Fréttablaðið - 17.05.2016, Page 6
ALLT FYRIR
ÚTIVISTINA
BÍLDSHÖFÐA
AKUREYRI
SELFOSSI
29.990
MAMMUT
GÖNGUSKÓR
Tollalækkun Salomon skór á enn betra verði en áður!
Verð
áður 49.995 kr.
nú 39.995 kr.
Salomon Quest
Origin GTX
Stærðir 36-48
lÍs en ku
ALPARNIR
s
SWALLOW 250
Kuldaþol: -8
þyngd: 1,7 kg.
11.995 kr. 9.596 kr.
MONTANA, 3000mm vatnsheld
2. manna 16.995 kr. 12.796 kr.
3. manna 19.995 kr. 15.996 kr.
4. manna 26.995 kr. 21.596 kr.
30%
SNJÓBRETTAPAKKAR
Góðar
fermingargjafir
FAXAFENI 8, SÍMI 534 2727
alparnir.is
Í heimsókn í Havana
Jose Manuel Garcia-Margallo y Marfil, utanríkisráðherra Spánar sem hér sést fyrir miðju, var viðstaddur
minningarathöfn í Havana á Kúbu í gær en þar er hann í opinberri heimsókn. Nordicphotos/AFp
Samfélag Flestar umsóknir útlend-
inga um hæli hér eru tilhæfulausar
að mati Útlendingastofnunar. Fjöldi
umsókna hefur þrefaldast miðað
við sama tíma í fyrra. Það sem af er
ári hafa 177 sótt um hæli.
Fram kemur hjá Útlendinga-
stofnun að aðeins tveir einstaklingar
hafi fengið dvalarleyfi af mannúðar-
ástæðum á þessu ári sem er aðeins
brot af heildarfjölda umsókna. Þór-
hildur segir það stafa af því að flestar
umsóknir um hæli hér séu tilhæfu-
lausar. „Stór hluti þeirra sem koma
hingað er í leit að atvinnu og bættum
efnahagslegum kjörum. Umsóknir á
slíkum grunni eru þó tilhæfulausar
enda er hæliskerfið neyðarkerfi,“ segir
Þórhildur Hagalín, upplýsingafulltrúi
Útlendingastofnunar. „Flestir þeirra
sem þurfa á vernd að halda, gegn
ofsóknum, pyndingum eða annarri
ómannúðlegri meðferð, fá hana með
veitingu hælis eða viðbótarverndar.“
Alls sóttu 42 einstaklingar um hæli
á Íslandi í apríl í fyrra. Flestir umsækj-
endur í apríl komu frá Makedóníu
og Írak en alls kom nærri þriðjungur
umsækjenda frá löndum Balkan-
skagans. Átta af hverjum tíu umsækj-
endum eru karlar.
Ísland sker sig frá öðrum Evrópu-
ríkjum að því leyti til að þjóðernis-
samsetning umsækjenda er mjög
frábrugðin því sem er í öðrum ríkjum
álfunnar. „Útlendingastofnun hefur
ekki greint ástæður að baki þessu
en þær eru margþættar,“ segir Þór-
hildur. „Landfræðileg lega landsins er
einn þáttur sem útskýrir hvers vegna
hingað hafa ekki komið fleiri hælis-
leitendur frá stríðshrjáðum ríkjum í
Mið-Austurlöndum. Fyrir íbúa Balk-
anskagans, sem margir hverjir þurfa
ekki vegabréfsáritun til að ferðast til
Íslands, er mun auðveldara að komast
hingað.“
Þórhildur spáir því að allt að eitt
þúsund umsóknir komi til kasta
stofnunarinnar á þessu ári. „Ef horft
er til síðustu mánaða 2015 sést hins
vegar að fjöldi umsókna nú er í
takt við þróunina sem hófst síðasta
haust.“ Allt eins má gera ráð fyrir að
umsóknum fjölgi eftir því sem líður á
árið en spá Útlendingastofnunar gerir
ráð fyrir 600 til 1.000 umsóknum á
árinu. sveinn@frettabladid.is
Þrefalt fleiri sækja um
Sprenging hefur orðið í umsóknum um hæli hér á landi. Mestmegnis er um að
ræða tilhæfulausar umsóknir útlendinga að mati Útlendingastofnunar.
ferðaþjónuSta Gjaldtaka á bíla-
stæðum í Þjóðgarðinum á Þing-
völlum hófst í gærmorgun.
Eigendur einkabíla þurfa núna að
greiða fimm hundruð krónur fyrir
að leggja bílum sínum á staðnum.
Fyrst um sinn verða einungis
einkabílar rukkaðir um bílastæða-
gjald en á næstu vikum koma
hópferðabílar til með að þurfa að
greiða 1.500 til 3.000 krónur eftir
stærð.
Gjaldið mun duga allan daginn
og til klukkan átta á kvöldin, en
gjaldfrjálst er eftir það. Þeir sem
greiða ekki bílastæðagjald munu
þó ekki fá sekt.
Allir viðmælendur fréttastofu á
Þingvöllum í gær tóku gjaldtökunni
með jákvæðum hætti. Þeir töldu
verðið sanngjarnt og fannst sjálf-
sagt að greiða fyrir stæði á Þing-
völlum eins og í Reykjavík.
– sg
Gjaldtaka hafin fyrir
bílastæði á Þingvöllum
Þórhildur hagalín,
upplýsingafulltrúi
Útlendingastofn-
unar
1 7 . m a í 2 0 1 6 þ r I ð j u D a g u r6 f r é t t I r ∙ f r é t t a B l a ð I ð
1
7
-0
5
-2
0
1
6
0
4
:3
8
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
9
7
2
-1
9
C
4
1
9
7
2
-1
8
8
8
1
9
7
2
-1
7
4
C
1
9
7
2
-1
6
1
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
B
F
B
0
6
4
s
_
1
6
_
5
_
2
0
1
6
C
M
Y
K