Bændablaðið - 24.09.2015, Blaðsíða 7
7Bændablaðið | Fimmtudagur 24. september 2015
avíð Hjálmar Haralds-
son opnar mér annað
slagið ljóðasjóði sína.
Þar er enda úr miklu
að moða. Davíð er bragvís
með afbrigðum og myndrænn
í besta máta. Sérlega eru limrur
Davíðs læsilegar. Eftirfarandi
limru orti hann þegar tilskipanir
Evrópusambandsins flæddu hvað
ákafast yfir og sást embættismönn-
um yfir ýmsa agnúa sem illa sam-
ræmdust okkar litla samfélagi:
Samkvæmt nýlegum úrskurði ESA
skal annast um Huppu og Blesa
með ráðum og dáð
og reglugerð háð
og Indriði læri að lesa.
Næstu vísur Davíðs eru ortar á
ýmsum tímum liðins sumars.
Orðfærið er myndrænt og ramm-
íslenskt og ekki í daglegri notkun
þeirra sem mest ríða ritvelli nú til
dags.
Júnímorgunn:
Sekkur hratt í sólarljós
syfjað næturstirni.
Drúpir höfði dalarós,
döggin frýs á þyrni.
Fjórði maí:
Gropnar klaki, grænkar tún,
grugg úr flagi seytlar.
Vorglaðir á vegarbrún
vaxa góubeitlar.
Júníhret:
Þá í lundi þröstur hló,
þegar féð var borið,
undir djúpri dyngju af snjó
Drottinn faldi vorið.
Jónsmessa á Árskógsströnd:
Leiftra daggir, loga brekkur,
ljóma slær á fjallaskörð
þegar eldrauð sólin sekkur
síðla kvölds í Eyjafjörð.
Sumarkvöld:
Sígur værð á sunnanátt,
sjatna bárufaldar.
Nú er vestrið næturblátt,
norðrið rauðu tjaldar.
Ágústdagur:
Dúnurt smá í dalalind
dýfir rótartánum.
Nú er sól um Súlutind
og sveppir undir trjánum.
Síðsumar:
Sofnar árla sólin löt,
syfjar jarðargróður.
Kominn er í ferðaföt
fuglaskari hljóður.
Að endingu birtist ljóðkorn eftir
Davíð sem hann nefnir Jónsmessu:
Fagnar allt og fer á stjá.
Óðinshani
er á spani
út við flóðin fagurblá.
Rjóðrið þar sem reyrinn grær,
dreifir angan
daginn langan.
Ilminn teygar austanblær.
Síli, vermt af sólarglóð,
er í leyni
undir steini.
Nú er gott á norðurslóð.
Umsjón:
Árni Geirhjörtur Jónsson
kotabyggð1@gmail.com
Líf og starf
Réttað var í Tungnaréttum í
Biskupstungum þann 12. septem-
ber sl. Þá voru liðin 60 ár síðan
réttirnar voru teknar í notkun
eftir breytt staðarval árið 1955.
Að venju var mikið fjör og margt
um manninn þegar féð var rekið í
réttina um fyrri helgi. Fjallkóngurinn
var kona að nafni Guðrún Svanhvít
Magnúsdóttir frá Bræðratungu. Ekki
var síður handagangur í öskjunni
þegar dregið var í dilka og ekki var
laust við að einn og einn dreypti á
söngvatni.
Frá gamalli tíð stóðu Tungnaréttir
á bakka Tungufljóts í landi
Holtakota, rétt ofan við Koðralæk.
Þær voru hlaðnar úr hraungrjóti eins
og algengast var á þeim tíma. Árið
1955 var ráðist í að endurnýja rétt-
irnar og þá voru þær færðar niður
með fljótinu og reistar við fossinn
Faxa eða á þeim stað þar sem þær
eru núna.
Í febrúar 2012 stofnuðu heima-
menn í Biskupstungum félagið
Vini Tungnarétta gagngert til að
endurbyggja réttirnar í uppruna-
legri mynd. Stofnfélagar voru um
100 talsins. Á stofnfundinum kom
strax í ljós að mikill áhugi var fyrir
verkefninu og fjöldi stofnfélaga fór
fram úr björtustu vonum.
Þann 14. september 2013 var
fyrst réttað í nýjum Tungnaréttum
í Biskupstungum og dregið í dilka
sem eru 25 talsins. Hver þeirra
tekur um 400 fjár og samtals rúm-
ast því um tíu þúsund fjár í dilkum
réttarinnar. Formleg vígsla réttar-
innar fór svo fram laugardaginn
21. júní 2014 með borðaklipp-
ingu Sigurðar Inga Jóhannssonar
landbúnaðarráðherra og Helga
Kjartanssonar, þá nýkjörins odd-
vita Bláskógabyggðar. Var þetta
hans fyrsta embættisverk.
Það var Ruth Örnólfs sem
,var fulltrúi Bændablaðsins í
Tungnaréttum að þessu sinni og
tók hún meðfylgjandi myndir.
Réttað í endurnýjuðum en 60
ára gömlum Tungnaréttum
D
MÆLT AF
MUNNI FRAM
138
Myndir / Ruth Örnólfs.
-
-