Fréttablaðið - 17.05.2016, Side 18
Elskuleg eiginkona, móðir,
tengdamóðir og amma
Birgit Helland
lést á Landspítalanum laugardaginn
7. maí. Útför hennar fer fram frá
Seltjarnarneskirkju fimmtudaginn
19. maí kl. 13.00. Blóm og kransar eru
vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vilja minnast
hennar er bent á Ljósið.
Hreinn Frímannsson
Finnur Hreinsson Kristín H.B. Einarsdóttir
Knútur Hreinsson
Frímann Hreinsson
Dagný Hreinsdóttir Úlfar Þór Björnsson
og barnabörn.
Útfarar- og lögfræðiþjónusta
Vesturhlíð 2 Fossvogi | Sími 551 1266 | útför.is
Útfararstofa kirkjugarðanna
Hugrún Jónsdóttir
Við erum til staðar
þegar þú þarft á
okkur að halda
Við önnumst alla þætti undir-
búnings og framkvæmd útfarar
ásamt vinnu við dánarbússkiptin.
Við þjónum með virðingu
og umhyggju að leiðarljósi
og af faglegum metnaði.
1724 Mývatnseldar hefjast og standa með hléum í fimm ár. Gígur-
inn Víti í Kröflu verður til.
1846 Adolphe Sax fær einkaleyfi fyrir uppfinningu sína, saxófón-
inn.
1920 Hollenska flugfélagið KLM er stofnað.
1940 Breskir hermenn koma til Akureyrar
með varðskipinu Ægi.
1973 Yfirheyrslur vegna Watergate-
hneykslisins hefjast.
1978 Líkkista Charlie Chaplin finnst á
ný eftir að bíræfinn grafarræningi krafð-
ist lausnargjalds fyrir hana.
1990 Mikhail Gorbatsjov hittir Kazimiera
Prunskiene, forsætisráðherra Litháens, á
sögulegum fundi.
1998 Kristján Helgason verður Evrópumeist-
ari í snóker á móti í Finnlandi.
Merkisatburðir 17. maí
Nanna Ýr Arnardóttir ver doktorsritgerð sína í heilbrigðisvísindum við Háskóla Íslands í dag. Ritgerð
hennar ber heitið Tengsl hreyfingar og
heilsu – Þýðisrannsókn á eldri körlum og
konum á Íslandi.
Nanna Ýr er fædd árið 1982 og hefur
verið nánast linnulaust í námi frá því
hún var sex ára gömul. „Þetta er búin
að vera mikil törn, en ég tók mér nú ár
í frí eftir að ég kláraði menntaskóla og
svo kenndi ég í eitt ár eftir að ég kláraði
meistaranámið, áður en ég byrjaði í
doktorsnáminu,“ segir Nanna Ýr.
„Eftir að ég kláraði masterinn og var að
kenna í lífeðlisfræðinni þá bauðst mér að
koma að vinna hjá Hjartavernd og safna
þar gögnum um eldra fólk sem tók þátt í
öldrunarrannsókninni. Eftir þetta kvikn
aði áhuginn hjá mér og sérstaklega vegna
þess að í rannsókninni erum við með
fólk með mjög háan meðalaldur miðað
við aðrar rannsóknir gerðar hafa verið.“
Megintilgangur rannsóknarinnar var
að auka þekkingu á því hvernig hreyfing,
kyrrseta og svefn tengjast heilsu eldra
fólks á Íslandi. Hreyfing þátttakenda
var mæld með hreyfimælum. „Hreyfi
rannsóknir hafa ekki verið gerðar áður
á svona gömlu fólki, ekki nema þá með
spurningalistum. Í rannsókninni erum
við með meðalaldur um 80 ár,“ segir hún.
Aðalniðurstöðu rannsóknarinnar segir
hún vera hversu lítið gamalt fólk hreyfir
sig. „Þau eru að eyða 75 prósentum af
deginum, þar sem þau eru með mælinn
á sér, í kyrrsetu og það er gríðarlega hátt
hlutfall. Um 21 prósent dagsins fer í
létta hreyfingu, eins og að ná sér í kaffi
og fleira. Einungis 3 til 4 prósent fara í
hreyfingu sem er meira en það,“ segir
Nanna Ýr.
Nanna Ýr er búsett í Gautaborg ásamt
fjölskyldu sinni og hefur unnið að rit
gerðinni þaðan síðustu sex ár. Hún segir
að það krefjist mikils sjálfsaga að vinna
slíkt verkefni sjálfstætt en hún hefur
verið á reglulegum fundum á Skype með
leiðbeinanda sínum, dr. Þórarni Sveins
syni, prófessor við Læknadeild Háskóla
Íslands.
Aðspurð að því hvað taki við hjá henni
eftir þetta stóra verkefni grínast Nanna
með að hún ætli aldrei aftur í skóla. „Eins
og staðan er núna er ég að leita mér að
vinnu í Gautaborg og er líka með augun
opin hérna heima. Það er kannski ekki
langt í að við komum heim, maður veit
aldrei,“ segir Nanna Ýr.
thordis@frettabladid.is
Tæplega þrjátíu ára
námsferli lokið
Nanna Ýr Arnardóttir ver doktorsritgerð sína í dag. Rannsökuð voru tengsl hreyfingar og
heilsu eldri karla og kvenna. Eldra fólk eyðir um 75 prósentum af deginum í kyrrsetu.
Þann 17. maí árið 1954 úrskurðaði hæstiréttur
Bandaríkjanna að það stangaðist á við stjórnar-
skrá landsins að meina börnum aðgang að
skólum landsins vegna kynþáttar.
Málið var sótt fyrir hönd Lindu Brown,
ungrar stúlku af afrískum uppruna sem var
meinaður aðgangur að hverfisskóla sínum
vegna litarháttar. Skólinn sem hún vildi fara
í var rétt hjá heimili hennar og mun betri en
næsti skóli fyrir blökkumenn sem var í klukku-
tíma göngufæri frá heimilinu.
Fram til þessa hafði úrskurður hæstaréttar
frá 1896 um að aðskilja mætti fólk í almenn-
ingsfarartækjum eftir kynþætti, því kynþætt-
irnir væru „aðskildir en jafnir“, verið notaður
til að réttlæta aðskilnað á öllum mögulegum
stöðum, meðal annars grunnskólum.
Úrskurður hæstaréttar kvað á um að að-
skilnaður í skólum væri óréttlátur í eðli sínu og
helst til þess fallinn að stuðla að lakari stöðu
blökkufólks í samfélaginu. Ekki væri hægt að
tala um að fólk væri aðskilið en jafnt í þessu
samhengi.
Þessi úrskurður hafði mikil áhrif á mannrétt-
indabaráttu blökkumanna í Bandaríkjunum
og leiddi til þess að tæpum tveimur áratugum
síðar var allur aðskilnaður vegna kynþáttar
bannaður þar í landi.
Þ ETTA G E R ð i ST : 1 7 . M A Í 1 9 5 4
Kynþáttaaðskilnaður afnuminn
Nanna Ýr Arnardóttir ver doktorsritgerð sína í heilbrigðisvísindum í dag. Hún hefur stundað námið frá Gautaborg. FréttAbLAðið/ANtoN briNk
Þann 17. maí úrskurðaði hæstiréttur bandaríkjanna að aðskilnaður í skólum vegna
kynþáttar væri óréttlátur í eðli sínu. FréttAbLAðið/AFP
1 7 . m a í 2 0 1 6 Þ R I Ð J U D a G U R18 t í m a m ó t ∙ F R É t t a B L a Ð I Ð
tímamót
1
7
-0
5
-2
0
1
6
0
4
:3
8
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
9
7
1
-F
C
2
4
1
9
7
1
-F
A
E
8
1
9
7
1
-F
9
A
C
1
9
7
1
-F
8
7
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
B
F
B
0
6
4
s
_
1
6
_
5
_
2
0
1
6
C
M
Y
K