Dagblaðið Vísir - DV - 14.11.2014, Blaðsíða 49
Helgarblað 14.–17. nóvember 2014 Sport 49
Strákarnir okkar
eru í toppstandi
n Allir klárir í slaginn gegn Tékkum í undankeppni EM n Byrjunarliðsmenn eru flestir lykilmenn í sínum liðum
Ragnar Sigurðsson
Staða: Miðvörður Landsleikir/mörk: 41/0 Mínútur frá
síðasta leik: 450
Ragnar Sigurðsson er í frábæru leikformi þessa dagana enda fær
hann nóg af leikjum hjá félagsliði sínu Kuban Krasnodar í rússnesku
úrvalsdeildinni. Deildin er í fullum gangi í Rússlandi en auk þess er liðið
í eldlínunni í Evrópudeildinni þar sem það leikur í riðli með Everton
og Wolfsburg meðal annars. Ragnar hefur byrjað fimm af síðustu sjö
leikjum Krasnodar en er iðulega í liðinu þegar það á mikilvægan leik
fyrir höndum. Kuban-liðið er í 3. sæti rússnesku deildarinnar
og í harðri baráttu um Meistaradeildarsæti.
Theódór Elmar Bjarnason
Staða: Hægri bakvörður Landsleikir/mörk: 13/0
Mínútur frá síðasta leik: 338
Theódór Elmar virðist hafa eignað sér stöðu hægri bakvarðar
landsliðsins með frábærri frammistöðu í fyrstu þremur leikjum
undankeppninnar. Theódór Elmar hefur einnig verið í góðu formi
með félagsliði sínu Randers í dönsku úrvalsdeildinni. Randers
situr í 2. sæti deildarinnar eftir 14 umferðir og er Theódór Elmar
fastamaður í liðinu. Hann hefur byrjað alla fjóra leiki liðsins frá
sigurleiknum gegn Hollandi og alls spilað 338 mínútur. Í þessum
leikjum hefur Theódór að auki skorað tvö mörk.
Tékkar slakir
á heimavelli
T
ékkar hafa farið vel af stað í
undankeppni EM eins og ís-
lenska liðið og eru bæði lið
með fullt hús stiga eftir þrjá
leiki á toppi A-riðils. Tékk-
ar hafa löngum tilheyrt hópi stór-
liða í evrópskri knattspyrnu, eða allt
frá því að þeir komust alla leið í úrslit
Evrópukeppninnar árið 1996 þar sem
þeir biðu lægri hlut fyrir Þjóðverjum
í úrslitum. DV skoðar hér tékkneska
liðið og leggur mat á styrkleika þess
og veikleika.
Alltaf með á EM
Þó að knattspyrnuhefð sé rík í
Tékklandi hefur gengi landsliðsins
valdið talsverðum vonbrigðum á
undanförnum árum. Liðið hefur
aðeins einu sinni komist á HM en
það gerðist árið 2006. Liðinu hefur
gengið miklu betur í undankeppni
EM þar sem því hefur aldrei mis-
tekist að komast í lokakeppnina
frá árinu 1996 þegar Tékkar tóku
fyrst þátt. Á EM 2012 tókst liðinu að
komast í 8-liða úrslit þar sem Crist-
iano Ronaldo skaut þá úr keppni
með marki seint í leiknum.
Valdið vonbrigðum
Í undankeppni HM, þeirri sömu og
Íslendingar komust í umspil, léku
Tékkar í B-riðli ásamt Ítalíu, Dan-
mörku, Búlgaríu, Armeníu og Möltu.
Sem fyrr segir komust Tékkar ekki
upp úr riðlinum en þeir enduðu í 3.
sæti hans með 15 stig. Danir fengu 16
stig en Ítalir urðu efstir með 22 stig.
Segja má að árangur liðsins hafi
valdið nokkrum vonbrigðum enda
hafði það á að skipa ungum leik-
mönnum sem náðu góðum árangri
með U21 árs landsliðinu. Liðið varð
til dæmis í 4. sæti á EM U21 árs lands-
liða í Danmörku árið 2011, sömu
keppni og íslenska liðið tók þátt í.
Vandamál Tékka í undankeppni HM
voru helst þau að liðið átti í stökustu
erfiðleikum með að skora mörk. Í tíu
leikjum skoruðu Tékkar aðeins þrett-
án mörk, þar af komu níu á útivelli
en aðeins fjögur á heimavelli.
Varnarleikurinn var í öllu betra
jafnvægi en liðið fékk á sig níu mörk,
þar af sex á heimavelli. Sé eitthvað að
marka síðustu undankeppni virðast
Tékkar kunna betur við sig á útivelli
en á heimavelli.
Afleitur árangur heima
Þó að Tékkar virðist feikilega öfl-
ugir um þessar mundir er ekki þar
með sagt að íslenska liðið geti ekki
náð góðum úrslitum á sunnudag.
Á þessu ári hefur liðið spilað sjö
leiki og þar af hafa þrír unnist, allir í
undankeppni EM.
Liðið lék vináttuleik við Norð-
menn á heimavelli í mars og fór sá
leikur 2–2. Þá gerðu Tékkar sömuleið-
is 2–2 jafntefli við Finna í maí síðast-
liðnum á útivelli. Þann 3. júní töpuðu
Tékkar, 0–2, fyrir Austurríki á heima-
velli og þann 3. september biðu þeir
lægri hlut fyrir Bandaríkjunum, 0–1, á
heimavelli í vináttuleik.
Séu tíu síðustu leikir Tékka á heima-
velli skoðaðir sést að liðið hefur að-
eins unnið þrjá leiki, gert þrjú jafntefli
en tapað fjórum. Árangur þeirra á úti-
velli er miklu betri. Í tíu síðustu leikjum
hafa Tékkar unnið sex leiki, gert þrjú
jafntefli og aðeins tapað einum.
Miðað við þetta ættu Íslendingar
að ganga hóflega bjartsýnir til leiks á
sunnudag. n
n Unnið 3 af síðustu 10 leikjum heima n Sterkari á útivelli
Þrír lykilmenn Tékklands
Petr Cech
Staða: Markvörður Félag: Chelsea
Landsleikir/mörk: 111/0
Petr Cech þarf ekki að kynna fyrir neinum sem fylgst
hefur með ensku úrvalsdeildinni á undanförnum
árum. Þessi 32 ára markvörður hefur verið einn
allra besti markvörður deildarinnar undanfarin tíu
ár og unnið ótal titla á farsælum ferli. Cech hefur
ekki átt sæti í liði Chelsea á þessu tímabili og þykir
líklegt að hann rói á önnur mið í janúar eða næsta
sumar. Enginn efast þó um hæfileika þessa stóra og
stæðilega markvarðar.
Tomas Rosicky
Staða: Miðjumaður Félag: Arsenal
Landsleikir/mörk: 98/22
Þó að Rosicky sé orðinn 34 ára er hann enn algjör
lykilmaður í liði Tékka. Hann hefur spilað tvo af
þremur leikjum liðsins í undankeppninni og stýrt
sóknarleik tékkneska liðsins eins og herforingi. Auk
þess að vera einn reynslumesti leikmaður liðsins er
hann einnig sá leikmaður í hópnum sem hefur skorað
langflest mörk, eða 22 í 98 landsleikjum. Það mun
væntanlega koma í hlut Arons Einars Gunnarssonar
að gæta Rosickys í leiknum í Plzen á sunnudag.
Tomas Sivok
Staða: Varnarmaður Félag: Besiktas
Landsleikir/mörk: 47/4
Tomas Sivok er reynslubolti sem leikur með Besiktas
og má búast við því að hann verði í miðri vörninni
gegn Íslendingum. Sivok leikur yfirleitt í stöðu djúps
miðjumanns en með tékkneska liðinu hefur hann
leikið í miðri vörninni með fínum árangri. Hann hefur
leikið tvo af þremur leikjum Tékka í undankeppninni
en hann missti af sigurleiknum gegn Hollendingum
vegna meiðsla. Sivok er feikilega öflugur í loftinu og
hefur skorað ófá skallamörkin á undanförnum árum.
Einar Þór Sigurðsson
einar@dv.is
Eigum möguleika
Miðað við gengi Tékka á
heimavelli undanfarin
misseri á íslenska liðið
góða möguleika á að
ná stigi eða stigum á
sunnudag. Mynd rEutErS