Fréttablaðið


Fréttablaðið - 17.05.2016, Qupperneq 6

Fréttablaðið - 17.05.2016, Qupperneq 6
ALLT FYRIR ÚTIVISTINA BÍLDSHÖFÐA AKUREYRI SELFOSSI 29.990 MAMMUT GÖNGUSKÓR Tollalækkun Salomon skór á enn betra verði en áður! Verð áður 49.995 kr. nú 39.995 kr. Salomon Quest Origin GTX Stærðir 36-48 lÍs en ku ALPARNIR s SWALLOW 250 Kuldaþol: -8 þyngd: 1,7 kg. 11.995 kr. 9.596 kr. MONTANA, 3000mm vatnsheld 2. manna 16.995 kr. 12.796 kr. 3. manna 19.995 kr. 15.996 kr. 4. manna 26.995 kr. 21.596 kr. 30% SNJÓBRETTAPAKKAR Góðar fermingargjafir FAXAFENI 8, SÍMI 534 2727 alparnir.is Í heimsókn í Havana Jose Manuel Garcia-Margallo y Marfil, utanríkisráðherra Spánar sem hér sést fyrir miðju, var viðstaddur minningarathöfn í Havana á Kúbu í gær en þar er hann í opinberri heimsókn. Nordicphotos/AFp Samfélag Flestar umsóknir útlend- inga um hæli hér eru tilhæfulausar að mati Útlendingastofnunar. Fjöldi umsókna hefur þrefaldast miðað við sama tíma í fyrra. Það sem af er ári hafa 177 sótt um hæli. Fram kemur hjá Útlendinga- stofnun að aðeins tveir einstaklingar hafi fengið dvalarleyfi af mannúðar- ástæðum á þessu ári sem er aðeins brot af heildarfjölda umsókna. Þór- hildur segir það stafa af því að flestar umsóknir um hæli hér séu tilhæfu- lausar. „Stór hluti þeirra sem koma hingað er í leit að atvinnu og bættum efnahagslegum kjörum. Umsóknir á slíkum grunni eru þó tilhæfulausar enda er hæliskerfið neyðarkerfi,“ segir Þórhildur Hagalín, upplýsingafulltrúi Útlendingastofnunar. „Flestir þeirra sem þurfa á vernd að halda, gegn ofsóknum, pyndingum eða annarri ómannúðlegri meðferð, fá hana með veitingu hælis eða viðbótarverndar.“ Alls sóttu 42 einstaklingar um hæli á Íslandi í apríl í fyrra. Flestir umsækj- endur í apríl komu frá Makedóníu og Írak en alls kom nærri þriðjungur umsækjenda frá löndum Balkan- skagans. Átta af hverjum tíu umsækj- endum eru karlar. Ísland sker sig frá öðrum Evrópu- ríkjum að því leyti til að þjóðernis- samsetning umsækjenda er mjög frábrugðin því sem er í öðrum ríkjum álfunnar. „Útlendingastofnun hefur ekki greint ástæður að baki þessu en þær eru margþættar,“ segir Þór- hildur. „Landfræðileg lega landsins er einn þáttur sem útskýrir hvers vegna hingað hafa ekki komið fleiri hælis- leitendur frá stríðshrjáðum ríkjum í Mið-Austurlöndum. Fyrir íbúa Balk- anskagans, sem margir hverjir þurfa ekki vegabréfsáritun til að ferðast til Íslands, er mun auðveldara að komast hingað.“ Þórhildur spáir því að allt að eitt þúsund umsóknir komi til kasta stofnunarinnar á þessu ári. „Ef horft er til síðustu mánaða 2015 sést hins vegar að fjöldi umsókna nú er í takt við þróunina sem hófst síðasta haust.“ Allt eins má gera ráð fyrir að umsóknum fjölgi eftir því sem líður á árið en spá Útlendingastofnunar gerir ráð fyrir 600 til 1.000 umsóknum á árinu. sveinn@frettabladid.is Þrefalt fleiri sækja um Sprenging hefur orðið í umsóknum um hæli hér á landi. Mestmegnis er um að ræða tilhæfulausar umsóknir útlendinga að mati Útlendingastofnunar. ferðaþjónuSta Gjaldtaka á bíla- stæðum í Þjóðgarðinum á Þing- völlum hófst í gærmorgun. Eigendur einkabíla þurfa núna að greiða fimm hundruð krónur fyrir að leggja bílum sínum á staðnum. Fyrst um sinn verða einungis einkabílar rukkaðir um bílastæða- gjald en á næstu vikum koma hópferðabílar til með að þurfa að greiða 1.500 til 3.000 krónur eftir stærð. Gjaldið mun duga allan daginn og til klukkan átta á kvöldin, en gjaldfrjálst er eftir það. Þeir sem greiða ekki bílastæðagjald munu þó ekki fá sekt. Allir viðmælendur fréttastofu á Þingvöllum í gær tóku gjaldtökunni með jákvæðum hætti. Þeir töldu verðið sanngjarnt og fannst sjálf- sagt að greiða fyrir stæði á Þing- völlum eins og í Reykjavík. – sg Gjaldtaka hafin fyrir bílastæði á Þingvöllum Þórhildur hagalín, upplýsingafulltrúi Útlendingastofn- unar 1 7 . m a í 2 0 1 6 þ r I ð j u D a g u r6 f r é t t I r ∙ f r é t t a B l a ð I ð 1 7 -0 5 -2 0 1 6 0 4 :3 8 F B 0 6 4 s _ P 0 5 9 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 5 4 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 0 6 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 1 1 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 9 7 2 -1 9 C 4 1 9 7 2 -1 8 8 8 1 9 7 2 -1 7 4 C 1 9 7 2 -1 6 1 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 B F B 0 6 4 s _ 1 6 _ 5 _ 2 0 1 6 C M Y K
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.