Feykir


Feykir - 27.11.2008, Page 36

Feykir - 27.11.2008, Page 36
36 jNMm *■?*&? * Heiðin jól Sigurjón Þóróarson Hegranesgoði Held upp á jólin eins og flestir Allir hljóta að geta verið sammála um að jólin séu háta'ð Ijóss og friðar hvaða trú sem þeir aðhyllast. Þó að við íslendingar þekkjum flest fæðingarhátfð frelsarans eru ekki allir sem halda kristin jól. Þeir sem eru í Ásatrúarfélaginu, þar sem fmna má kristna innan um, fagna sigri ljóssins yfir myrkrinu og að daginn fer að lengja eftir myrkur skammdegisins. Sigurjón Þórðarson, fyrrverandi alþingis- maður, er starfandi Hegranesgoði hjá Ásatrúarfélaginu. -Ég held hefðbundin íslensk jól eins og flestir. Ég borða rjúpur og aspassúpu og svo er gómsæt jólakaka nálæg. Jólin eru upprunalega heiðin hátíð, sumir halda þvi fram að orðið jól sé eitt af nöfnum Óðins og aðrir halda að það merki hringur. Sumir telja jafnvel að jólatréð eigi rætur í heiðni sem lífsins tré, askur Yggdrasils. Það má rifja upp að kristnir söfnuðir héldu ekki jól í upphafi kristninnar. Seinna var fæðingu frelsarans minnst 6. janúar ár hvert og er sú dagsetning enn við lýði, t.d. í rússnesku rétttrúnaðarkirkjunni. Síðan var hátíðin færð frá þeim degi yfir á 25. desember, á þann dag er heiðnir menn héldu sína hátíð í Rómaveldi þar sem þeir fögnuðu því að daginn fer að lengja. Þá runnu saman þessar tvær hátíðir sem mér finnst mjög jákvætt. Fólkið á bak við blaóið Uppáhalds jólaskrautiö okkar i Þuríður H. Sigurðardóttir framkvæmdastjóri Uppáhalds jólaskrautið hennar Þun'ðar er foriáta rauður jóladúkur sem amma hennar, Þóra Guðmundsdóttir, gaf henni þegar hún var j | 12 ára. -Amma gaf mér dúkinn þegar ég var 12 ára og átti ég að sauma út í hann. Ég byrjaði sjálf en amma tók síðan við. Eftir á að hyggja þykir mér merkilegast að hún hafi ætlað mér að sauma út í | þennan dúk, segir Þunður. -Síðan held ég mikið upp á þessi hekluðu j snjókom sem tengdamóðir mín, Lilla Malla, útbjó handa mér en ég á 1 dágott safn af hekluðu jólaskrauti frá henni. Við hjá Feyki eru dugleg við að fara fram á að fólk opni heimili sín, deili uppskriftum og prakkarasögum. Sjálf sitjum við stikkfn hjá og höldum okkar prívat lífi að mestu fyrir okkur fyrir utan einstaka leiðaraskrif. í tilefni jólanna ákváðum við að grafa að þessu sinni ofan í eigin jólakassa og deila með ykkur okkar uppáhalds jólaskrauti og sögunum á bak við það. ■1 Guðný Jóhannesdóttir ritstjóri -Ég á ekki neitt sérstakt uppáhalds skraut en skrautið sem alltaf fer upp er skraut sem pabbi og mamma áttu. Jólatréstoppinn keypti hann á fyrstu búskaparárum þeirra og hefur toppurinn farið á toppinn á trénu hjá mér síðan pabbi dó. Páll Friðriksson blaóamaöur í uppáhaldi hjá Páli er jólabangsi sem hann fékk að gjöf frá Sigurði apótekara og Margréti konu hans þegar hann var 5 - 6 ára gamall. -Þau voru nágrannar og vinafólk okkar. Við systkinin fengum sitt hvorn bangsann. Bangsinn hefur síðan þá alltaf fylgt mér og ég passa vel upp á hann. Krakkarnir fá ekki að leika sér með hann bara rétt að halda á honum. Ég hef bætt hann af og til með því að setja á hann nýtt hár og nýtt skegg og skinn. Bangsinn er síðan tekinn fram með aðventuskrautinu og settur á öruggan stað þar sem hann fær að njóta sín og standa í friði. Guðni Friðriksson prentari í uppáhaldi hjá Guðna eru jólasveinastyttur sem hann er búinn að eiga síðan hann man eftir sér. Guðni segist ekki þekkja söguna á bak við sveinana en þeir séu honum kærir og fari ætíð upp um jól. -Ég ef stundum látið þá standa sitt hvoru megin á orgelinu hjá mér. -Ég varð eiginlega að svindla og koma með tvennt. Reyndar á mamma mitt uppáhalds jólaskraut sem er forláta taska í formi jólakúlu. Taskan góða ef ætíð á heiðursstað á trénu heima hjá mömmu. En af mínu dóti er það bleika jólakúlan frá ömmu en jólaljósin í dimmri stofunni gerðu hana alltaf svo ævintýralega fallega. Síðan er það jólatréð sem ég keypti í Jólagarðinum og ætlaði til gjafa en endaði með því að gefa sjálfri mér það íjólagjöf það árið. Óli Arnar Brynjarsson uppsetjari -Messingbjöllur sem amma mín, Minna Bang, keypti á Ítalíu fyrir löngu löngu síðan og gaf mömmu. Síðan eru það jólanissamir sem fara alltaf á eldhússkápana um hver jól. Þetta er hvort tveggja eldra en ég sjálfur og ég man ekki eftir neinum jólum án þess að þetta hafi verið uppi við og því algjöriega bráðnauðsynlegt til þess að skapa réttu jólastemninguna á mínu heimili. Siqurlaug Sævarsdóttir ásRriftir og auglýsingar

x

Feykir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.