist þá
með ílugeldasýningunni frá
fæðingarheimilinu, en fékk
reyndar um kvöldið bæjar-
leyfi til að borða með
fjölskyldunni.
„Á aðfangadag árið eftir
var veðurspáin ákaflega
slæm. Þarsemaðséð varfyrir
að þetta yrði sitjandi
fæðing eins og árið áður
þorðu læknarnir ekki annað
en senda mig suður. Það var
því úr að við skelltum
jólapökkunum og hangikjöt-
inu, sem búið var að sjóða,
niður í kassa og renndum
suður. Það passaði að þegar
bíllinn staðnæmdist utan við
íbúðina sem við höfðum
afnot af syðra, heyrðum við í
útvarpinu að jólabjöllurnar
hringdu hátíðina inn. Það var
eins gott að við fórum suður
þennan dag, því það var
ákaflega leiðinlegt veður á
jóladag og næstu daga. Það
var síðan 28. sem Kristrún Osk
fæddist.
Jónína Auður sagði að það
væri kannski ekki gott fyrir
börnin að fæðast svona seint
á árinu. Það setti óneitanlega
meiri kröfur á þau varðandi
þroska, þar sem nokkurra
daga yngri börn yrðu bekk á
eftir í skóla. „Þannig að það
gætu einhverjir sagt að
útreikningarnir væru ekki
nógu góðir hjá okkur”, sagði
Jónína. ÞÁ.
Anton Albert Eggertsson, Jónína Auður Sigurðardóttir og Kristrún Ósk Eggertsdóttir.
Hólanesfólk ánægt í jólafrí
Ákvörðun breytt. Ekki kemur til uppsagnanna
Kveikt á tveimur jólatrjám
úr Hólaskógi á Hofsósi
Jólalegt er orðið um að litast á
Hofsósi eftir að kveikt var á
tveim jólatrjám í þorpinu á
sunnudag, öðru á vegum
hreppsins og hinu hjá Kára-
stígssamtökunum. Trén voru
sótt í skógræktina á Hólum,
höpgvin þar daginn áður.
Ibúar við Kárastíg tóku sig
saman fyrir nokkrum árum
og komu fyrir jólatré á
torginu við enda götunnar.
„Það var svolítið tómlegra
hjá okkur núna en undan-
farin ár, þar sem tvær
fjölskyldur fluttu burtu á
árinu, og að auki fór einn
aðalhöfðinginn á sjúkrahús
núna fyrir jólin. En Kára-
stígssamtökin halda samt
sínu striki og menn eru farnir
að fmna fyrir nálægð jólanna”,
sagði Einar Jóhannsson
póstmeistari og skógarhöggs-
maður í samtali við Feyki.
Einar Jóhannsson og Steinar
Sörensson við skógarhögg í
Hólaskógi.
Kveikt á jólatrénu við Kára-
stíginn.
Sambýlinu
berst
höfðingleg gjöf
Sambýlinu að Grundarstig 22
á Sauðárkróki barst einstak-
lega glæsileg og höfðingleg
gjöf á dögunum. Um er að
ræða arf frá Jóni Agústssyni
frá Brimnesi í Hofsósi er lést
fyrir ári.
Forráðamenn Svæðisstjómar
fatlaðra og íbúar Grundar-
stígs-sambýlisins eru ákaf-
lega þakklátir fyrir þessa
veglegu gjöf. Mikilvægastur
er þó sá velvilji sem býr að
baki, sérstaklega í ljósi þess
hversu erfitt uppdráttar
búsetumál fatlaðra eiga annars
staðar á landinu þessa
dagana.
Ákveðið hefur verið að Amar
ísfisktogari Skagstrendings
fari á veiðar 3. janúar nk.
Stjórnendur Skagstrendings
fiinduðu með starfsfólki Hólaness-
frystihússins í síðustu viku og
breyttu þar fyrri ákvörðun
sinni að hafa Arnar bundinn
við bryggju í janúr.
„Þeir samþykktu sjónar-
mið okkar að skárra væri að
stoppið yrði ísumareftilþess
þyrfti að koma”, sagði
Magnús Guðmannsson trún-
aðarmaður í Hólanesi. Starfs-
fólkið getur nú farið mun
bjarsýnna í jólafríið heldur
en á horfðist. Utlit er fyrir að
vinna verði í Hólanesi strax í
annarri viku nýs árs, og nóg
verður að gera þessa vikuna,
þar sem Arnar landaði 115
tonnum á mánudagsmorgun.
Magnús bjóst við að hráefnið
mundi rétt klárast fyrir jól,
en ljóst að ekki gæfist tóm til
að vinna það í verðmætustu
pakkningar.