Fréttablaðið - 17.05.2016, Page 20
Þegar mest var voru um 160 manns að æfa hjá
okkur. Gegnumstreymið yfir árið er um 140
krakkar en það eru um það bil áttatíu til níutíu krakkar
sem æfa reglulega stærstan hluta ársins.
Guðmundur Stefán Gunnarsson
Fólk er kynningarblað
sem býður auglýsendum að
kynna vörur og þjónustu í formi
viðtala og umfjallana. Í blaðinu
er einnig hefðbundið ritstjórnar-
efni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu
daglega.
Útgefandi: 365 miðlar | Ábyrgðarmaður:
Svanur Valgeirsson | Umsjónarmenn
efnis: Sólveig gísladóttir, solveig@365.is,
s. 512 5351, Vera einarsdóttir, vera@365.
is, s. 512 5357 | Sölumenn: Atli Berg-
mann, atlib@365.is, s. 512 2447, Bryndís
Hauksdóttir, bryndis@365.is, s. 512 5434,
Jóhann Waage, johannwaage@365.
is, s. 512 5439, Jón Ívar Vilhelmsson,
jonivar@365.is, s. 512 5429
Hjá júdódeild UMFN í Njarðvík
geta öll börn æft frítt. Þegar deild-
in var stofnuð haustið 2010 var að
sögn Guðmundar Stefáns Gunn-
arssonar, stofnanda deildarinn-
ar og þjálfara, lagt upp með að
lækka kostnað við íþróttaiðkun
barna. „Það er orðið svo dýrt að
stunda íþróttir í dag. Þegar deild-
in var stofnuð var bærinn að af-
nema íþróttastyrkinn þannig að við
ákváðum að hafa það alveg ókeypis
fyrir börn að æfa. Þannig var það
þar til styrkurinn kom aftur árið
2013 en þá voru sett æfingagjald
hjá okkur upp á fimmtán þúsund
krónur sem er jafnhátt styrknum.
Með því að hafa þetta svona von-
aðist ég til að æfingagjöld myndu
lækka í öðrum íþróttagreinum en
það hefur ekki gerst,“ útskýrir
Guðmundur.
Sprenging í Fjölda
Þegar deildin var stofnuð bjóst
Guðmundur við að um tíu börn
myndu mæta reglulega á æfingar
en raunin varð önnur. „Það varð
algjör sprenging, þegar mest var
voru um 160 manns að æfa hjá
okkur. Gegnumstreymið yfir árið
er um 140 krakkar en það eru um
það bil áttatíu til níutíu krakkar
sem æfa reglulega. Ég hef frá byrj-
un lagt áherslu á að hafa æfingar
fyrir bæði kynin og ætla ekki að
gefast upp á því. Ég er með stelpu-
hópa á hverju ári sem fá jafngóða
tíma og strákarnir. Auk þess geta
allir æft saman, strákar og stelpur
og börn og fullorðnir. Það geta allir
verið saman en stelpurnar geta líka
fengið að vera sér ef þær vilja.“
Guðmundur segir að hjá honum
séu börn sem ekki fá íþróttastyrk-
inn ekki rukkuð um æfingagjöld. „Í
flestum bæjarfélögum er styrkur-
inn bara upp í sextán ára en fyrir
mér eru börnin börn alveg þar til
þau verða átján ára og þurfa þau
því ekki að borga fyrr en þá,“ segir
hann og bætir við að þó fái allir iðk-
endur sendan gíróseðil upp á fimm-
tán þúsund krónur en ekki sé geng-
ið eftir því að hann sé greiddur.
Spurður að því hvernig deild-
in standi þá undir sér segir Guð-
mundur að hún sé rekin með hjálp
styrktaraðila. „Það hefur held-
ur ekki verið mikill kostnaður
við þetta. Fyrstu þrjú árin voru
til dæmis engin þjálfaralaun sem
þurfti að greiða því ég var einn til
að byrja með. Flestir þjálfararn-
ir í dag myndu líka þjálfa án launa
ef út í það færi en við fáum þjálf-
arastyrk frá bænum og svo fer allt
sem er afgangs í að greiða þeim.“
óSkiljanlegur Verðmunur
Ástæðuna fyrir því af hverju hann
sé í þessu segir Guðmundur vera
aðallega að þetta sé skemmti-
legt. „Það er gaman að sjá krakka
sem maður hélt að ættu ekki séns,
blómstra og bæta sig. Svo getur
maður náð taki á þessum yngri og
prentað inn í þau góð gildi,“ lýsir
Guðmundur en hann gagnrýnir þá
afreksstefnu sem ríkir í íþrótta-
heiminum almennt í dag. „Það er
mikið af krökkum sem ekki er
pláss fyrir í íþróttafélögum vegna
þessarar stefnu. Hérna áður fyrr
var stefnan sú að þeir sem vildu
verða góðir í íþróttum höfðu tæki-
færi til þess en nú hefur hún snú-
ist upp í andhverfu sína, það er
skyldumæting á æfingar og ekki
hægt að æfa bara tvisvar í viku,
það verða allir að vera í þessu af
fullum krafti.
Hjá mér er ekki markmiðið að
allir verði atvinnumenn eða meist-
arar. Samt sem áður urðu allir
fimm keppendurnir okkar sem
kepptu á Íslandsmótinu meistarar.
Ef maður vill verða góður þá æfir
maður bara meira og allir eru til-
búnir að hjálpa, þannig var afreks-
stefnan í gamla daga. Auk þess að
gera krökkum erfiðara fyrir að
æfa bara til gamans heldur þessi
nýja afreksstefna æfingagjöldun-
um uppi. Það er til dæmis ódýrara
fyrir barn að æfa í einkarekinni
líkamsræktarstöð með þjálfara
hér í Reykjanesbæ en að æfa fim-
leika og sund. Þær íþróttagrein-
ar eru samt reknar á sama grunni
og júdóið hjá mér, þannig að mér
finnst skrítið að það sé svona mik-
ill verðmunur.“
andhVerF aFrekSSteFna
Júdóþjálfari segir þá afreksstefnu sem ríkir í íþróttaheiminum í dag gera það að verkum að ekki sé pláss fyrir öll börn í
íþróttum. Hjá UMFN geta börn æft júdó frítt og markmiðið er ekki að allir verði meistarar.
Það varð algjör sprenging í iðkendafjölda þegar júdódeildin tók til starfa, að sögn
Guðmundar.
Guðmundur gefur keppanda ráð á móti í uppgjafaglímu.
Sölustaði má finna á celsus.is
AÐEINS ÞAÐ BESTA FYRIR BÖRNIN
SÓLARVÖRNIN SEM HÚÐLÆKNAR MÆLA MEÐ
LANGVIRK
SÓLARVÖRN.
10x10.indd 1 11.5.2016 12:59:08
1 7 . m a í 2 0 1 6 Þ R I Ð J U D a G U R2 F ó l k ∙ k y n n I n G a R b l a Ð ∙ X X X X X X X XF ó l k ∙ k y n I n G a R b l a Ð ∙ h e I l s a
1
7
-0
5
-2
0
1
6
0
4
:3
8
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
9
7
2
-0
F
E
4
1
9
7
2
-0
E
A
8
1
9
7
2
-0
D
6
C
1
9
7
2
-0
C
3
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
B
F
B
0
6
4
s
_
1
6
_
5
_
2
0
1
6
C
M
Y
K