Feykir - 18.12.1991, Qupperneq 21
45/1991 FEYKIR 21
Velheppnaðir
jólatónleikar Bjarkar
Samkórinn Björk á Blönduósi
gekkst fyrir jólatónleikum í
félagsheimilinu á Blönduósi
sl. sunnudag. Kórinn fékk til
liðs við sig fleira tónlistarfólk
í héraðinu. Skemmtunin er
árvisst framlag til að gleðja
eldri borgara í Húnaþingi.
Húsfyllir var og undirtektir
mjög góðar.
Skemmtunin samanstendur
af söngdagskrá og kaffíveit-
ingum. Um 130 manns komu
fram að þessu sinni, en
Bjarkarfélagar fengu til liðs
við sig, kirkjukór Undirfells-
og Þingeyrarsóknar, Barna-
kór Blönduóss og lúðrasveitina
á Blönduósi. Starfsamkórins
Bjarkar er mjög blómlegt nú
eins og undanfarna vetur.
Þrettándakvöld Heimis
Heimisfélagar eru himinlif-
andi þessa dagana yfir þeim
góðu móttökum sem nýja
platan, Undir bláhimni, hefur
fengið. Þá verður hin árlega
þrettándagleði kórsins haldin
í Miðgarði laugardaginn 4.
janúar nk. og hefst kl. 21.
Þrettándagleðin verður eins
og jafnan áður byggð upp á
söng og skemmtiatriðum.
Hljómsveit Geirmundar leikur
síðan fyrir dansi. Að sögn
Þorvaldar á Sleitustöðum
formanns Heimis er Undir
bláhimni að verða uppseld
hér heima, en mikl eftirspurn
hefur verið utan af landi eftir
plötunni.
Sjúkrahús Skagfirðinga
Heimsóknartímar yfirjól
og áramót
Aðfangadagur 18 - 21
Jóladagurl5 -17 og 19 - 21
Gamlársdagur 18 - 21
Nýársdagur 15-17 og 19 -21
Aðrir tímar eJUr
samkomulagi
8 JAFNAR QREBDSLUR
VAXTALAUSAR AF
ÖLLUM HÚSQÖQNUM
FRAM AÐ JÓLUM
OPIÐSUNNUD. KL. 13-17
\T\ PN
búðin þín!
Bréf til Guðbergs Bergssonar
Sauðárkróki, 7. desember
A dauða mínum átti ég
von, ekki því að ég fengi
senda bók frá þér. Ég þakka,
það má ekki minna vera. Við
eigum að vera kurteis á
Islandi.
Ég er orðinn gamall og
gleyminn. Ég er búinn að
gleyma því, að ég hafi skrifað
þér bréf. Ég hef nokkuð lengi
fylgst með þér. Fyrst heyrði
ég þess getið, að þú hefðir
skrifað vonda bók. Vondar
bækur geta orðið «góðar,
þegar höfundar þeirra eru
dauðir.
Nú um stundir hef ég
hlutstað á þig tala í útvarp.
Þú hefur góðan málróm og
flytur nokkuð vel. Flutningur er
listgrein, þegar orð og
hljómar eru í samræmi.
Ég er byrjaður að lesa
bókina. Hún hefur þann
kost, hvað hún er skrifuð á
fallegri íslensku. Margir sem
tala í útvarp, flytja vel og tala
góða íslensku, þó eru frávik.
Nýlega talaði maður nokkur
í útvarp og sagði í stuttri
ræðu tíu eða tólf sinnuni
„hérna, hérna”. Ég varð
leiður á þessu stagli og
lokaði.
Hér á landi er löðrandi af
skáldum og listamönnum.
Það er gott ef þeir eru ekki
leirskáld og klessumálarar.
Ég held það sé gagn að
skáldum.
Það er fróm ósk mín, að
merkilegar hugsanir líði um
huga þinn og þú komirþeim
frá þér.
Með kveðju,
Björn Egilsson.
JOLAGJAFIRIIRVALI
BRAUN RAKVELAR
BRAUN HÁRBLÁSARAR
BRA UN HEIMILISTÆKI
BLACK & DECKER RAFMAGNSVERKFÆRl
PFAFF SAUMAVÉLAR OG OVERLOCKVÉLAR
NASA LEIKJATÖLVUR MEÐ TURBO
STÝRIPINNUM OG 4 LEIKJUM KR. 11900
Kaupvangstorgi 1 • Sími 35132 • 550 Sauðárkróki
''//V/M SNJÓMOKSTURSDAGAR 'W UM JÓL OG ÁRAMÓT
verða sem hér segir:
LEIÐIR: Des, 1991 Jan.1992
Reykjavík - Akureyri - Húsavík 16, 18,20,21,23,26 27 og 30 2, 3 og 6
Brú - Hólmavík 16, 18,20,21,23,27 og 30 2, 3 og 6
SkagasL - Blönduós - HvammsL 16,17,18,19,20,21, 2,3 og 6
23,26,27 og 30
Varmahlíð- SteinsLbyggÖ 16,18,20,21,23,26, 27 og 30 2,3 og 6
Vanmahlíð - Sauðáikr. - Hofsós 16,17,18,19,20,21, 23,26,27 og 30 2.3 0G6
Sauðárkrókur - Hólar 16,18,20,21,23,26, 27 og 30 2,3 og 6
Hofsós - Siglufjörður 16,18,20,21,23,26, 2,3 og 6
27 og30