Feykir - 27.11.2008, Blaðsíða 15
Hrafnhildir í Bæjarblóminu
á Blönduósi er mikiö jólabarn
Lét gamlan
draum rætast
Jóseffna Hrafnhildur
Pálmadóttir lét gamlan
draum rætast þann 25.
maf árið 2007 þegar hún
sló til og keypti verslunina
Bæjarblómið á Blönduósi.
Reksturinn hefur sfðan
þá verið hinn blómlegasti
og Hrafnhildur talar um
að þetta sé rosalega
skemmtilegt. Jólablaðið
Feykir kfkti til Hrafnhildar
snemma í nóvember þegar
hún var að byrja að taka
upp jólaskrautið.
-Já, þetta var gamall draum-
ur sem varð að veruleika.
Það má segja að þegar ég
lét loksins verða að því hafi
hlutirnir gengið mjög hratt
fyrir sig, segir Hrafnhildur
sem áður starfaði við að þrífa
kjötvinnsluna á Blönduósi í 25
ár, samhliða því að vera bóndi.
Lengst af í Árholti en þar
byggðu þau hjón, Hrafnhildur
og eiginmaður hennar Ingimar
Skaftason upp, en hin síðari ári
hafa þau búið á Hjaltabakka
í Torfalækjahreppi hinum
forna. Ingimar vinnur einnig
utan heimilis, en hann
vinnur hjá SAH afurðum á
Blönduósi. -Ég geri nú minna
í búskapnum en áður eftir að
ég byrjaði með búðina en ég
fer þó oft og gef kindunum
áður en ég fer í búðina.
Hafðir þú einhverja reynslu
af rekstri nú eða gerð blóma-
skreytinga áður en þú hófst
reksturinn? -Ekki þannig, ég
hafði oft fyrir jólin gertýmislegt
handa börnunum mínum og
hef síðan farið á nokkur nám-
skeið í Garðyrkjuháskólanum.
Tengdadóttir mín hefur farið
með mér á námskeið en hún
ætlar að hjálpa mér hér í
búðinni ef á þarf að halda. Mér
finnst ágætt að hafa einhvern úr
fjölskyldunni ef það er hægt.
Þurfti allt í einu að
undirbúa jól
í október
Hvernig hefur síðan rekst-
urinn gengið? -Mjög vel,
miklu betur en ég átti von á
þegar ég keypti. Ég er með
mikið af gjafavöru og er þetta
eina gjafavöruverslunin í
Austur Húnavatnssýslu. Ég
reyni að vera með gjafavöru
sem passar í brúðkaup, afmæli
og við öll tækifæri. Það er
mjög mikið komið hér og
keyptar gjafir og er í raun mun
meira upp úr því að hafa en
blómunum sjálfum. Þá reyni
ég að vera bæði með gjafir í
dýrari og ódýrari kantinum,
það er misjafnt hvað fólk
hefur efni á að kaupa. Þetta
er ofboðslega gefandi starf og
á álagstímum eru oft miklar
vökur og mikil viðvera. Það er
í raun viðveran sem gildir.
Jólin í ár verða önnur jólin
sem Hrafnhildur stendur
vaktina á bak við búðarborðið
en aðspurð segir hún að í fyrra
hafi hún ekki hugsað út í þessa
hluti. -Ég áttaði mig ekki á
því að ég þyrfti að vera búin
að gera allt heima í október.
Það var því ekki mikið bakað
og seint verið að skreyta
jólatréð. Samt komu nú jólin
og ekkert síðri en áður. Dóttir
okkar vissi reyndar af annríki
móður sinnar og gaf okkur
stóra körfu með smákökum
um jólin.
Ertu þá ekki búin að öllu
núna? -Ég er alla vega byrjuð,
svarar Hrafnhildur og hlær.
Ertu mikið jólabarn? -Já, ég
skreyti mikið og bakaði alltaf
10 sortir en það hefur minnkað
með árunum. Þó baka ég
alltaf mömmukökurnar og
engiferkökurnar sem eru
mjög vinsælar að ógleymdri
niðursneiddu brúntertunni
sem ég baka eft ir uppskriftinni
hennar ömmu.
Vildi ekki svört jól
Hrafnhildur segir að sér
hafi krossbrugðið þegar hún
fór í fyrstu ferðina suður til
Reykjavíkur til þess að kaupa
jólavörur. -Það var mikið
verið að reyna að selja mér
svart jólaskraut og meira að
segja svört jólatré. Ég tók þetta
ekki inn í verslunina hjá mér
enda vill fólk halda sig við
þetta rauða, græna og gyllta
auk þessa silfraða.
Ertu sjálf litaglöð fyrir
jólin? -Já ég hef þótt vera
það svolítið en maður verður
samt að láta litina passa
saman, segir Hrafnhildur sem
aðstoðar viðskipta vini sína við
jólaskreytingarnar. -Ég er að
gefa fólki ráð við allt mögulegt
er varðar skreytingar í
desembermánuði og eins fyrir
þann tima varðandi aðventu-
og hurðakransa. Oft vef ég
kransana fyrir fólk og ráðlegg
því síðan hvað það getur gert í
áframhaldinu.
Þetta er þér sem sagt
eðlislægt? -Maðurinn minn
segir alla vega að ef ég geti
ekki selt þá geti það enginn
svo ég hafi alveg hans óbreyttu
orð. Krakkarnir mínir segja
að ég hafði átt að vera byrjuð
á þessu fyrir löngu.
Aöstoóar
eiqinmenn vió
jófagjafakaup
Það fylgir mikil viðvera
rekstri blómabúðar og segir
Hrafnhildur að hún hafi alltaf
opið frá eitt til sex virka daga
og tólf til fimm á laugardögum.
Síðan á sunnudögum ef
eitthvað sérstakt sé. -Síðan
er símanúmerið mitt hér á
hurðinni og fólk hringir í mig
ef eitthvað er, þá get ég alltaf
komið og opnað.
Ertu svolítið í því að
aðstoða eiginmenn við
jólainnkaupin? -Já, já, þeir
komu hér sumir fyrir hádegi
á aðfangadag og vantaði þá
eitthvað í pakkann, eins koma
þeir þegar afmæli eru. Ég
þekki oftast nær konurnar
þeirra og get því aðstoðað þá
eftir megni. Eins hefur það
komið fyrir að konurnar séu
V2 kíló hveiti
150 gr. sykur
Einn bolli sýróp
Ein tsk. negull
Ein tsk. kaniil
4 tsk. kakó
200 gr. smjörlíki
2 egg
4 til 6 kókósbollur
Púðursykurmarengs
Einn peli rjómi (þeyttur)
Ávextir, helst ferskir
Myljið marengsinn niðurískál,
setjið helming af rjómanum
saman við, kremjið bollurnar
búnar að gefa mér vísbendingu
um hvað þær langi í.
Hvað með framhaldið
ertu bjartsýn á reksturinn
áfram? -Já, ég er það. Ég
hafði gríðarlega mikið að
gera í sumar og ferðamenn
komu mikið hér við enda
er staðsetningin góð. Síðan
verður sundlaugin sem verið
er að byggja hér bara hinum
megin við götuna og vonar
maður að þar verði góð aðsókn
og því ekkert því til fyrirstöðu
að reksturinn verði góður
áfram, segir Hrafnhildur að
lokum.
3 tsk.lyftiduft
1 tsk. allrahanda
V2 tsk. engifer
Öllu blandað saman og
hnoðað. Flatt út á 2 plötur,
lagt saman með smjörkremi
þegarkakan erköld.
ofan á smyrjið svo restinni af
rjómanum ofan á, setjið þetta í
frysti í minnst 4 klukkustundir,
takið út hálftíma til klukkutíma
fyrir neyslu og setjið ávexti
ofan át.d jarðarber og bláber.
Verði ykkur að góðu.
UPPSKRIFTIR