Feykir - 18.12.1991, Síða 5
45/1991 FEYKIR 5
„Eg átti náttúrlega aldrei
að gefa mig í þetta"
segir ,jóla"pósturinn ívar Antonsson
„Jú, eins og nærri má geta var
geysilega mikið að gera í
póstinum fyrir jólin og maður
var oft að lesa í sundur langt
fram á nætur. Samt gafst tími
til að fara með pakka til
gamalmenna og þeirra sem
áttu erfitt með að nálgast þá.
Kári kunni mér ákaflega
góðar þakkir fyrir það”, sagði
Ivar Antonsson fyrrverandi
póstur á Króknum þegar
blaðamaður Feykis hitti hann
á förnum vegi á dögunum.
„Við fengum krakka úr
skólanum í útburðinn fyrir
jólin. Það var bara verst að
þau voru svo seint laus úr
skólanum. Eg var meira í
sundurlestrinum fyrir jólin
og kunni nú ekkert sérstak-
lega vel við mig í því. Það átti
frekar við mig að vera úti og
var orðinn vanur hreyííng-
unni”, sagði Ivar.
Það er ekki ósennileg
skýring hjá ívari, því eftir því
sem hann kemst næst hefur
hann í nokkur ár gengið daglega
vegalengd sem samsvarar
leiðinni milli Sauðárkróks og
Varmahlíðar.
„Eg þurfti að hætta í
trésmíðinni á sínum tíma því
bakið var að drepa mig. Þá
var Jón Friðbjörnsson að
hætta í póstinum og ég lét
narra mig til að taka starfíð
að mér, en átti náttúrlega
aldrei að gera það. Ég held að
hryggurinn hafi haft stór-
bölvun af því, en það verður
ekki aftur tekið.
— En er ekki starfið
skemmtilegt að því leyti, að
pósturinn hittir marga á
hverjum degi? Hætti þér
ekkert til að dvelja við rabb?
,,Nei, ég hafði engann tíma
til þess. Maður þurfti að
herða sig, þó svo að þetta
væri ósköp þægilegt fyrstu
árin. En eftir að hverfið
uppfrá fór að þenjast út
jukust vegalengdirnar til
muna og maður þurfti orðið
nokkrar ferðir í bílinn til að
sækja póstinn. Ég var
margbúinn að óska eftir að
bærinn yrði mældur upp og
eins gekk bölvanlega að fá
bílastyrkinn greiddan þrátt
fyrir að póstdreifingarmenn í
Reykjavík fengju borgað
fyrir flutning á póstinum í
úthverfin. Ég var búinn að
fara fram á að fá manneskju í
hálft starf með mér. Þegar
síðan bærinn var loks
mældur upp kom skipun um
að bæta við einni manneskju í
hverfið. Þetta var tveim til
þrem árum áður en ég hætti.
Ég ætlaði að halda út til
sjötugs, en þurfti að hætta á
69. árinu út af bakinu. En
það hefur stórlagast núna í
seinni tíð. Ég komst til góðs
gigtarlæknis fyrir sunnan.
Gekk til hans í sprautur í
þrjár vikur og hann náði mér
það vel upp að ég hef ekki
verið kvalinn síðan”, sagði
ívar Antons, sem sjálfagt enn
er í hugum margra Króksara
pósturinn síkáti, enda aðeins
fimm ár síðan hann lagði
bréfberatöskunni.
ívar Antonsson fyrrverandi póstur.
tíæjarráð Sauðárkróks mót-
mælir harðlega þeim fyrir-
ætlunum ríkisstjórnar Davíðs
Oddssonar að flytja ný
verkefni yfir á sveitarfélög í
landinu um leið og tekjur
sveitarfélaganna verði skertar.
Þá skorar bæjarráð á stjóm
Sambands íslenskra sveitar-
félaga að standa fast gegn
öllum kröfum af hálfu
ríkisvaldsins gagnvart sveitar-
félögunum. A það jafnt við
hvort heldurerum skerðingu
á tekjum þeirra að ræða, eða
flutning nýrra verkefna til
sveitarfélaganna án þess að
tekjur fylgi. Ofanrituð bókun
Bókasafnið:
Breyttur
opnunartími
Frá og með áramótunum
lengist opnunartími Héraðs-
bókasafns Skagfirðinga. Opn-
unartími verður á mánu-
dögum til miðvikudags frá
kl. 15-19. A fimmtudögum
frá 15-19 og 20-22 og á
föstudögum frá 14-18. Sektir
hækka í tvær krónur fyrir
hvern vanskiladag og hægt
verður að panta bækur gegn
gjaldi sem er krónur 50.
var samþykjct á bæjarstjómar-
fundi 12. desember sl.
'*** rf
:
SAMVTNNUBOKIN
•ISÍafnvextir 10,5%
• Ársávöxtun 10,78%
INNLANSDEÍLD
KAUPFÉLAQS
SKAQFIRÐINQA