Feykir


Feykir - 27.11.2008, Qupperneq 8

Feykir - 27.11.2008, Qupperneq 8
Alexandra Chernyshova, söngkona og söngkennari í Söngskóla Alexöndru Jólahald í mismunandi menningarheimum Alexandra er fædd og uppalin í Úkraínu en jólahald þar er meó öðrum hætti en hér á landi. Þar er jóladagur þann 6. janúar og aðalháta'ðarhöldin fara fram á nýársdag. Jólablaðið Feykir settist niður með Alexöndru og fræddist um úkraínsk og íslensk jól söngkonunnar. Eins og á Islandi eru jólin fjölskylduhátíð í heimalandi Alexöndru en engu að síður segir hún að hátíðarhöldin á stöðunum tveimur séu ( UPPSKRIFTIR á margan hátt mjög ólík. -Annars er svo langt síðan að ég hélt jól og áramót í Úkraínu að ég er ekki alveg viss um hvernig hátíðin hefur þróast þar. Hins vegar voru áramótin alltaf stærri hátíð en sjálf jólin, rifjar Alexandra upp. Hvað með jólagjafirnar? -Já, þær voru mikilvægar þar eins og hér, segir Alexandra og hlær. -Heima var byrjað að gefa gjafir þann 19. desember þegar heilagur Nikulás kemur og gefur börnunum gjafir. Þá byrjar í raun jólahátíðin og nær hún hámarki um áramót með stóru partýi. Um áramót setjum við gjafir undir tréð og þá kemur Ded Moroz og færir okkur gjafir auk þess sem við fáum frá foreldrum okkar. Eins er í Úkraínu mikil hefð fyrir því að börnin búi til gjafir handa foreldrum sínum. Ég man að systir mín var oft að föndra eitthvað en ég reyndi að búa til lag og syngja en stundum prjónaði ég líka eitthvað handa þeim. Síðan á gamlárskvöld þá eru allir saman komnir að horfa á sjónvarp og hápunkturinn er þegar klukkan í sjónvarpinu slær 12 högg, þá kemur nýtt ár. Þá stöndum við öll með kampavín og meðan bjöllurnar óma óskar maður sér eitthvað fyrir hið nýja ár. Síðan er Uppskrift af Olivie oS fyrir 5-6 manns: \o r ■ 4 meðalstórar kartöflur Fyrst að sjóða kartöflur, egg og ■ 2 stórar gulrætur gulrætur. ■ 3egg Skræla kartöflurnar. ■ 1 stór agúrka Skera kartöflur, egg, gulrætur, • 2 litlar súrar agúrkur agúrkur, kjötbúðing og lauk : ■ 250 gr. kjötbúðingur niður í litla feminga/bita. ■ Ein lítil dós af Blanda öllu saman með grænum baunum majónesi og rjóma. ■ 1 meðal stór laukur Borið fram sem forréttur. ■ 130 gr. sýrður rjómi ■ 100 gr. létt majones skálað og þar á eftir gjafirnar opnaðar. Hefð er fýrir því að hafa á borðum kampavín og salat sem heitir Olivie, þetta tvennt hafa allir á borðum þetta kvöld [sjá uppskrift hér til vinstri]. Um jól er líka sá siður í Úkraínu að börn ganga í hús og syngja, stundum henda þau líka hrísgrjónum inn í híbýli manna til þess að færa þeim gæfu, að launum fá þau nammi og stundum pening. Alexandra rifjar upp ein jólin þegar hún var 9 ára er hún fór með vinum sínum í allar blokkirnar í götunni. -Við urðum ofboðslega rík þessi jólin en þetta má bara gera eitt kvöld á ári, segir hún og hlær. Aðspurð segir Alexandra að það hafi verið mikil viðbrigði að koma og halda jól á íslandi. -Ég man að mér fannst svo flott hvernig allir skreyttu húsin sín. Það var svo mikið af ljósum út um allt mér fannst þetta ofboðslega fallegt og var alltaf að biðja Jón að koma með mér út að keyra og skoða ljósin, en þá bjuggum við í Keflavík. Annað sem Alexandra tók eftir hér á landi er að hér situr fólk um jólin og talar saman en á hennar heimaslóðum var mikið sungið. -Síðan var það maturinn, ég borðaði lambakjöt í fýrsta sinn hér um jól og smakkaði laufabrauðið og kökurnar, þetta er allt önnur menning í mat hér heldur en í Úkraínu. Þar eru hlaðborð með mörgum fjölbreyttum réttum og mikið af salati með mayonesi og sýrðum rjóma. Enda er Úkraína fræg fýrir góðan mat. Fékk skóla í jólagjöf Alexandra segist ekki baka fýrir jólin heldur kaupi hún piparkökur. Á annan dag jóla fari þau síðan ætfð í jólaboð til fjölskyldu Jóns. En jólin í fyrra voru um margt frábrugðin því þá voru Alexandra og Jón að undirbúa opnun söngskólans sem opnaði þann 7. janúar eða á annan í jólum í Úkraínu. -Það var svolítið sérstakt að vera bara að vinna og opna skóla þegar allir voru heima að halda jól. En við vorum búin að vera svo dugleg að vinna við þetta allt jólafríið að ég leit bara á þetta sem stóra og góða jólagjöf. Skólinn hefur gengið vel en Alexandra eignaðist sitt annað barn í sumar og er því einungis í 50% vinnu fram að áramótum og kennir þá einungis börnum og unglingum þann tíma. Fullorðna fólkið kemur síðan aftur inn um áramót. Samhliða skólarekstri sinnir hún Óperu Skagafjarðar sem setti upp á síðasta ári á eftirminnilegan hátt La Traviata og í vor setti söngskólinn upp sýninguna um Sigvalda Kaldalóns. Þann 13. desember ætlar hún síðan að halda stóra jólatónleika þar sem meðlimir í Óperu Skagafjarðar auk nemenda í söngskólanum ætla að syngja saman. Verða tónleikarnir í Ljósheimum og hefjast klukkan 16:00. Þá má sjá myndband við flutning Alexöndru á Jingle Bells inn á http://www.youtube.com/ alexandrachernyshova auk þess sem Alexandra tók á dögunum upp lagið Heims um ból þar sem hún syngur ásamt nemendum sínum. Það er þvi meira en nóg að gera hjá söngkonunni duglegu og verður gaman að fýlgjast með nýjum ævintýrum Söngskóla Alexöndru og Óperu Skaga- fjarðar á nýju ári. Ópera Skagafjarðar ætlar að setja upp og sýna Rigoletto á næstu Sæluviku. Lög frá óperunni koma út á geisladisld núna í desember. Söngskóli Alexöndru og Tónlistarskólar Austur- og Vestur Húnavatnssýslu verða í samstarfi í vetur þar sem m.a. verður stofnaður Stúllcnakór Norðurlands vestra. Kórinn er fýrir stúlkur á aldrinum 10-16 ára. Stefnt er að stórum og flottum tónleikum um næstu páska sem bera heitið „Draumaraddir norðursins".

x

Feykir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.