Bændablaðið - 24.09.2015, Síða 12

Bændablaðið - 24.09.2015, Síða 12
12 Bændablaðið | Fimmtudagur 24. september 2015 Fréttir Dýraverndarsamband Íslands (DÍS) hefur sent áskorun til Sigurðar Inga Jóhannsson, sjáv- arútvegs- og landbúnaðarráð- herra, um að setja reglugerð um bann við innflutningi og sölu á dýraafurðum sem eru framleidd- ar í andstöðu við íslensk lög um velferð dýra. „Það er afstaða Dýraverndar- sambandsins að marklaust sé að auka velferðarstig íslenskra húsdýra sem leggja okkur til afurðir, ef inn- flutningur afurða sömu dýra sem alin eru erlendis við lægra velferðar- stig er óheftur,“ segir Hallgerður Hauksdóttir, formaður DÍS. „Sérlega ógeðfelldar afurðir eru til dæmis foie gras-kæfa sem augljóslega er framleidd með hætti sem ekki yrði leyfður hér vegna dýraverndarsjónarmiða. Þetta er selt hér á landi. En jafnframt er hann meiri þáttur hinna vanalegu búfjárafurða sem fluttar eru inn og jafnframt framleiddar hér heima þar sem huga þarf að velferð dýra. Við teljum áríðandi að stuðla að góðum búskap þar sem bóndi býr að bústofni sínum, en sporna við þauleldi.“ Neytendur kynni sér velferð dýra sem nýtt eru til matar „Jafnframt þessu teljum við áríð- andi að neytendur kynni sér velferð þeirra dýra sem leggja til afurðir. Þar er annars vegar fyrrnefnt sjón- armið um innflutning og hins vegar vottun á dýraafurðum hér heima. Dýraverndarsamband Íslands vinnur að undirbúningi velferðarvottunar búfjárafurða í íslenskum búskap.“ Áskorunin sem stjórn Dýraverndarsambands Íslands sendi ráðherra er svohljóðandi: „Á Íslandi hefur tíðkast að selja sem sælkeramat í verslunum og á veitingastöðum anda- og gæsalifrar- kæfuna foie gras, sem framleidd er erlendis. Hefðbundin foie gras kæfa er framleidd með aðferð sem er andstæð dýravelferð og ljóst er að slík framleiðsla yrði ekki leyfð hér á landi. Fóður er þvingað með röri niður um háls fuglanna, með það að markmiði að framkalla ofvaxna lifur, svokallaða fitulifur. Þetta er ill meðferð á dýrum hvernig sem á það er litið. Við hvetjum ráðherra til að setja reglugerð um bann við innflutningi og sölu á dýraafurðum sem eru fram- leiddar í andstöðu við íslensk lög um velferð dýra (nr. 55/2013). Heimild er til þess í 25. gr. laganna, um dreifingu og merkingu dýraafurða. Stjórn DÍS telur óásættanlegt að heimilt sé að selja hér á landi afurðir sem byggja á illri meðferð dýra og einnig vörur sem framleiddar eru með minni dýravelferð en leyfð er hér á landi. Jafnframt hvetjum við neytendur til að sniðganga þessar vörur og benda söluaðilum á að þessi vara sé framleidd með óverjandi aðferð- um. Við hvetjum einnig veitingahús og verslanir til að hætta sölu á foie gras.“ /HKr. Dýraverndarsamband Íslands: Ekki verði fluttar inn dýraafurðir sem stangast á við íslensk dýravelferðarlög − augum ráðherra sértaklega beint að innfluttri gæsalifrarkæfu (foie gras) Ríkisjarðir til sölu: Fjöldinn svipaður og undanfarin ár Samkvæmt fjárlögum fyrir árið 2016 er heimiluð sala á 16 lóðum og jörðum í eigu ríkisins. Fjöldinn er svipaður og undanfarin ár. Athygli vekur að land á Keldum á Keldnaholti og við Úlfarsá er á sölulistanum. Óskar Páll Óskarsson, sviðsstjóri hjá Ríkiseignum, segir að stærstur hluti jarðanna sem er verið að setja á sölu núna séu sömu jarðir og hafa verið í söluferli undanfarin ár. „Til að selja jarðir í eigu ríkisins þarf heimild í fjárlögum að undanskildum jörðum sem seldar eru til sveitarfé- laga eða ábúenda þar sem almenn söluheimild í jarðalögum er fyrir hendi. Jarðir er fara í almenna sölu fara aftur á móti í gegnum Ríkiskaup á grundvelli söluheimilda.“ Jarðirnar sem nefndar eru í fjár- lögum fyrir árið 2016 eru til dæmis jarðir sem hafa losnað undanfarin ár og eru ónýttar í dag og ekki búið að ráðstafa. Óskar segir að fyrsta skrefið í sölu ríkisjarða felist í því að leita heimildar í fjárlögum. Sé heimildin samþykkt á Alþingi sér Ríkiskaup um almenna sölu. „Þegar ákvörðun er tekin um að selja jörð í ríkiseigu eru allar ákvarð- anir teknar á grundvelli hagsmuna ríkissjóðs en ekki hagsmuna þeirra sem hafa áhuga á að kaupa jörð. Það er gert til að koma í veg fyrir hagsmunaárekstra ríkisins og hugs- anlegra kaupenda. Sé ákveðið að selja jörð á almennum markaði er öllum landsmönnum gert mögulegt að bjóða í hana. Jarðir til sölu hjá Ríkiskaupum eru seldar hæstbjóðanda en eigi jörð að fara í ábúð eða leigu er hæfasti umsækjandinn valinn úr hópi þeirra sem sækja um eftir almenna auglýs- ingu. /VH Aðferðirnar sem notaðar eru til að ala gæsir sérstaklega vegna lifrarinnar eru mörgum þyrnir í augum. Gæsalifur, sem á fínu veitingahúsa- máli heitir „Foi gras“, þykir eftirsótt lúxusfæða. Áhrifamikið plakat þýskra and- stæðinga hefðbundinna framleiðslu- aðferða á gæsalifur. Þarna er búið að setja konu í hlutverk gæsarinnar og verið að troða í hana fóðri. Jarðasala í fjárlögum fyrir árið 2016 • Landspildur í eigu ríkisins í Garðabæ. • Hluti af landsvæðum ríkisins við Litla-Hraun. • Hluti Jarðasjóðs af jörðunum Torfastöðum I og II í Rangárþingi eystra. • Selja eða leigja jarðirnar Gunnólfsvík I og II, Langanesbyggð. • Heimila Jarðasjóði að selja ábúandanum á Reykhólum land- spildur í grennd við jörðina. • Selja land ríkisins á Keldum, á Keldnaholti og við Úlfarsá. • Heimila Jarðasjóði að selja jörðina Nýrækt í sveitarfélaginu Skagafirði. • Selja eða leigja landspildur ríkisins við Grindavík. • Heimila Jarðasjóði að selja jörðina Strönd í Skaftárhreppi. • Heimila Jarðasjóði að selja jörðina Rofabæ 1 í Skaftárhreppi. • Heimila Jarðasjóði að selja jörðina Bakkakot 1 í Skaftárhreppi. • Heimila Jarðasjóði að selja jörðina Höskuldsstaði í Þingeyjar- sveit. • Heimila Jarðasjóði að selja jörðina Litla-Kamb í Snæfellsbæ. • Heimila Jarðasjóði að selja jörðina Þverárdal í Húnavatnshreppi. • Selja hluta af lóð Vegagerðarinnar að Borgarbraut 66 í Borgar- nesi ásamt salthúsbyggingu sem er á lóðinni. Jafnframt að kaupa eða leigja lóð að Borgarbraut 66 af Borgarbyggð. Nemarnir þrettán sem útskrif- uðust frá Landgræðsluskólanum í ár koma frá Eþíópíu, Gana, Mongólíu, Úganda, Malaví, Namibíu og Kirgistan. Sjö konur og sex karlar. Útskrift nema úr árlegu sex mánaða námi skólans fór fram síð- astliðinn fimmtudag, 17. september. Markmið Landgræðsluskólans er að byggja upp færni sérfræðinga frá þróunarlöndum í landgræðslu, umhverfisstjórnun og sjálfbærri landnýtingu. Þetta er gert með því að þjálfa sérfræðinga sem starfa við land- græðslu- og landnýtingarmál í sam- starfslöndum Landgræðsluskólans í Afríku og Mið-Asíu. Sérfræðingarnir sem koma til náms við Landgræðsluskólann hafa allir háskólagráðu sem tengist við- fangsefnum skólans og starfa við stofnanir í heimalandi sínu. Landgræðsluskólinn hefur starfað frá árinu 2007 og standa Landbúnaðarháskóli Íslands og Landgræðsla ríkisins að rekstri skólans. Landgræðsluskólinn er fjár- magnaður af íslenska ríkinu sem hluti af framlagi Íslands til alþjóðlegrar þróunarsamvinnu. Í ávörpum við útskriftina var lögð áhersla á mikilvægi landgræðslu og sjálfbærrar landnýtingar í baráttunni gegn landeyðingu og vísað í því sam- hengi í ný alþjóðamarkmið SÞ um sjálfbæra þróun sem verða samþykkt á allsherjarþingi SÞ í lok þessa mánaðar. Landgræðsluskólinn vinnur í anda þess að stöðva landeyðingu, græða upp illa farið land og koma í veg fyrir eyðingu lands með því að stuðla að sjálfbærri nýtingu landvistkerfa. Ávinningurinn af því að bæta land- gæði mun auka fæðuöryggi og minnka þar með hungur og fátækt, stuðla að betri heilsu og tryggara aðgengi að hreinu vatni og draga úr áhrifum lofts- lagsbreytinga. /VH Landgræðsluskóli Háskóla Sameinuðu þjóðanna: Þrettán nemendur frá sjö löndum útskrifast Nemendurnir við útskriftina ásamt starfsmönnum Landgræðsluskólans og stjórnarmönnum hans. Mynd / Landgræðsla ríkisins. Icetrack ehf. Sími 773 4334 netfang: mtdekk@mtdekk.is / www.mtdekk.is MICKEY THOMPSON jeppadekkin hafa sannað sig á Íslandi M/T merkið er þekkt um allan heim sem hágæða jeppadekk og felgur. Stærðir 32” - 54” J E P PA D E K K BAJA CLAW MTZDEEGAN

x

Bændablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.